Meistaranám í tónsmíðum - nýtt nám

Listaháskóli Íslands býður nú í fyrsta sinn upp á meistaranám í tónsmíðum.
Um er að ræða 120 eininga nám sem tekur tvö ár eða fjórar annir. Námið byggir á samþættingu rannsókna í tónlist og tónsköpun.

Í meistaranáminu fær nemandinn þjálfun í að beita viðurkenndum rannsóknaraðferðum til grundvallar listsköpun sinni og þróunar verkefna.

Markmiðið er að hann geti skapað sér sérstöðu í nútímasamfélagi lista og menningar með þekkingu sinni og færni.

Helstu áherslur í náminu:

  • Tónsmíðar sem listform í samfélagi nýrra tækifæra
  • Fagurfræðilegar rannsóknir á afmörkuðum sviðum tónsköpunar og tónlistar
  • Rannsóknir og þróun nýrra aðferða við tónsköpun og tónflutning
  • Samþætting tónlistar, sjónlistar og sviðslistar
  • Íslensk menningararfleifð í tónsmíðum

Umsóknarfrestur í námið er 30. júní n.k. Í umsókn skal koma fram náms- og starfsferilskrá ásamt sýnishornum af verkum umsækjenda. Þá skal fylgja ítarleg námstillaga fyrir meistaranámið þar sem koma fram markmið og rannsóknarsvið námsins.

Umsóknum skal koma til Tónlistardeildar Listaháskólans að Sölvhólsgötu 13, 101 Reykjavík.

Takmarkaður nemendafjöldi.

Nánari upplýsingar veita:
Sóley Björt Guðmundsdóttir, deildarfulltrúi tónlistardeildar,s: 5525020 og
Kjartan Ólafsson
, prófessor í tónsmíðum, s: 898 4011 /

Sjá nánar um námið

Ráðning í stöðu prófessors í myndlist

Hulda Stefánsdóttir

Hulda Stefánsdóttir

Rektor Listaháskóla Íslands hefur ráðið Huldu Stefánsdóttur, myndlistarmann, í stöðu prófessors í myndlist við myndlistardeild skólans. Fjórtán umsækjendur voru um starfið. Þriggja manna dómnefnd skipuð af stjórn skólans mat sex þeirra hæfa til að gegna starfinu miðað við starfssvið og skyldur eins og starfið var auglýst af hendi skólans.

Hulda lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1992. Hún lagði síðan stund á nám í frönsku við Háskóla Íslands í eitt ár áður en hún innritaðist í Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1993. Lauk hún prófi úr málaradeild skólans 1997. Hulda fór 1998 til framhaldsnáms í New York við The School of Visual Arts þaðan sem hún lauk meistaraprófi vorið 2000. Meðal kennara hennar þar voru þær Suzanne McClelland og Polly Apfelbaum. Að loknu framhaldsnámi starfaði Hulda sjálfstætt sem myndlistarmaður í New York allt til ársins 2005 þegar hún flutti til Íslands. Eftir heimkomuna hefur hún starfrækt eigin vinnustofu og jafnframt starfað sem stundakennari við Listaháskólann og fengist við ýmis störf á sviði félagsmála myndlistarmanna. Hulda starfaði sem blaðamaður á menningardeild Morgunblaðsins 1997 – 98, og hefur síðan skrifað fjölda greina fyrir blaðið um myndlist og tengd málefni.

Hulda hefur haldið einkasýningar á verkum sínum bæði á Íslandi, í Bandaríkjunum og í Kanada. Síðustu einkasýningar hennar hér á landi voru sýningarnar Yfirlýstir staðir í Listasafni ASÍ 2005 og hlutlaust. á hreyfingu í Gallerí Ágúst 2007. Útgangspunktur verka hennar hefur verið rannsóknir á eigindum og eðli málverksins. Þar hefur hún sérstaklega skoðað tengsl málverka, ljósmynda og hreyfimynda og samband þeirra við rýmið í stærri innsetningum. Hulda hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og verk hennar hafa verið keypt af opinberum söfnum. Hulda var sýningarstjóri sýningarinnar Kvikar myndir, sem haldin var í Listasafni ASÍ í lok síðasta árs og hafði sem megintema gömlu höfnina í Reykjavík og starfsemina sem henni tengjast.

Hulda tekur við starfi prófessors þann 1. ágúst næstkomandi. Aðrir háskólakennarar í listsköpun við myndlistardeild næsta skólaár eru þau Anna Líndal, prófessor, Ólafur Sveinn Gíslason, prófessor, Katrín Sigurðardóttir, prófessor, auk deildarforseta Kristjáns Steingríms Jónssonar.

Listaháskólinn sýknaður af skaðabótakröfu fyrrum nemanda

Listaháskólinn hefur með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 6. júní síðastliðinn verið sýknaður af kröfu fyrrum nemanda skólans um 15 milljón króna skaðabætur vegna heilsutjóns sem nemandinn telur sig hafa orðið fyrir á námskeiði í plastmótun við skólann í janúar 2001. Í niðurstöðu héraðsdóms segir m.a. að varanleg örorka nemandans og varanlegt miskastig verði ekki rakið til atvika sem hafi átt sér stað í skólanum og því sé kröfunni hafnað. Hins vegar þykir sýnt að nemandinn hafi fengið útbrot og veruleg óþægindi í húð vegna óvarlegrar meðferðar á eiturefnum í umræddu námskeiði og skal skólinn greiða honum miska- og þjáningabætur vegna þess sem þykja hæfilegar 450 þús. krónur. Málskostnaður á milli aðila er felldur niður.

Sjá nánar dóminn í heild sinni á www.domsstolar.is

Meistaranám í tónsmíðum

Listaháskóli Íslands býður nú í fyrsta sinn upp á meistaranám í tónsmíðum.

Um er að ræða 120 eininga nám sem tekur tvö ár eða fjórar annir. Námið byggir á samþættingu rannsókna í tónlist og tónsköpun.

Í meistaranáminu fær nemandinn þjálfun í að beita viðurkenndum rannsóknaraðferðum til grundvallar listsköpun sinni og þróunar verkefna.

Markmiðið er að hann geti skapað sér sérstöðu í nútímasamfélagi lista og menningar með þekkingu sinni og færni.

Helstu áherslur í náminu:
Tónsmíðar sem listform í samfélagi nýrra tækifæra
Fagurfræðilegar rannsóknir á afmörkuðum sviðum tónsköpunar og tónlistar
Rannsóknir og þróun nýrra aðferða við tónsköpun og tónflutning
Samþætting tónlistar, sjónlistar og sviðslistar
Íslensk menningararfleifð í tónsmíðum

Umsóknarfrestur í námið er 24. júní n.k. Í umsókn skal koma fram náms- og starfsferilskrá ásamt sýnishornum af verkum umsækjenda. Þá skal fylgja ítarleg námstillaga fyrir meistaranámið þar sem koma fram markmið og rannsóknarsvið námsins.
Umsóknum skal koma til Tónlistardeildar Listaháskólans að Sölvhólsgötu 13, 101 Reykjavík.

Takmarkaður nemendafjöldi.

Nánari upplýsingar veitir Sóley Björt Guðmundsdóttir, deildarfulltrúi tónlistardeildar,
s: 5525020 /soleybjort@lhi.is

Útskrift – skólaslit Listaháskóla Íslands

Listaháskóli Íslands brautskráir nemendur frá skólanum á hátíðarsamkomu sem haldin verður á stóra sviði Borgarleikhúsins, laugardaginn 31. maí n.k. Samkoman hefst kl. 14:00.Allir velunnarar skólans eru velkomnir.

Með brautskráningu lýkur níunda starfsári Listaháskólans. Alls útskrifast að þessu sinni 106 nemendur, 87 nemendur með fyrstu háskólagráðu í myndlist, hönnun, arkitektúr, leiklist og tónlist, 16 nemendur með diplómapróf í kennslufræðum og 3 nemendur með diplóma í tónlist. Nú í fyrsta sinn útskrifast nemendur af námsbrautinni Fræði & framkvæmd innan leiklistardeildar.

Auk ávarpa rektors og fulltrúa nemenda verða á dagskránni hátíðarræða og listflutningur. Trúðarnir Barbara, Gjóla, Za-ra og Úlfar sýna atriði úr Dauðasyndunum, Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Kjartan Valdemarsson flytja tvö lög eftir Joseph Kosma við ljóð Jacques Prévert og slagverksleikararnir Steef van Oosterhout og Frank Aarnink flytja “Rythm Strip” eftir Áskel Másson. Magnús Pálsson myndlistarmaður flytur hátíðarræðu.

Kynnir samkomunnar er Anna Gunndís Guðmundsdóttir nemandi í leiklistardeild