Rektor Listaháskólans og rektor Háskólans í Reykjavík ásamt sjö nemendum beggja skólanna skrifuðu undir sameiginlega yfirlýsingu föstudaginn 21. nóvember, um uppbyggingu vefsvæðis fyrir hugmyndir á frumstigiog vettvang fyrir samstarf og þróun til frekari úrvinnslu.
Þetta verkefni er upprunnið úr samstarfi nemenda beggja skólanna í námskeiðinu Markaður og form sem fjallarum nýsköpun, vöruþróun, aukna verðmætasköpun og markaðssetningu. Námskeiðið hefur verið þróað af skólunum um 6 ára skeið.
Verkefnið ber heitið “I’m Innovation,” og er ætlað að höfðað til fólks sem vill koma hugmyndum sínum á framfæri á opnum vettvangi og afla tengsla og samstarfsfólks til áframhaldandi þróunar. Í yfirlýsingunni lýsa rektorarnir yfir að skólarnir taki að sér að þróa vettvang í formi vefsíðu, koma henni í loftið og halda utan um rekstur hennar, a.m.k. fyrst um sinn. Nemendurnir veita leyfi til að þróa verkefnið áfram, og byggja á hugmyndum þeirra og hönnun við gerð síðunnar svo lengi sem verkefnið er rekið á opnum vettvangi og án kröfu um arðsemi.
Nemendurnir sem standa að verkefninu „I’m Innovation“ eru: Ragnar Már Nikulásson, Bergþóra Magnúsdóttir, Herdís Ósk Helgadóttir, Benjamin Mark Stacey, Myrra Rós Þrastardóttir, Laufey Björg Sigurðardóttir, og Veronica Grilli.
Umsjón með námskeiðinu hafði Guðjón Már Guðjónsson. Kennarar voru Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Guðmundur Oddur Magnússon, Linda B. Árnadóttir, Kristján Örn Kjartansson, Kristján Eggertsson, Þórey Hannes og Stefán Pétur Sólveigarson, ásamt Halldóri Erni Engilbertssyni, lektor við Háskólann í Reykjavík og Dóru Ísleifsdóttir, fagstjóra í grafískri hönnun við Listaháskólann sem hafa síðan fylgt verkefninu eftir.














