Umsóknarfrestur á leikarabraut og dansbraut leiklistardeildar Listaháskólans rann út 25. febrúar s.l. Fjöldi umsókna barst á báðar brautir. Um nám á leikarabraut sóttu 125 manns en þar verða teknir inn að hámarki 10 manns. Á dansbraut sóttu 17 um og þar verða teknir að hámarki 8 umsækjendur inn. Umsóknarfrestur í Fræði og framkvæmd, B.A.nám í leiklist er 28. mars n.k.
Ný námsbraut í kirkjutónlist
Skólaárið 2008-2009 tekur til starfa ný námsbraut í kirkjutónlist við tónlistardeild Listaháskólans. Um er að ræða bakkalárnám til 90 eininga/180 ECTS en markmiðið er að undirbúa nemendur fyrir störf í kirkjum landsins. Í því felst orgelleikur, kórstjórn, leiða almennan safnaðarsöng og skipulag við tónlistarflutning í tengslum við helgihald kirkjunnar. Ennfremur er það markmið að veita nemendum alhliða þjálfun sem leiðandi tónlistarmenn í samfélaginu.Námið er í samvinnu við Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Umsóknarfrestur er 28. mars n.k.








