Ný námsbraut við LHÍ

OPNI LISTAHÁSKÓLINN

NÁMSLEIÐ - endurmenntun fyrir listgreinakennara

NÝ NÁMSBRAUT VIÐ LHÍ

Skólaárið 2008 – 2009 býður Listaháskólinn starfandi listgreinakennurum að sækja listfræði- og kennslufræðinámskeið með nemendum í kennaranámi og í listnámsdeildum. Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskólaprófi í kennslufræði og listnámi í myndlist, hönnun, leiklist eða tónlist. Námið er eins árs nám og nemendur geta sótt allt að 24 eininga (48 ECTS) nám.

MARKMIÐ

Það er markmið Listaháskólans að efla hlut lifandi lista í fræðslu og menntun allra landsmanna og auka um leið skilning á gildi skapandi hugsunar í hvers konar skólastarfi.

Námsleiðin er endurmenntun fyrir kennara í listum í grunn- og framhaldsskólum. Með náminu vill Listaháskólinn stuðla að þróun náms í listum og listfræðum.

SKIPULAG NÁMSSINS

Kennsla á haustönn hefst 25. ágúst og kennsla á vorönn lýkur í maí. Kennslufræðinámskeið eru kennd í LHÍ í Laugarnesi og listfræðinámskeið í Laugarnesi, Skipholti eða Sölvhólsgötu. Kennsla er öll staðbundin og fer fram frá kl. 8:30 og fram til kl. 17:00 á daginn.

Listfræðinámskeiðin eru á BA-stigi en kennslufræðin á MA-stigi.

Nánari upplýsingar um námskeiðin, sjá Kennsluskrá kennaranáms skólaárið 2007-2008 og námskeiðaframboð fræðinámskeiða sem opin er öllum deildum skólans – haustönn 2007 og vorönn 2008.

INNTÖKUSKILYRÐI

Umsækjendur þurfa að hafa lokið BA-nám í listgrein og kennslufræði til kennsluréttinda eða Bed námi í tónmenntar- eða myndmenntarkennslu

MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR

Opnað verður fyrir umsóknir 11. apríl 2008

Frestur til að skila inn umsóknum 16. maí 2008

Dagsetning póststimpils á innsendum umsóknum 16. maí 2008

Tilkynningar um inntöku 30. maí 2008

Upphaf haustmisseris 25. ágúst 2008

Fjöldi umsókna í Listaháskólann

Umsóknarfrestur í allar deildir Listaháskólans er runninn út. Fjöldi umsókna barst á allar brautir. Í Hönnunar og arkitektúrdeild sóttu 267 um, 92 í myndlistardeild, 61 í tónlistardeild og 25 í Fræði og framkvæmd í leiklistardeild. Inntökupróf og viðtöl fara fram í apríl og maí.