Listaháskólinn og byggingafélagið Samson Properties ehf. hafa gert með sér samning um byggingu húsnæðis fyrir skólann á svokölluðum Frakkastígsreit í miðborg Reykjavíkur. Samningurinn var undirritaður með sérstakri viðhöfn í tónlistarsal skólans við Sölvhólsgötu þriðjudaginn 4. desember. Fjöldi gesta var við athöfnina, auk nemenda, kennara og starfsfólks skólans. Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, flutti ávarp og færði skólanum sérstakar hamingjuóskir á þessum tímamótum, og borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, lýsti yfir ánægju borgarinnar með áform um byggingu á þessum stað.

Rektor lýsti í ræðu sinni aðdragandanum að þeirri ákvörðun sem nú lægi fyrir, og nefndi sérstaklega að þegar skólinn var stofnaður 1998 höfðu stjórnvöld gefið út fyrirheit um að hann fengi í tannfé bygginguna að Laugarnesvegi 91, svokallað SS-hús, tilbúið til notkunar fyrir skólastarfsemina, Af ýmsum ástæðum hefði þó ekki þótt hagkvæmt að endurbyggja húsið í Laugarnesi, og því reynt að finna skólanum annan stað. Ýsmar staðsetningar hefðu verið athugaðar, bæði í miðborginni, nær henni og fjær, og þá sérstaklega reynt að meta hvernig starfsemi skólans gæti samrýmst umhverfinu og hvaða líf skólinn gæti gefið samfélaginu til baka. Alltaf hefði það verið niðurstaðan, að skólanum yrði best valinn staður í miðborginni, í tengslum við götulífið, þar sem almenningur gæti átt greiðan aðgang, og þar sem skólinn gæti orðið kraumandi afl í borgarlífinu.
Þá fór rektor yfir helstu atriði samningsins. Samningurinn heitir Rammasamningur milli Listaháskóla Íslands og Samson Properties ehf. um makaskipti á lóðum og hönnun, byggingu, og leigu nýs skólahúsnæðis fyrir Listaháskólann í miðbæ Reykjavíkur. Með samningnum eignast Listaháskólinn miðbæjarlóðina, sem vísað er til sem Frakkastígsreits. Á móti fær Samson Properties ehf. Vatnsmýrarlóðina, sem Listaháskólanum var ánöfnuð með viljayfirlýsingu borgarinnar, skólans og menntamálaráðuneytisins 7. maí síðastliðinn. Makaskiptin fara fram á jöfnu, þ.e. engar greiðslur eru á milli aðila.

Samson Properties ehf. byggir skólahús á miðbæjarlóðinni, um 13.500 m2 í samræmi við húsrýmisáætlun skólans, eins og hún er miðuð við dags. í nóv. 2007, sem fylgir sem fylgiskjal með samningnum.
Húsrýmisáætlunin er í endurskoðun og er samkomulag á milli aðila um að henni verði skipt út þegar ný gerð hennar verður tilbúin nú í desember.
Listaháskólinn leigir skólahúsið af Samson Properties ehf. með sérstökum leigusamningi til 30 ára. Leigan er 210 milljónir króna á ári á verðlagi fjárlaga 2007. Leigugreiðslur hefjast þegar skólinn flytur í húsnæðið. Virðisaukaskattur er innifalinn í leigugreiðslum. Stofnkostnaður við bygginguna er áætlaður um 3.250 milljónir kr. á verðlagi byggingavísitölu í október 2007. Í stofnkostnaði felst allur byggingakostnaður, undirbúnings- og hönnunarkostnaður, og kostnaður af framkvæmd útboðs verkframkvæmda. Áætluð afhending nýbyggingarinnar er í maí 2011, þannig að kennsla þar getur hafist þá um haustið.

Skólinn hefur samkvæmt samningnum forgangsrétt til leigu á húsnæði, sem Samson Properties ehf. eða félög tengd því fyrirtæki, reisa á lóðum í næsta nágrenni við bygginguna, þ.m.t. hús Regnbogans við Hverfisgötu og önnur hús norðan og sunnan Hverfisgötu. Bílastæði eru ekki innifalin í leiguverði en Listaháskólinn á þess kost að gera sérstakan samning um afnot af bílastæðum sem verða í bílakjallara undir byggingunni. Í samningnum er kveðið á um kostnaðarskiptingu á leigutíma, m.a. um kostnað við fjármögnun, viðhald húsnæðis, fasteignagjöld, tryggingar, hita, rafmagn, þrif, öryggisgæslu o.sv.frv.
Í samningnum eru sérstök ákvæði um að Listaháskólinn og Samson Properties ehf. standi sameiginlega að hönnunarsamkeppni um deiluskipulag miðbæjarlóðarinnar og hönnun skólabyggingarinnar. Keppnin verður í tveimur þrepum. Fyrra þrepið er almenn hugmyndasamkeppni, en síðara þrepið lokuð keppni milli þeirra fimm þátttakenda sem eiga hlutskörpustu tillögurnar í fyrra þrepinu. Hönnunarsamkeppnin tekur til hugsanlegra stækkunarmöguleika skólahúsnæðisins á aðliggjandi lóðum sunnan og norðan Hverfisgötu, sem og í húsi Regnbogans. Skipuð verður fimm manna dómnefnd, sem mun yfirfara og meta tillögur í báðum þrepunum. Miðað er við að dómnefndin verði skipuð með eftirfarandi hætti: einn af Listaháskólanum, einn af Samson Properties ehf., tveir af Arkitektafélagi Íslands og einn af menntamálaráðherra. Stefnt er að því að keppnin verði auglýst nú um næstu áramót.

Við athöfnina lýsti síðan rektor í helstu atriðum hugmyndunum sem liggja að baki vinnu skólans við skilgreiningu á nýju húsnæði, og kynnti jafnframt nýútgefinn bækling um fyrirhugaða nýbyggingu Listaháskólans þar sem húsnæðinu og skipulagi þess er lýst í stærstu atriðum og jafnframt upplýsingar um starfsemi skólans, stefnu og fyrirhugaða uppbyggingu. Sjá skjal um Nybyggingu Listaháskóla Íslands
Í lok athafnarinnar þakkaði rektor öllum þeim sem komið hafa að byggingamálum skólans. Sérstaklega þakkaði hann menntamálaráðherra fyrir heilladrjúgt samstarf og borgarstjóra og borgarstjórn fyrir að hafa greitt götu skólans í lóðamálum hans. Hann þakkaði samningsmönnum sínum, þeim Jónu Finnsdóttur, framkvæmdastjóra, og Gunnari Jóhanni Birgissyni, hæstaréttarlögmanni og lögfræðingi skólans, fyrir að leiða samningsgerðina fyrir hönd skólans, og fyrir að hafa ásamt með Erlendi Gíslasyni, hæstaréttarlögmanni hjá Logos-lögmannsþjónustu, sniðið til samninginn og bætt hann stig af stigi í góðri samvinnu við samningsaðila skólans. Stjórn skólans þakkaði hann sérstaklega fyrir óeigingjarnt samstarf við að finna bestu lausn í þessu máli. Byggingamálin hefðu verið á dagskrá stjórnarinnar frá allt stofnun skólans, og nú loksins væri farið að hylla undir lausn.
Að síðustu afhenti rektor Sveini Björnssyni, framkvæmdastjóra Samson Properties ehf. sérstakan “tryggðapant”, sem tákn fyrir það traust sem samningurinn byggir á. Þetta er gripur, steyptur í bronz, eftir Kristin E. Hrafnsson, myndhöggvara. Gripurinn ber heitið “Núllpunktur”, en það heiti má að sögn rektors túlka sem áskorun eða fyrirheit um það mikla verk sem byggingarfélagið á fyrir höndum með því að byggja yfir skólann. Mikil stemming ríkti við athöfnina, og stjórnendum skólans gefið lang og mikið klapp fyrir framgöngu sínu í þessum málum.
