Stjörnur framtíðarinnar stíga fram

Einleikarar 2009

Þrír tónlistarnemendur munu stíga á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands fimmtudagskvöldið 15. janúar n.k. Þremenningarnir urðu hlutskörpust í samkeppni ungra tónlistarnema um einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands 2009 sem Listaháskólinn og Sinfóníuhljómsveitin stóðu fyrir nú í haust. Þetta eru þau Bjarni Frímann Bjarnason, víóluleikari, Hulda Jónsdóttir, fiðluleikari og Nathalía Druzin Halldórsdóttir, mezzósópran. Bjarni Frímann og Hulda eru nemendur í Listaháskólanum en Nathalía kemur úr Nýja tónlistarskólanum.

Á efnisskránni eru Víólukonsert eftir Béla Bartók, Fiðlukonsert í D-dúr op.77 eftir Johannes Brahms og sönglög og aríur eftir Verdi,Canteloube, Tsjajkovskíj og Camille Saint-Saëns.  Stjórnandi á tónleikunum er Bernharður Wilkinsson.

Tónleikarnir eru kjörið tækifæri til að skyggnast inn í framtíð íslensks tónlistarlífs. Tónleikar ungra einleikara hefur verið árviss viðburður hjá hljómsveitinni undanfarin ár og ávallt verið eftirminnilegur viðburður, jafnt fyrir

Miðasala á tónleikana fer fram í miðasölu Sinfóníuhljómsveitarinnar í Háskólabíói,  s: 545 2500. Skólafólki býðst að kaupa miða á tónleikana á hálfvirði, á kr. 1750 / 1550.