Jeffrey Nebolini, grafískur hönnuður heldur hádegisfyrirlestur

Jeffrey Nebolini

Jeffrey Nebolini, grafískur hönnuður, heldur hádegisfyrirlestur í Opna listaháskólanum þriðjudaginn 9.desember kl.12:00 í Skipholti 1, stofu 113. Nebolini er staddur hér á landi sem gestakennari við hönnunar-og arkitektúrdeild LHÍ

Jeffrey Nebolini er listrænn stjórnandi/hönnuður með rætur í pönk rokki, hjólabretta menningu, hjólum, jöklum, Arts & Crafts hreyfingunni, ítalska “opulence” og 50’s modernisma.

Jeffrey Nebolini er listrænn stjórnandi IDEO hönnunarstofunnar  í San Francisco. Áður starfaði hann sem aðalhönnuður Burton Snowboards, jafnframt hefur hann unnið með the Arnell Group í New York, STEiNUNN í Reykjavík og Agency: Collective í San Francisco. Verk hans hafa m.a. verið birt í Transworld Snowboarding, Thrasher, NYLON, VICE, Time, and ESPN

Jeffrey hefur MFA í grafískri hönnun frá Cranbrook Academy of Art og B.S í jarðfræði frá Union College. Þetta er í fjórða skipti sem Jeffrey kemur til landsins að kenna við hönnunar- og arkitektúrdeild Listháskóla íslands.

Jeffrey Nebolini is an Art Director/Designer with roots in punk rock, skateboard culture, bicycles, glaciers, the Arts & Crafts movement, Italian opulence, and mid-century modernism. His hybridized (and often contradictory) visual sensibilities have been shaped and influenced by an erratic educational path, vast international travel, and a curiously contiguous career trajectory.

Currently an Art Director at IDEO in San Francisco, Jeffrey leads the visual component of design projects ranging from interactive experiences to high performance apparel, fashion branding, and environmental design. His agility among media and his multidisciplinary approach stems from a desire to make graphic design exist in more than 2 dimensions.

Prior to joining IDEO, Jeffrey was a Lead Brand Designer at Burton Snowboards.
During his tenure, Jeffrey helped to shape the image of the Burton brand though his work on women’s-specific global advertising, graphics for outerwear and apparel, and large-scale snowboarding events.

In addition to his work at IDEO and Burton, Jeffrey has worked with the Arnell Group in New York, STEiNUNN in Reykjavík, and Agency: Collective in San Francisco. His work has appeared in Transworld Snowboarding, Thrasher, NYLON, VICE, Time, and ESPN.

Jeffrey holds an MFA in Graphic Design from Cranbrook Academy of Art, and a Bachelor of Science in Geology from Union College. He is a Fulbright Scholar (Iceland, 2004), and a visiting instructor and critic at the Iceland Academy of the Arts in Reykjavík. In his spare time, Jeffrey is a competitive cyclist and an avid snowboarder.

The lecture is in English

Jólatónleikum tónlistardeildar Listaháskólans útvarpað beint í fyrsta sinn!

Tonlistardeild 08

Hinir árlegu jólatónleikar tónlistardeildar LHÍ standa nú yfir frá 27. nóvember - 12. desember.

Sú nýjung er á að í fyrsta sinn er hægt að hlusta á tónleikana beint á netinu þannig að þeir sem ekki eiga heimangengt geta notið ljúfrar tónlistar heima í stofu eða annarsstaðar.

Útsendingunni stjórna nemendur í tónlistarkennslu en þeir hafa verið í tveggja vikna námskeiði þar sem þeim hefur verið kennt að gera handrit og vera með beinar tónleikaútsendingar. Nemendur í upptökutækni munu sjá um tæknivinnuna sem þessu fylgir.

Hvetjum við alla til að láta ekki jólatónleikana fram hjá sér fara. Dagskrá tónleikana er að finna hér á heimasíðu skólans.

Allir tónleikarnir nema þeir fyrstu eru í tónleikasal skólans Sölvhól, Sölvhólsgötu 13.  Aðgangur eru ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir.

Slóðin á beina útsendingu er : http://lhi.is/2008/11/21/jolatonleikar-tonlistardeildar-listahaskolans-2008/

Nemendaleikhúsið frumsýnir Kirsuberjagarðinn eftir Anton Tsjekhov

Kirsuberjagarðurinn eftir Anton Tsjekhov.

Nemendaleikhúsið frumsýnir á Litla Sviði Borgarleikhússins 4. desember n.k.

Kirsuberjagarðurinn eftir Anton Tsjekhov er saga af húsi sem er að hruni komið og hinum gamla lífstíl sem er einnig kominn af fótum fram.

Eftir fimm ára fjarvegu snýr Ljubov Ranjevskaja aftur heim. Býli hennar, víðfrægur kirsuberjagarður, er að verða gjaldþrota vegna mikilla skulda og það blasir við að innan skamms tíma verði það selt á uppboði. Ranjevskaja hefur eytt um efni fram, sóað gengdarlaust,  án þess að leiða hugann nokkurn tímann að morgundeginum.

Tsjekhov skrifar verk sitt,1904, á miklum umbrotatímum í Rússlandi þar sem undirliggjandi spenna milli þjóðfélagshópa er allsráðandi, samfélagsgerð sem ríkt hefur um aldir er að hverfa og ný að taka við. Nýríku auðmennirnir í Rússlandi náðu ekki að fara í útrás, Rússlandi var umbylt, kapítalisminn sigraði ekki, aðallin sigraði ekki -fólkið sigraði ekki.

Sviðsetning Nemendaleikhússins á Kirsuberjugarðinum er samtal við íslenskan samtíma. Ísland í dag er á sögulegum örlagapunkti.

Hinir áhyggulausu dagar eru á enda - skemmtum okkur þangað til við deyjum!!

Leikstjóri er Daniel Rylander, aðstoðarleikstjóri Guðmundur Kr. Oddsson. Leikmynd og búningar: Sigurður Óli Pálmason, lýsing: Egill Ingibergsson, tónlist og hljóðmynd: Jóhann Friðgeir Jóhannson. Framkvæmda-og tæknistjórn: Egill Ingibergsson og aðstoð við leikmynd og tæknivinnu: Brynja Björnsdóttir.

Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands í vetur skipa: Bjartur Guðmundsson, Hannes Óli Ágústsson, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson, Vigdís Másdóttir,Walter Geir Grímsson og Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir.

Hér má sjá stiklur úr sýningunni: http://www.youtube.com/watch?v=XJBeIFlVU_M

Sýningarplan Kirsuberjagarðurinn

Fimmtudagur 4. desember kl. 20:00 Frumsýning - Uppselt
Föstudagur 5. desember kl. 20:00 Hátíðarsýnin - Uppselt
Sunnudagur 7. desember kl. 20:00
Fimmtudagur 11. desember kl. 20:00
Föstudagur 12. desember kl. 20:00
Laugardagur 13. desember kl. 20:00
Sunnudagur 14. desember kl. 20:00
Miðvikudagur 17. desember kl. 20:00
Fimmtudagur 18. desember kl. 20:00
Föstudagur 19. desember kl. 20:00

Miðsala fer fram í Borgarleikhúsinu í s: 568 800. Miðaverð kr. 1.500. Afsláttarverð kr.1.000 miðinn.

Sannleikurinn felst í því sem aldrei er rétt. Fyrirlestur um Gylfa Gíslason teiknara og myndlistarmann

Gylfi Gíslason,  Húsaleikur

Hjálmar Sveinsson fjallar um Gylfa Gíslason teiknara og myndlistarmann á vegum Opna Listaháskólans mánudaginn 8. desember kl. 12:30, í húsnæði myndlistardeildar LHÍ,  stofu 024, Laugarnesvegi 91 í Reykjavík.  Fyrirlesturinn ber yfirskriftina “Sannleikurinn felst í því sem aldrei er rétt”.

Gylfi Gíslason var pólitískur teiknari og myndlistarmaður. Verk hans beinast ekki síst gegn doða og blindu í samfélaginu, gagnvart verðmætum í okkar eigin umhverfi. Nærumhverfi borgarinnar er áberandi í teikningum hans og yfirvofandi eyðilegging.  Sjálfur hélt hann því fram að hann hefði með sinni fyrstu einkasýningu 1971 brotið blað í íslenskri myndlistarsögu. Það er talsvert til í því. Í myndum sínum á 8. áratugnum afhjúpar Gylfi ekki aðeins falska mynd af íslenskri náttúru heldur setur hann íslenska myndlistarhefð í pólitískt samhengi, krefur hana um slíkt samhengi.

Hjálmar Sveinsson M.A er útvarpsmaður og útgefandi og stundakennari við LHÍ. Hann hefur rannsakað íslenska menningarsögu á 6., 7. og 8. áratugnum og gefið út bækur um listamennina Rósku, Dag Sigurðarson og Megas, tvær síðastnefndu í samvinnu við Geir Svansson. Á síðasta ári kom út bók eftir hann um rithöfundinn Elías Mar „Nýr Penni í nýju lýðveldi”. Nú í haust ritstýrði hann bók um teiknarann og myndlistarmanninn Gylfa Gíslason. Hjálmar er stofnandi Atviksritraðarinnar og stofnaði Omdúrman-útgáfuna ásamt Geir Svanssyni. Hjálmar er kunnur úr útvarpinu fyrir þættina Spegillinn og Krossgötur.

ALLIR VELKOMNIR meðan húsrúm leyfir.