Hjálmar H. Ragnarsson endurráðinn rektor Listaháskólans

Hjálmar H.Ragnarsson

Stjórn Listaháskóla Íslands hefur endurráðið Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld, sem rektor skólans til næstu fimm ára. Hjálmar var ráðinn fyrsti rektor skólans í ársbyrjun 1999 og hefur hann stýrt uppbyggingu skólans síðan. Listaháskólinn starfar nú í fjórum deildum: myndlistardeild, leiklistardeild, hönnunar- og arkitektúrdeild og tónlistardeild, auk þess sem starfrækt er kennaranám. Ný deild í listkennslu tekur til starfa næsta haust.

Hjálmar er fæddur 1952 á Ísafirði. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1972 og BA prófi í tónlist frá Brandeis háskólanum í Massachusetts, Bandaríkjunum, 1974. Að loknu námi í raf- og tölvutónlist við Instituut voor Sonologie í Utrecht, Hollandi 1976 - 1977, fór Hjálmar aftur til Bandaríkjanna og stundaði nám í tónfræðum og tónsmíðum við Cornell háskólann í Íþöku, New York. Hann lauk þaðan MFA prófi 1980. Lokaritgerð hans fjallar um Jón Leifs og tónlist hans.

Hjálmar hefur verið atkvæðamikill sem tónskáld hér landi síðustu tuttugu og fimm árin. Verk hans spanna allt frá einleiksverkum til stærri sinfónískra verka, og frá einsöngslögum til söngleikja og ópera. Hann hefur samið tónlist fyrir fjölda leiksýninga og fyrir kvikmyndir, auk þess sem hann hefur unnið með fjölmörgum kórum og sönghópum bæði sem tónskáld og stjórnandi. Meðal helstu verka hans má nefna Spjótalög og Í svarthvítu fyrir hljómsveit, Konzert fyrir orgel og hljómsveit, kammeróperuna Rhodymenia Palmata, Fimm prelúdíur fyrir píanó, raftónverkið Nocturne, Tengsl fyrir söng og kammersveit, Ljóð án orða fyrir söng og slagverk, Rómönzu fyrir kammerhóp, Messu fyrir blandaðan kór, og balletverkið Rauðan þráð. Meðal kvikmynda sem hann hefur samið tónlist við eru Tár úr steini og Kaldaljós.

Allt frá heimkomu 1980 hefur Hjálmar látið að sér kveða í félagsstarfi listamanna og menningarpólitík. Hann var m.a. formaður Tónskáldafélags Íslands 1988-1992 og forseti Bandalags íslenskra listamanna 1991 – 1998. Hann hefur skrifað greinar í tímarit og blöð um fræðileg efni og menningarpólitík og auk þess verið virkur í baráttusamtökum fyrir náttúruvernd. Hjálmar er kvæntur Ásu Richardsdóttur, framkvæmdastjóra Íslenska dansflokksins.

Ráðning Hjálmars gildir frá 1. janúar þessa árs.

6. janúar, 2009