Píanótónleikar á 100 ára afmælisdegi Oliviers Messiaen

Tinna Þorsteinsdóttir - Messiantónleikar

Tónskáldið Olivier Messiaen hefði orðið 100 ára 10. desember næstkomandi og af því tilefni mun Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari efna til hádegistónleika innan tónlistardeildar Listaháskólans á sjálfan afmælisdaginn. Þar mun hún leika tvær af Fuglabókum Messiaens, þær númer 3 og 5 (Catalogue d´Oiseaux, nr. 3 og 5) og segja frá þeim. Tónleikarnir byrja kl: 12.15 miðvikudaginn 10. desember og eru haldnir í Sölvhóli. Aðgangur er ókeypis.

Catalogue d´Oiseaux eftir Olivier Messiaen

Fuglabækur Olivier Messiaens eru  7 talsins, innihalda 13 tónverk og eru um leið einskonar alfræðirit um fugla í Frakklandi. Form verksins er samhverft þar sem hápunkti er náð í miðjunni eða fjórðu fuglabókinni. Segja má því að bækur þrjú og fimm kallist á efnislega og þannig koll af kolli. Messiaen var mikill fuglafræðingur og fannst sjálfum að með Fuglabókunum hefði hann náð ákveðnum hápunkti fuglatónsmíða sinna. Fuglakatalóginn er gríðarstórt píanóverk og tekur um þrjá tíma í flutningi og segja má að Mesiaen hafi þar skrifað umfangsmesta fuglatónverk sitt. Bækurnar skrifaði hann á árunum 1956-58 fyrir eiginkonu sína, píanóleikarann Yvonne Loriod, sem jafnframt frumflutti verkið. Hvert tónverk bókanna ber heiti söngfugls og fjallar um hann í náttúrulegu umhverfi sínu ásamt öðrum  þeim fuglum sem þar eru. Bækur þrjú og fimm innihalda hvor um sig tvö verk en skapa afar ólíkar stemningar. Þriðja bókin gerist um miðja nótt þar sem myrkrið umlykur náttúruna. Í henni eru aðalhetjurnar Náttuglan og Trjálævirkinn. Í fimmtu bókinni koma hinsvegar Sandlævirkinn og Blæsöngvarinn fyrir og gerist hún um vor og sumar og boðar komu ljóss og hita.

8. desember, 2008