Ewa Murawska flautuprófessor heimsækir tónlistardeild LHÍ

Ewa Murawska

Ewa Murawska flautuprófessor frá Poznan Akedímunni í Póllandi, sem er samstarfsskóli LHÍ,  heimsækir tónlistardeild Listaháskólans í byrjun febrúar.

Hún mun taka nemendur í einkatíma en auk þess sem hún verður með opinn masterklassa þriðjudaginn 3. febrúar kl. 18.00-21.00 í Sölvhóli, Sölvhólsgötu 13.  Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanóleikari verður meðleikari hennar í masterklassanum. Allir eru velkomnir.

Ewa Murawska útskrifaðist með láði frá Poznan tónlistarakademíunni árið 2003 og frá Ecole Nationale de Musique í París 2006. Hún hefur unnið til margra verðlauna, m.a með kammersveitinni Trio Cantabile, sem hún stofnaði sjálf, en ásamt henni hlaut hún þriðju verðlaun í X. F.Kuhlau alþjóðlegri flautusamkeppni í Uelzen í Þýskalandi 2003 og  “Premier Prix l’Unanimite” verðlaunin á Alþjóðlegri kammermúsíksamkeppni í París 2005.  Ewa Murawska hefur tvisvar fengið námsstyrk frá ráðuneytum Ítalíu, Frakklands og Danmörku. Einnig hefur hún gefið út fjölda diska.  Frá árinu 2006 hefur hún kennt við Poznan Akademíuna og hún ber einnig titilinn “Doktor í listum” hjá Karol Szymanowski tónlistarakademíunni í  Katowice.

This project was completed with the support granted by Iceland, Liechtenstein and Norway by means of co-financing from the European Economic Area Financial Mechanism and the Norwegian Financial Mechanism as part of the Scholarship and Training Fund.

Music AcademyNorway Grants

Metaðsókn í Prisma - nýtt diplómanám

prisma

  • Yfir 100 umsækjendur á rúmum 4 vikum
  • Prisma er nýtt þverfaglegt nám sem byggir á skapandi og gagnrýnni hugsun
  • Yfir 50 sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu koma að kennslu
  • Prisma er viðbrögð háskólanna við því ástandi sem skapast hefur á atvinnumarkaði á Íslandi í dag.

Kennsla er hafin í Prisma, sem er nýtt þverfaglegt diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa skipulagt í samvinnu við Reykjavíkur Akademíuna. Námið stendur frá 2. febrúar og lýkur 27. mars. Kennt er í Hlíðarsmára 3 í Kópavogi á annarri hæð.

Metaðsókn hefur verið í Prisma námið og ljóst að Íslendingar eru móttækilegir fyrir námi sem þessu. Námið var skipulagt sem viðbrögð háskólanna við ástandinu í landinu og opnað var fyrir umsóknir í Prisma 16. desember 2008 og rann umsóknarfresturinn út 16. janúar 2009. Valið var úr yfir hundrað umsóknum og eru 72 nemendur sem hefja nám.

Námsgjald í Prisma er 120.000 krónur og hafa nemendur fengið niðurgreiðslu á skólagjöldum frá stéttarfélögum, fagfélögum og Vinnumálastofnun.

Prisma er metið til 16 eininga (ECTS) á háskólastigi. Námið nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Meginþáttur í aðferðafræði kennslu og fyrirkomulags er skapandi og gagnrýnin hugsun en burðargreinar eru listfræði og heimspeki. Mörgum tengdum fögum er fléttað saman við meginþátt námsins s.s. ímyndafræði, menningarstjórnun, frumkvöðlafræði, hönnun og tíðaranda, myndmálssögu, tónlistarsögu og -miðlun, skapandi skrifum, aðferðafræði myndlistar og leikhúss, arkitektúr og skipulagi, miðlunarfræði, mannfræði, markaðsfræði og stjórnun. Að auki verður boðið upp á gestafyrirlestra einu sinni í viku þar sem sérfræðingar segja frá því sem er að gerast í stefnumótun, rannsóknum og nýsköpun í samfélaginu og utan landssteinanna.

Yfir 50 sérfræðingar koma að náminu

Yfir fimmtíu sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu koma að kennslu í Prisma. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur og sálgreinandi, Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og heimspekingur, Jóhann P. Malmqvist, frumkvöðull og prófessor í verkfræði, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Andri Snær rithöfundur, Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, Sveinbjörn I. Baldvinsson, handritshöfundur, Viðar Hreinsson framkvæmdarstjóri Reykjavíkur Akademíunnar, Hjálmar Ragnarsson, rektor LHÍ og tónskáld, Sigríður Ingvarsdóttir, rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs hjá Nýsköpunarmiðstöð,  Halldór Guðmundsson rithöfundur, Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, Dóra Ísleifsdóttir, fagstjóri í grafískri hönnun og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður.

Markmið með náminu

1. Þverfagleg þekking

Nemendur styrki þverfaglega menntun sína sem gerir þeim kleift að setja ólíkar starfsgreinar, fræðigreinar, hugmyndir og hluti í samhengi og starfa á fleiri sviðum en áður.

2. Fleiri verkfæri í verkfæratöskuna

Nemendur öðlist þau verkfæri, þekkingu, reynslu og stuðning sem geta nýst þeim til að efla stöðu sína sem uppbyggilegir, skapandi og gagnrýnir þátttakendur í samfélaginu og láta framsæknar hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum.

3. Menntun á háskólastigi

Að námi loknu fá nemendur diplóma sem metið er til 16 eininga (ECTS) á háskólastigi. Nemendur sem ætla sér frekari menntun við Háskólann á Bifröst eða Listaháskóla Íslands geta fengið hluta námsins metið inn í nám á bakkálár- og meistarstigi, að gefnum ákveðnum skilyrðum.

4.Umbreyting

Lykilorðið í náminu er umbreyting. Nemendur fá tækifæri til að gaumgæfa þær umbreytingar sem eru að eiga sér stað í samfélaginu útfrá fjölbreyttum sjónarhornum undir leiðsögn sérfræðinga. Í slíku umhverfi verða vandamál að tækifærum, hindranir að flóðgáttum og hugmyndafræðilegt hrun að upphafi á nýjum og spennandi tímum.

Skipulag námsins og fyrirkomulag

Kennsla fer fram á hverjum virkum degi í Hlíðarsmára í Kópavogi en HF. Eimskipafélagið hljóp undir bagga með að útvega húsnæði undir námið. Þrjá miðvikudaga fer kennsla einnig fram í Háskólanum á Bifröst. Heildarfjölda nemenda verður skipt niður í fjóra hópa sem hver hefur sinn hópstjóra eða umsjónarkennara. Námið er á háskólastigi og ætlað fólki sem hefur að lágmarki stúdentspróf eða jafngildi þess.

Hægt er að nálgast upplýsingar um námið á heimasíðum skólanna: www.lhi.is og www.bifrost.is

Námslýsing Prisma

Gjörningur nemenda LHÍ við Seðlabankann í gær

Peningar

Í dag eru skráðir 12.793 atvinnulausir og fjölgar þeim hratt.

Til að sýna fram á þennan mikla fjölda var hópur nemenda við Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands með gjörning í gær miðvikudag þar sem þau lögðu 12.793 krónur á jörðina við anddyri Seðlabanka Íslands milli klukkan 13.00 og 16.00.

Gerir nokkur sér grein fyrir því hvað 12.793 eru raunverulega margir einstaklingar?

John Bielenberg grafískur hönnuður heldur fyrirlestur

ProjectMIceland09John Bielenberg, grafískur hönnuður heldur fyrirlestur á vegum Opna Listaháskólans kl. 12.00 - 12.40, þriðjudaginn 2. febrúar í stofu 113, Skipholti 1-5, 101 Reykjavík.

John Bielenberg er maðurinn á bak við Project-M (Nú Project-M ICELAND, http://89.16.172.21/%7Ebananagroup/project48).  John er stofnandi C2 í Kaliforníu sem byggir á aðferðum sem hann kallar „Think Wrong” og er sett til höfuðs íhaldsemi heilans af líffræðilegum ástæðum.  John á langan feril verka byggðra á „röngum hugsunarhætti”. Árið 1991 gerði hann gagnrýnið verk um heildarlausnir stórfyrirtækja undir nafninu „Virtual Telemetrix” og hlaut mikla athygli fyrir það. Hann hefur síðan stofnað Project-M sem gengur út á þennan sama hugsunarhátt og samfélagslega ábyrg verkefni unnin á þverfaglegum grunni.

Námskeiðið Project-M Iceland „Design Activism” stendur nú yfir í hönnunar-og arkitketúrdeild LHÍ undir handleiðslu John’s.


Húsfyllir á tvennum tónsmíðatónleikum

Tónsmídatónleikar 20094

Fullt var út að dyrum á báðum tónleikum tónsmíðanemenda tónlistardeildar sem haldnir voru nú um helgina. Fyrri tónleikarnir voru laugardaginn 24. janúar og þeir seinni 25. janúar en á tónleikunum voru flutt afar fjölbreytt verk eftir 24 tónsmíðanemendur s.s. strengjakvartett, kórverk, rafverk, gítartríó og verk fyrir ýmis hljóðfæri svo eitthvað sé nefnt.

Áheyrundur voru á öllum aldri, en það vakti þó athygli að stærsti hluti tónleikagesta voru ungir áheyrundur sem voru komnir til að fylgjast með tónsmíðum framtíðarinnar og var stemning í salnum afar góð.

Sú nýjung var á að tónleikum var útvarpað beint á netinu þannig að þeir sem ekki áttu heimangengt voru staddir í öðru landi eða öðrum landshluta gátu einnig notið tónlistarinnar og voru margir sem nýttu sér það.

Efnisskrá laugardaginn 24. janúar

Efnisskrá sunnudaginn 25. janúar