Fyrirlestur Opna Listaháskólans laugardaginn 25. október kl. 13.0. í Listaháskólanum, Sölvhóli, Sölvhólsgötu 13.
Oswald Georg Bauer er leikhúsfræðingur og einn af helstu kunnáttumönnum um uppsetningar á Wagneróperum frá upphafi til okkar daga. Hann er höfundur hinnar virtu bókar Richard Wagner - Die Bühnenwerke von der Uraufführung bis heute, sem út kom árið 1982 hjá Propyläen forlaginu í Frankfurt. Bauer vinnur nú að bók um sögu Bayreuth hátíðarinnar frá upphafi til dagsins í dag.
Bauer starfaði um árabil við Wagnerhátíðina í Bayreuth sem listrænn ráðgjafi og gegndi auk þess starfi fjölmiðlafulltrúa hátíðarinnar í nokkur ár. Hann hefur einnig um árabil verið forstöðumaður Listaakademíunnar í München (Bayerische Akademie der schönen Künste) og kennari í leikhúsfræðum við Ludwig-Maximilian háskólann þar í borg.
Fyrirlesturinn: “Hvernig skal smíða Hringinn” fjallar um tilurð Niflungahringsins, en það tók Richard Wagner meira en aldarfjórðung að ljúka gerð þessa stærsta verks óperusögunnar, sem inniheldur 4 óperur er taka samanlagt 16 tíma í flutningi. Í upphafi var ætlunin að skrifa aðeins eina hetjuóperu, Dauða Siegfrieds, fyrir hirðleikhúsið í Weimar. Samfara því að Wagner gerði sér grein fyrir að hann gat með engu móti afgreitt söguefnið í einni brotakenndri óperu áttaði hann sig einnig á því að hann yrði að fara allt aðrar leiðir en áður hafði tíðkast í óperugerð, bæði í textanum og tónlistinni. Á þessum tíma varð Wagner fyrir sterkum áhrifum frá forngrískum hefðum í leikritagerð og sviðsumgjörð. Hann heillaðist af frásögnum af leiklistarhátíðunum sem höfðu verið haldnar í Dýonysusar leikhúsinu í Aþenu til forna og hugmyndir um “leikhús framtíðarinnar” sem sprottið væri af þessum gamla meiði fengu byr undir báða vængi. Hann ákveður að smíða Niflungahringinn í anda gríska þríleiksins, þrjár óperur með forleik. Hátíðarhugmyndin verður órjúfanlegur partur af þessu og hann fer að leggja drög að byggingu framtíðarleikhússins, sem henti uppsetningu Hringsins og skapi umgjörð fyrir leikhúshátíðina í hinum forna anda. Óperuhúsið í Bayreuth er byggt til að uppfylla þessa drauma Wagners og varr um margt byltingarkennt í samanburði við þau óperuhús er þekktust á þeim tíma. Niflungarhringurinn var frumsýndur í Bayreuth 1876 en þegar að uppskerudögum var komið var Wagner var langt frá því að vera ánægður með afraksturinn af aldarfjórðungs þrotlausri vinnu.
Fyrirlesturinn er í boði Wagnersfélagsins, Listaháskólans og Sendiráðs Þýskalands
















