Föstudaginn 31. október nk. var Opinn dagur í öllum deildum Listaháskóla Íslands og var áhugasömum boðið að koma í skólann og kynnast starfsemi hans.
Í Listaháskólanum voru nemendur og kennarar til viðtals og upplýsingagjafar. Fjölbreytt dagskrá var í deildum skólans og má þar nefna uppákomur, leiðsögn um deildir og sýningar á verkefnum nemenda. Jafnframt gátu gestir geta fengið upplýsingar um umsóknarferli og nemendur kynntu inntökumöppur.
Deildir voru opnar sem hér segir:
Myndlistardeild / Kennaranám. Laugarnesvegur 91. Kl. 11.00-18.00
Í Laugarnesinu var opið hús í myndlistardeild og var m.a. boðið upp fasta kynningu á myndlistardeildinni kl. 11.15, 14.15 og 17.15. Einnig var opin sýning á verkum annars árs nemenda þar sem sýnd voru málverk, vídeó og skúlptúrar. Annars árs nemendur voru með leiðsögn um þessa sýningu sína kl. 11.45, 12.30 og síðan á klukkutíma fresti til 16.:30. Einnig lágu ferilmöppur nemenda og nokkrar umsóknarmöppur frammi til sýnis fyrir gesti og gangandi.
Í húsakynnum Kennaranáms LHÍ á 2. hæð í Laugarnesinu tók forstöðumaður námsins á móti gestum á opnum degi.
Hönnunar-og arkitektúrdeild. Skipholt 1. Kl. 11.00-18.00
Frá kl.11.00-18.00 tóku prófessorar, fagstjórar, kennarar og nemendur á móti gestum. Boðið var upp á leiðsögn um deildina þar sem inntökuferli og nám var útskýrt. Inntökumöppur voru til sýnis og svöruðu nemendur fyrirspurnum.
Sýning var á verkum þriðja árs nema í vöruhönnun úr námskeiðinu 105. Þar hafa nemendur kortlagt tiltekið póstnúmer, framleiðandi starfsemi, verslun og þjónustu og skráð nákvæma lýsingu á þeirri þekkingu, tækni og markaði sem er fyrir hendi. Nemendur sjálfir kynntu verkin sem eru mjög áhugaverð.
Einnig var til sýnis verkefnið “Frakkastígurinn” frá arkitektúrnemum á fyrsta ári. Í því verkefni var Frakkastígurinn kortlagður og rannsakaður bæði út frá byggingarlegu sjónarmiði og í félagslegu og sögulegu samhengi. Þá má nefna sýningu á veggspjöldum úr námskeiðinu Þjóðararfurinn sem fyrsta árs nemar í grafískri hönnun voru að ljúka og margt fleira.
Leiklistardeild /Tónlistardeild. Sölvhólsgata 13. Kl. 14.00-18.00
Í leiklistardeild og tónlistardeild voru stuttar leiksýningar og tónlistaratriði frá kl. 14.00.
Í leiklistardeild var m.a. kynning á einstaklingsverkefnum þriðja árs nema, opnir danstímar, sýning á mínútumyndun nema í Fræði og framkvæmd og margt fleira. Í tónlistardeild voru tónlistaruppákomur í gangi allan daginn.Í báðum deildum var mikið líf og fjör og hægt að spjalla við fagstjóra, prófessora og leiklistar- og tónlistarnemendur.
Leiklistardeild ítardagskrá:
Svarti salur - kl.14:00-18:00
DVD. Myndir frá viðburðum og uppákomum.
Bókasafn - Kl.14:00-18:00
Mínútumyndir 1. árs fræði & framkvæmd rúlla í tölvunum niðri frá kl.14-18. Nemendurnir kynna verkin við tölvurnar milli kl.17:00-18:00.
Álfhóll. Kl.16.30 og 17.30
Dansbraut verður með sýningu á nýju verki í vinnslu.
Kl.15:00 -15:30
Anna Gunndís, nemi í leiklistardeild sýnir hluta af kvikmynd eftir hana sjálfa.
Smiðjan. kl. 15.30-16.30
Kynning í Verklegri leiklistarsögu, unnið út frá hugmyndum Wagners (ekki er hleypt inn eftir að kynning er byrjuð.
Hrái salur. Kl. 15:30-16:00
Þriðja árs leiklistarnemar sýna einstaklingsverkefni í Hráa sal.
Álfhóll. Kl. 19.00-21.00
Jam Improvisation. Dans, leiklist, myndlist, tónlist
Tónlistardeild ítardagskrá:
| Hvar / Klukkan | 14:00 | 14:30 | 15:00 | 16:00 | 16:30 | 17:00 | 17:30 |
| Flyglasalur | Grieg djamm píanó |
Quintett | Beethoven duett Fiðlusamspil undir stjórn Guðnýjar Guðmundsd. |
Píanoverk | |||
| Stúdíó Sölvhóll | tónsmíðanemi sýnir | Opinn masterklassi hjá tónsmíðanemendum |
tónsmíðanemi sýnir | ||||
| Fræðiherbergi 3. hæð |
tónsmíðanemar til viðtals |
tónsmíðanemar til viðtals |
tónsmíðanemar til viðtals |
||||
| Kyndiklefi | S.O.C - band | ||||||
| Græni salur 3. hæð |
samspil fiðlunemenda umsjón Guðný Guðmundsdóttir |
||||||
| Mötuneyti | DJ frá 16.30 - 17.30 |
gítar | |||||
| Skoðunarferð um skólann | Leiðsögn hefst | Leiðsögn hefst | Leiðsögn hefst | Leiðsögn hefst | |||













