Útskriftarbók Listaháskólans 2008 er komin út.

Útskriftarbók Listaháskólans 2008 er komin út. Bókin er glæsilega hönnuð af Borghildi Ínu Sölvadóttur og Rán Flygering nemum í grafískri hönnun hjá LHÍ. Hún er 234 síður með litmyndum af um 110 útskriftarnemendum 2008 og verkum þeirra.

Í bókinni er m.a. að finna ítarefni og hugleiðingar um lokaverkefni útskriftarnemendanna sem veitir innsýn í hugmyndaheiminn að baki verkefnum þeirra. Má því segja að bókin þjóni m.a. sem einskonar sýningarskrá fyrir útskriftarsýningu nemenda í myndlistardeild og hönnunar-og arkitektúrdeild sem stóð yfir í Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum frá 19. apríl – 1. maí s.l.

Ritstjóri bókarinnar er Álfrún G. Guðrúnardóttir, kynningarstjóri skólans.

Útskriftarbók LHÍ 2008

Bókin kostar 1.500 kr. og fæst á aðalskrifstofu Listaháskólans, Skipholti 1.

Aðsóknarmet á útskriftarviðburði Listaháskólans

Útskriftarsýningu Listaháskólans á Kjarvalsstöðum sem opnaði 19. apríl s.l. lauk 1. maí en þar voru sýnd verk 63 nemenda úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild. Sýningin hlaut mjög góðar viðtökur gesta og gangandi sem endurspeglaðist í frábærri aðsókn en í þær tvær vikur sem hún stóð komu um 11.000 manns.

Þegar er búið að halda tólf af tuttugu útskriftarviðburðum tónlistardeildar LHÍ en þar hefur aðsókn einnig verið með eindæmum góð, en fullt hefur verið á flesta tónleika.

Útskriftarviðburðir nemenda í Fræði & framkvæmd, leiklistardeild LHÍ munu svo standa yfir frá 9.maí -18. maí n.k.

Lokaverkefni nemenda í Fræði og framkvæmd

LEIKLISTARDEILD LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS9.-18. MAÍ 2008

Dagskrá


Fös. 9.5.

17:00 Opnun. Móttaka í matsalnum,

Sölvhólsgötu 13.

Lau. 10.5.

14:00 Korpúlfsstaðir

Eva Rún Snorradóttir : “Daytrip to Lifestyle Garden”

16:00 Grandavegur 36

Vilborg Ólafsdóttir: “Lífsins ball”

17:30 Listaháskólinn Laugarnesi

Friðgeir Einarsson: “Innland”

20:00 Þjóðleikhúsið (Kassinn)

Kolbrún Björt Sigfúsdóttir: “Mávurinn”

21:30 Þjóðleikhúsið (Kassinn)

Elísabet Kristín Jökulsdóttir : “Mundu töfrana”

Sun. 11.5.

16:00 Sölvhólsgata 13 (Svarti salur)

Heiðar Sumarliðason: “Rautt brennur fyrir”

17:30 Sölvhólsgata 13 (Álfhóll)

Snæbjörn Brynjarsson: “Siggi prins”

20:00 Sölvhólsgata 13 (Hrái salur)

Karl Ágúst Þorbergsson: “Í upphafi var óskin”

21:30 Sölvhólsgata 13 (Smiðjan)

Árni Kristjánsson: “Glæpur og refsing”

Mán. 12.5.

15:00 Korpúlfsstaðir

Eva Rún Snorradóttir: “Daytrip to Lifestyle Garden”

20:00 Sölvhólsgata 13 (Svarti salur)

Heiðar Sumarliðason: “Rautt brennur fyrir”

20:00 Grandavegur 36

Vilborg Ólafsdóttir: “Lífsins ball”

Mið. 14.5.

20:00 Sölvhólsgata 13 (Álfhóll)

Snæbjörn Brynjarsson: “Siggi prins”

20:00 Sölvhólsgata 13 (Smiðjan)

Árni Kristjánsson: “Glæpur og refsing”

20:00 Sölvhólsgata 13 (Hrái salur)

Karl Ágúst Þorbergsson: “Í upphafi var óskin”

Fim. 15.5.

20:00 Grandavegur 36

Vilborg Ólafsdóttir: “Lífsins ball”

20:00 Listaháskólinn Laugarnesi

Friðgeir Einarsson: “Innland”

20:00 Þjóðleikhúsið (Kassinn)

Kolbrún Björt Sigfúsdóttir: “Mávurinn”

Fös. 16.5.

20:00 Þjóðleikhúsið (Kassinn)

Elísabet Kristín Jökulsdóttir: “Mundu töfrana”

20:00 Sölvhólsgata 13 (Hrái salur)

Karl Ágúst Þorbergsson: “Í upphafi var óskin”

Lau. 17.5.

20:00 Sölvhólsgata 13 (Smiðjan)

Árni Kristjánsson: “Glæpur og refsing”

20:00 Sölvhólsgata 13 (Álfhóll)

Snæbjörn Brynjarsson: “Siggi prins”

Sun. 18.5.

20:00 Þjóðleikhúsið (Kassinn)

Kolbrún Björt Sigfúsdóttir: “Mávurinn”

20:00 Listaháskólinn Laugarnesi

Friðgeir Einarsson: “Innland”

AÐGANGUR ÓKEYPIS

TAKMARKAÐUR ÁHORFENDAFJÖLDI.

TAKIÐ FRÁ SÆTI Í SÍMA 552-5020 EÐA HJÁ ALBERT@LHI.IS

Inntaka í kennaranám Listaháskóla Íslands

Ákveðið hefur verið að opna aftur fyrir umsóknir í kennaranám Listaháskólans fyrir skólaárið 2008-2009. Umsóknarfrestur rennur út 30. maí.

Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands frá 19. apríl - 1. maí

Verk nemenda úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild

Í Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum.

Frá útskriftarsýningunniSkartgriparæktun í gróðurhúsi, retro snjósleði, Menningar- og náttúrusetur á Álftanesi, vídeóskúlptúrar, ljósmyndir, skófatnaður, sprengt mótorhjól, rusl í rými, hlaupandi menn, innsetningar, fatahönnun, skilveggur úr papakössum, ljósgjafi, veggspjöld, sérsmíðaður borðbúnaður, gagnvirk vídeóverk, verzlun smákaupmanns, leturtýpur, gjörningar, fánastöng, útilistaverk, bækur og bátur uppi á þaki.

Þetta og margt fleira getur að líta á útskriftarsýningu sextíu og þriggja nemenda myndlistardeildar og hönnunar-og arkitektúrdeildar Listaháskólans sem stendur yfir á Kjarvalsstöðum en sýningin er í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur.

Verk nemenda á sýningunni eru afrakstur þriggja ára náms við Listaháskólann þar sem markmiðið hefur verið að skapa nemendum aðstöðu til að mennta sig sem listamenn og gera þá reiðubúna að takast á við víðtæk viðfangsefni á skapandi og gagnrýninn hátt með forvitni, áræði og framsækni að leiðarljósi.

Boðið er upp á leiðsögn um sýninguna alla sunnudaga kl.15.00 en þá munu nemendur veita gestum innsýn í verkin sín. Hægt er að panta leiðsögn fyrir hópa virka dag í s: 590 1200
/ netfang: fraedsludeild@reykjavik.is

Sýningin stendur til 1. maí og er opin daglega frá 10.00 – 17.00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sýningarstjórar hönnunar-og arkitektúrdeilar eru Kristján Eggertsson og Kristján Örn Kjartansson hjá Krads arkitektum. Sýningarstjóri myndlistardeildar er Finnur Arnar Arnarsson myndlistarmaður.