Fyrirlestur dr. Borut Juvanec


Dr. Borut Juvanec frá arkitektadeild háskólans í Ljubliana, heldur fyrirlestur þriðjudaginn 2. september, kl. 12.00 til 12.50 stofu 113 Skipholti 1 – húsnæði hönnunar – og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands.

Fjallað verður um 20. aldar arkitektúr í Slóveníu, og tengsl hans við sögu og menningu landsins. Jafnframt verður fjallað um verk Joze Plecnik.
Fyrirlesturinn verður á ensku.

Borut Juvanec er arkitekt og prófessor við arkitektadeild Háskólans í Ljubliana í Slóveníu. Hann er með doktorspróf í arkitektúr frá sama skóla og hefur sérhæft sig í kennifræðum og þróun steinhlaðinna mannvirkja. Hann hefur rannsakað fjölda tófta og mannvirkja úr steini í heimalandi sínu og víða í Evrópu. Hann er virkur þátttakandi í fjölda rannsóknaverkefna víðsvegar um Evrópu sem snerta hans sérsvið. Hann hefur skrifað greinar og gefið út bækur um steinbyggingar og steinhleðslur. Hægt er að kynna sér dæmi um hans rannsóknasvið á vefslóðinni www.stoneshelter.org/stone/

Listaháskólinn settur!

Mánudaginn 25. ágúst hófst kennsla í Listaháskólanum en skólinn hefur nú tíunda starfsár sitt.

Nýnemum var boðið á kynningu á Sölvhólsgötu þar sem rektor ávarpaði nemendur og ýmis þjónusta, réttindi og skyldur voru kynnt fyrir nýjum nemendum. Um 150 nýnemar hefja nám í LHÍ í haust og var eftirvænting í loftinu.

Í lok dags var skólinn settur formlega við hátíðlega stemmningu þar sem boðið var upp á kakó, kökur og  ljúfa tónlist í flutningi Viktors Orra Árnasonar og Huldu Jónsdóttur nemenda tónlistardeildar skólans.

Fyrirlestur Natalie Jeremijenko


Sjá nánar um Natalie Jeremijenko:
http://www.nytimes.com/2008/08/12/health/12clin.html?_r=1&emc=eta1&oref=slogin
http://en.wikipedia.org/wiki/Natalie_Jeremijenko
http://www.nyu.edu/projects/xdesign/
http://triennial.cooperhewitt.org/index.php?id=47
http://visarts.ucsd.edu/node/view/491/31
http://www.goodmagazine.com/section/Portraits/mad_scientist
http://www.worldchanging.com/archives/001450.html
http://www.yalealumnimagazine.com/issues/2004_03/jeremijenko.html
http://www.sierraclub.org/sierra/200507/jeremijenko.asp

Framúrskarandi nemendur styrktir!

Styrktarsjóður Halldórs Hansen styður framúrskarandi tónlistarnemendur!

Í ár fengu fjórir nemendur styrk að upphæð kr. 400.000 hver en það eru þau Greta Salóme Stefánsdóttir fiðluleikari, J. Páll Palomares fiðluleikari, Hákon Bjarnason píanóleikari og Þorvaldur Þorvaldsson bassasöngvari en þau koma öll úr Listaháskólanum.

Styrkveiting Halldórs Hansen 14. ágúst 2008

Styrkveiting Halldórs Hansen 14. ágúst 2008

Boðið var til hátíðardagskrár af þessu tilefni þar sem tilkynnt var um verðlaunahafa sjóðsins 2008 og komu þau öll fram á samkomunni. Það var mikil stemmning að hlusta á flutning þessara ungu tónlistarnemenda en öll eiga þau væntanlega eftir að láta að sér kveða í framtíðinni. Páll, Hákon og Þorvaldur munu allir hefja framhaldsnám erlendis í tónlist í haust og Greta Salóme mun leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands næsta vetur meðan hún undirbýr frekara nám.

Um verðlaunahafana:

Greta Salóme Stefánsdóttir

Greta Salóme Stefánsdóttir hóf nám við Tónlistarskóla íslenska Suzukisambandsins árið 1991, þá fimm ára gömul hjá Mary Campbell. Hún lærði hjá Hlíf Sigurjónsdóttur frá 1995 - 1997 við sama skóla og fór síðan til Lilju Hjaltadóttur í Allegro Suzukiskólann. Þrettán ára fór hún í Tónlistarskólann í Reykjavík og lærði fyrsta veturinn hjá Auði Hafsteinsdóttur en eftir það fór hún til Guðnýjar Guðmundsdóttur þar sem hún hefur verið allar götur síðan. Haustið 2004 hóf hún nám við Listaháskóla Íslands í fiðluleik og stundaði þar nám samhliða almennu námi við Menntaskólann í Reykjavík. Síðastliðið ár dvaldi hún þó í Stetson University í DeLand Flórída þar sem hún lærði hjá Routu Kroumouvitch-Gómez. Greta mun leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands í vetur og undirbýr um þessar mundir meistaranám erlendis.

Í umsögn prófdómara um útskriftartónleika Gretu Salóme í vor stendur m.a. : ” Síðustu verk fyrir hlé voru Veturinn og sumarið úr Árstíðunum eftir Vivaldi sem hún lék með lítilli strengjasveit. Þar fór Gréta á kostum. Mikið átti þessi tónlist vel við hana. Hún vissi nákvæmlega hvað hún vildi gera og gerði það með rafmagnaðri spennu og yndislegri áræðni og var eins og líflegur stormsveipur á köflum. Hún naut þess mjög að spila smitaði alla með spilagleði sinni. Þetta gerði hún listavel eins og sjálfstæður fullþroska listamaður”.

Hákon Bjarnason
Hákon Bjarnason hóf tónlistarnám árið 1996 og nam við Nýja Tónlistarskólanum haustið 1998. Fyrst undir handleiðslu Ragnars Björnssonar síðan Jónasar Sen. Haustið 2003 fékk Hákon inngöngu í Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem Halldór Haraldsson tók við kennslunni. Tveimur árum seinna hóf Hákon nám við tónlistardeild Listaháskóla Íslands, áfram með Halldór sem aðalkennara. Í október 2007 varð Hákon einn af fjórum nemendum sem urðu hlutskarpastir í einleikara-keppni Listaháskóla Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Í kjölfarið spilaði hann píanókonsert nr. 1 eftir Prokofíeff með Sinfóníuhljómsveit Íslands í janúar síðastliðnum. Í öll þrjú skiptin sem píanókeppni Íslandsdeildar EPTA hefur verið haldin hefur Hákon unnið til verðlauna. Tvisvar sinnum hefur hann hlotið fyrstu verðlaun og eitt skipti þriðju verðlaun. Haustið 2007 var Hákon í skiptinámi í Sibeliusar Akademíunni í Helsinki. Hákon mun hefja nám í Berlín í haust.
Í umsögn um útskriftartónleika Hákons sagði prófdómari einfaldlega: “Það er óþarfi að orðlengja það, að Hákon skilaði afar erfiðri efnisskrá af sérstökum glæsibrag. Bravó !!”.
J.Páll Palomares
Joaquín Páll Palomares byrjaði að spila á fiðlu sex ára og lærði undir handleiðslu Unnar Pálsdóttur. Næstu fimm árin spilaði hann á mörgum tónleikum þar sem má nefna verk eins og fiðlukonserta Bruch ogMendelsohn, Rondo Caprichioso eftir Camille Saint-Saëns, og einleik með Sinfóníuhljómsveit á Spáni þar sem spiluð var Spænska sinfónían eftir Eduard Lalo. Eftir nokkurra ára hlé byrjaði hann haustið 2002 í Tónlistarskóla Kópavogs þar sem kennari hans var Margrét Kristjánsdóttir. Joaquín Páll útskrifaðist úr Tónlistarskóla Kópavogs vorið 2005. Haustið 2005 hóf hann nám við Listaháskóla Íslands og var kennari hans þar Auður Hafsteinsdóttir. Joaquín Páll hefur verið konsertmeistari í Ungfóníu, strengjasveitar Tónlistarskóla Kópavogs og Sinfóníu-hljómsveitar Tónlistarskólanna auk þess að hafa leikið með Orkesten Norden sumarið 2004. Haustið 2007 var hann einn af sigurvegurum keppninnar „Ungir einleikarar” og í framhaldi af því spilaði hann fiðlukonsert eftir Sibelius með Sinfóníuhljómsveit Íslands í janúar sl. Hann spilaði einnig sama konsert á tvennum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Alicante á Spáni í febrúar sama ár. Páll mun hefja nám í Hans Eisler-tónlistarháskólanum í Berlín í haust.

Í umsögn prófdómara eftir glæsilega lokatónleika stendur m.a.: ” Páll endaði tónleika sína á Caprice eftir Saint Saens í útsetningu Ysaye. Páll lék þetta krefjandi verk stóglæsilega, þar sem allt var á sínum stað bæði tæknilega og stíllega. Hann er hrífandi í túlkun sinni og hefur mjög gott vald á hljóðfærinu”.

Þorvaldur Kristinn Þorvaldsson
Þorvaldur Kristinn Þorvaldsson hóf söngnám við Söngskólann í Reykjavík og lauk hann framhaldsprófi vorið 2004. Við Listaháskólann hafa Elísabet Erlingsdóttir og Selma Guðmundsdóttir verið aðalkennarar hans. Þorvaldur hefur sungið með Schola Cantorum og Kór Íslensku óperunnar og víða komið fram sem einsöngvari. Í apríl síðastliðnum fór hann með hlutverk Don Alfonso í uppsetningu Óperustúdíós Íslensku óperunnar á Cosi fan Tutte eftir Mozart. Einnig hefur hann sungið hlutverk Simones í Gianni Schicchi eftir Puccini og hlutverk Sempronios í Lo Speziale eftir Haydn á vegum Óperu-stúdíósins. Þá fór hann með hlutverk einkaþjónsins í uppsetningu Íslensku óperunnar á Ariadne auf Naxos. Þorvaldur er á leið í meistaranám í Mozarteum tónlistarháskólanum í Salzburg í Austuríki.
Um útskriftartónleika hans sagði prófdómari m.a.: Efnisskráin var vönduð og vel samsett fyrir hljóm raddarinnar sem naut sín vel, sérstaklega í rússnesku ljóðunum þar sem þróttur og hljómgæði ásamt góðum styrkleikabreytingum voru hrífandi. Hápunktur tónleikanna var flutningur ljóðasöngva Karls Ó. Runólfssonar, en þar var frábær túlkun og næmni fyrir textanum skilaði sér vel inn í litbrigði raddhljómsins. Þessi flutningur var í sérflokki”.
Um sjóðinn:
Styrktarsjóður Halldórs Hansen starfar undir væng Listaháskólans. Meginmarkmið hans er að styrkja uppbyggingu og styðja við tónlistarsafn skólans. Auk þess veitir sjóðurinn árlega styrki til tónlistarnema sem náð hafa framúrskarandi árangri að mati sjóðsstjórnar.