Undirritun samnings um nýja byggingu.

Í dag, þriðjudaginn 4. desember kl. 13:00, verður undirritaður samningur á milli skólans og byggingafélagsins Samson Properties ehf. um um nýbyggingu fyrir Listaháskólann á Frakkastígsreit. Af því tilefni verður felld niður kennsla í skólanum frá kl. 12:30 til kl. 14:00. Skrifstofur skólans verða lokaðar á sama tíma og bókasafn.

Undirritunin fer fram í tónlistarsal skólans, Sölvhól, við Sölvhólsgötu (gengið inn frá horni Klapparstígs og Skúlagötu). Fyrir hönd Listaháskólans undirritar rektor samninginn og Sveinn Björnsson, framkvæmdastjóri, fyrir hönd byggingafélagsins. Við undirritunina flytur menntamálaráðherra ávarp og borgarstjóri flytur kveðjur borgarinnar.

Rútur ganga frá Skipholti og Laugarnesi upp úr kl. 12:30 og til baka aftur fyrir kl. 14:00.

Samstarfsverkefni bænda og hönnuða fær rannsóknarstyrk.

Nýsköpunarverkefnið Stefnumót bænda og hönnuða hefur hlotið styrk frá Tækniþróunarsjóði. Verkefninu er stýrt af Sigríði Sigurjónsdóttur, prófessor í vöruhönnun við hönnunar- og arkítektúrdeild LHÍ. Um er að ræða stuðning í þrjú ár, samtals tæpar 17 milljónir. Stefnumót bænda og hönnuða er frumkvöðlaverkefni í þágu atvinnulífsins þar sem tvær starfstéttir leiða saman hesta sína til að skapa einstakar afurðir. Mikil sóknarfæri felast í matvælaframleiðslu á Íslandi og með markvissri nýsköpun á hráefninu er hægt að margfalda virðisaukann. Í sérstöðu og upplifun felast mikil verðmæti og er athöfnin ?að borða? orðin ein sú veigamesta í nútíma upplifunarsamfélagi. Því er markmið verkefnisins að þróa héraðsbundnar matvörur byggðar á hæstu gæðum, rekjanleika og menningarlegri skírskotun. Nýnæmi verkefnisins felst í samstarfi hönnunarnema við LHÍ og bænda.
Slíkt samstarf hefur ekki átt sér stað áður á Íslandi og ekki er vitað til þess að það hafi átt sér stað í öðrum löndum með svo beinskeyttum hætti. Hér er á ferðinni mikið frumkvöðlastarf sem getur haft verulegt fordæmisgildi í framtíðinni, en í verkefninu er einni af elstu starfstéttum landsins, bændum, telft saman við eina af yngstu starfsstéttunum, hönnuðum. Markmiðið er að þær afurðir sem verða þróaðar á næstu 3 árum skapi efnahagslegan ávinning og verði fyrirmyndir fyrir aðra bændur til að auka vægi nýsköpunar í framleiðslunni. Í litlu samfélagi eins og Íslandi eru fyrirmyndir mjög líklegar til að hafa margföldunaráhrif og við það styrkist samkeppnisstaða íslensks landbúnaðar verulega.

Verkefnið er unnið í samstarfi við hönnunarþjónustuna Borðið, verkefnið Beint frá býli, veitingastaðinn Friðrik V á Akureyri og samstarfsaðila í Central Saint Martins háskólanum í London.

Nánari upplýsingar gefur verkefnisstjóri, s. 699 1090, netfang: sigridur@lhi.is

skyrkonfekt

Myndin sýnir Skyrkonfekt sem hönnunarnemar LHÍ unnu í samvinnu við bóndann á Erpsstöðum, 2007

Kennaranám við LHÍ

Listaháskóli Íslands auglýsir nám í kennslufræði til kennsluréttinda á vormisseri 2008.

MYNDLISTARMENN, HÖNNUÐIR, LEIKARAR OG TÓNLISTARMENN

Listaháskóli Íslands auglýsir nám í kennslufræði til kennsluréttinda á vormisseri 2008.

Frestur til að skila inn umsóknum fyrir nám á vormisseri 2008 er 10. desember, tilkynningar um inntöku berast eigi síðar en 18. desember. Kennsla hefst 7. janúar 2008.
Nemendur sem hefja 30 eininga nám á vormisseri 2008 geta valið um að útskrifast annað hvort vorið 2009 eða að dreifa náminu á lengri tíma og útskrifast vorið 2010.

ALMENNAR UPPLÝSINGAR
Nemendur í kennaranámi Listaháskólans þurfa að hafa lokið háskólaprófi eða sambærilegu námi í myndlist, hönnun, leiklist eða tónlist. Námið tekur eitt til tvö ár og lýkur með diplóma sem gefur réttindi til að sækja til menntamálaráðuneytis um lögvernduð réttindi til kennslu á grunn- og framhaldsskólastigi.

Kennaranámið er fræðinám til undirbúnings almennum fræðslustörfum og fyrir kennslu í listum í grunn- og framhaldsskólum samkvæmt námsskrá. Með kennaranáminu vill Listaháskólinn tryggja að nýsköpun í listum og listfræðum berist á milli skólastiga og viðhorf listamanna til listuppeldis verði virt.

Skólagjöld í kennaranámi við Listaháskólann á vormisseri 2008 eru 56.000 krónur.

Nánari upplýsingar um tilhögun námsins á síðasta skólaári og lýsingar á einstaka námskeiðum er að finna í kennsluskrá skólaársins 2007-2008, sjá heimasíðu LHÍ / nám og deildir / kennaranám.

Rafrænar umsóknir og nánari upplýsingar um skipulag námsins og inntökureglur eru á heimasíðu skólans: www.lhi.is / inntaka nýnema / umsóknir

Arnþrúður Ösp Karlsdóttir
sími 520 2416
netfang: kennaranam@lhi.is