Ráðstefna Listaháskólans um rannsóknir í listum

RÁÐSTEFNA LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS

UM RANNSÓKNIR Í LISTUM

Listaháskóli Íslands efnir til alþjóðlegrar ráðstefnu dagana 3.-4. október, undir yfirskriftinni Rannsóknir í listum.

Á ráðstefnunni munu framsæknir lykilfyrirlesarar flytja erindi um þau mismunandi sjónarhorn sem hugmyndafræði listrannsókna byggir á, ásamt því sem rætt verður um ýmis vandamál er upp koma þegar listir ryðja sér til rúms í fræða- og vísindaheiminum. Auk lykilfyrirlesaranna munu listnemendur í doktorsnámi kynna rannsóknarverkefni sín og gefa ráðstefnugestum innsýn í framkvæmd og miðlun listrannsókna.

Markmið ráðstefnunnar er að blása til faglegrar og gagnrýninnar umræðu um rannsóknir í listum. Slíkar rannsóknir byggja í grundvallaratriðum á aðferðum tiltekinna listmiðla og miða að því að samþætta fræðilega og verklega nálgun við sköpun nýrrar þekkingar. Listaháskólinn vinnur nú að uppbyggingu rannsóknatengds framhaldsnáms og vill með þessum viðburði efna til líflegra rökræðna um erindi lista í fræðasamfélagið.

Ráðstefnan er haldin í húsnæði skólans við Sölvhólsgötu 13 og er frá kl.9.00 - 15.00 á föstudeginum 3.október og frá kl. 10.00 - 13.00 á laugardeginum 4. október. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Ráðstefnumálið er enska.

Nánari dagskrá ráðstefnunnar ásamt upplýsingum um fyrirlesara http://lhi.is/rannsoknir/radstefna/

Sigurvegarar í einleikarkeppni Listaháskólans og Sinfóníunnar

Samkeppni ungra tónlistarnema um einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands 2009 fór fram í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 21. september s.l. En á hverju ári gefst þeim tónlistarnemum sem skarað hafa fram úr í þessari forkeppni, sem haldin er á vegum Listaháskóla Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Íslands, einstakt tækifæri á að spreyta sig með Sinfóníuhljómsveitinni.

Að þessu sinnu tóku sex nemendur þátt í keppninni en dómnefnd valdi þrjá vinningshafa og var samhljóða í úrskurði sínum.

Vinningshafar eru Bjarni Frímann Bjarnason, víóla, Hulda Jónsdóttir, fiðla og Nathalia Druzia Halldórsdóttir söngkona. Bjarni Frímann og Hulda eru nemendur í Listaháskólanum en Nathalia kemur úr Nýja tónlistarskólanum.

Fimmtudaginn 15. janúar 2009 munu þessir þrír nemendur koma fram með hljómsveitinni en þessara einleikstónleika er að jafnaði beðið með eftirvæntingu og spennu.

Í dómnefnd sátu Karólína Eiríksdóttir tónskáld, formaður, Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona, Örn Magnússon píanóleikari, Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og Petri Sakari hljómsveitarstjóri.

Kynjadagar Listaháskóla Íslands 6.október - 10 október

Kynjadagar Listaháskóla Íslands eru haldnir vikuna 6. október - 10. október. Dagskráin er helguð kynjunum og kynjaímyndum. Nemendur Listaháskólans og listamenn kynna verk tengd kynjafræðum og verða með innlegg.

Í boði eru uppákomur í hádeginu mánudaginn 6.október, þriðjudaginn 7.október og föstudaginn 10.október. Listgreinar skólans eiga sinn hlut í dagskránni og þar kennir ýmissa grasa.

Dagskráin hefst í hádeginu á mánudag kl.12.30 í húsnæði Myndlistardeildar á Laugarnesvegi 91 en þar munu Rakel Mcmahon og Svala Ragnarsdóttir myndlistarkonur flytja erindið “æææ… svona kvennalist”. Í fyrirlestrinum munu þær m.a.a velta fyrir sér hvort eitthvað sé til sem hægt sé að flokka sem kvennalist.

Á þriðjudag í hádeginu kl. 12.00 verða flutt tvö erindi í húsnæði Hönnunar-og arkitektúrdeildar í Skipholti 1. Eva María Árnadóttir fatahönnuður mun fjalla um hvort hægt sé að nýta kvenleikann til að ná jafnrétti og ber erindið heitið “Tískuþrælar og frjálsir menn”. Innlegg Örnu Sigrúnar Haraldsdóttur fatahönnuðar nefnist “Áhrif fatnaðar á jafnréttisbaráttu kynjanna”. Þar mun hún velta því fyrir sér hvaða áhrif útlit og klæðnaður hafa á samkeppnishæfni kvenna á atvinnumarkaðnum og valdabaráttu kynjanna.

Á föstudeginum kl. 12.00 verða tvær uppákomur í húsnæði tónlistar- og leiklistardeildar á Sölvhólsgötu 13. Karólína Eiríksdóttir tónskáld mun fjalla um kventónskáld á barokktímabilinu og síðan munu nemendur í Fræði og framkvæmd í leikistardeild flytja stutt verk „Skafur greflist” þar sem lögð er áhersla á að nýta ýmsa tækni svo sem ljós og hljóð í leikhúsum.

Dagskrá Kynjadaga Listaháskólans er öllum opin

Kynjadagar LHÍ eru haldnir að frumkvæði jafnréttisnefndar skólans.

Bodvar Schjelderup, READING THE GREAT PYRAMID

Fyrirlestur Opna Listaháskólans þriðjudaginn 30. September kl.17:00 í Sölvhóli, Sölvhólsgötu 13 (húsakynnum Listaháskólans) á horni Klapparstígs og Skúlagötu.

Bodvar Schjelderup arkitekt er fæddur 1932 í Noregi.
Hann hefur gefið út fræðibækur, haldið sýningar og fyrirlestra, aðallega um hlutföll helgra bygginga.

Fyrirlesturinn er samstarfsverkefni dagskrárnefndar Arkitektafélags Íslands og Listaháskóla Íslands.

Hrafnhildur Arnardóttir myndlistarmaður fjallar um eigin verk

Hrafnhildur Arnardóttir myndlistarmaður fjallar um eigin verk í hádegisfyrirlestri Opna listaháskólans mánudaginn 29. september kl. 12:30 í húsnæði myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91 í Reykjavík.

Hrafnhildur Arnardóttir aka Shoplifter (f. 1969) býr og starfar í NY. Hún lauk námi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1993 og stundaði framhaldsnámi við School of Visual Arts í New York 1994 - 1996. Hún hefur átt verk á sýningum víða um heim, til dæmis vann hún verk fyrir MOMA - listasafnið í NY síðastliðið vor. Hrafnhildur hefur unnið verkefni í samstarfi við fjölda þekktra listamanna og hópa.
Sjá nánar www.shoplifter.us