Davíð Örn Halldórsson myndlistarmaður fjallar um eigin verk

Davíð Örn Halldórsson 2

Myndlistarmaðurinn Davíð Örn Halldórsson fjallar um eigin verk í hádegisfyrirlestri Opna Listaháskólans mánudaginn 2. febrúar. kl 12:30 í stofu 024  í húsnæði myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi

Myndlistarmaðurinn Davíð Örn Halldórsson (f.1976) fæst við málaralistina og hefur gert síðan hann útskrifaðist frá Myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2002. Hann hefur þó ekki að öllu gengið inn í hefð málaralistarinnar varðandi efnisnotkun, hann málar ekki með olíulitum á striga heldur vinnur hann með fundið efni; málar með skipalakki, spreyjar með úðabrúsalakki og teiknar með tússi á fundnar tréplötur, pappa eða beint á veggi, auk þess að nota litrík límbönd á veggi. Verk Davíðs Arnar eru gjarnan unnin útfrá ákveðnum atburði eða fyrirbæri frá fyrri tíma, s.s. miðaldakastölum í sýningu hans Absalút gamall kastale í Gallerí Ágúst 2008 og Valþjófsstaðarhurðinni á sýningu hans sem nú stendur yfir í 101 Projects við Hverfisgötu í Reykjavík. Verkin eru þó ekki frásagnarkennd, þau eru margræð og opin.

Davíð útfærir persónulega umhverfisskynjun sína í formi myndmáls, sem á sér grunn í og vísar til teiknimyndagerðar, veggjalistar (graffiti), Pop-listar, Op-listar, til vestrænnar listasögu og listar frumbyggja Afríku og Ástralíu. Bakgrunnur Davíðs úr námi í grafíkdeild við Listaháskóla Íslands leynir sér ekki í verkum hans; það er sá efnislegi grunnur sem listamaðurinn byggir á og nýtir í uppbyggingu mynda sinna. Árið 2008 hlaut Davíð Örn hæsta styrk úr hinum virta Listasjóði Dungal.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir skólaárið 2009-2010

listahaskolinn-mynd2

Listaháskóli Íslands sækist eftir hæfileikamiklum og hugmyndaríkum einstaklingum með góða almenna undirstöðumenntun og grunnþekkingu á viðkomandi sviði. Rétt til að sækja um nám hafa þeir sem lokið hafa stúdentsprófi eða sambærilegu námi.

Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur í deildir Listaháskólans fyrir skólaárið 2009-2010 er sem hér segir:

Hönnunar- og arkitektúrdeild 27. mars 2009
Myndlistardeild 27. mars 2009
Tónlistardeild 27. mars 2009
Kennaranám 15. apríl 2009

Nú er opið fyrir umsóknir í hönnunar- og arkitektúrdeild, myndlistardeild og tónlistardeild. Opnað verður fyrir umsóknir í kennaranám í mars. Inntökupróf og viðtöl fara fram í apríl/maí. Haustönn mun hefjast 24. ágúst 2009.

Í leiklistardeild eru nemendur teknir inn annaðhvert ár á námsbrautirnar leikarabraut, dansbraut, og fræði og framkvæmd. Næst verða teknir inn nemendur vorið 2010.

Umsóknir
Grunnumsókn um nám í Listaháskóla Íslands er í stöðluðu rafrænu formi. Önnur umsóknargögn og umsóknarferli eru hins vegar mismunandi eftir deildum skólans. Það er því mjög mikilvægt að umsækjendur lesi upplýsingar um umsóknarferli og fylgigögn frá viðkomandi deild nákvæmlega og fylgi þeim leiðbeiningum sem þar er að finna.

Til að umsókn sé fullgild þurfa eftirfarandi gögn að berast Listaháskólanum:

  • Rafræn umsókn
  • Prentuð og undirrituð umsókn
  • Mynd
  • Staðfest afrit af prófskírteinum
  • Fylgigögn sem viðkomandi deild óskar eftir

Þegar umsækjendur hafa fyllt út rafræna eyðublaðið, þá þarf að PRENTA umsóknareyðublaðið út, undirrita það, festa á það nýlega passamynd og senda á skrifstofu viðkomandi deildar ásamt öðrum umsóknargögnum sem viðkomandi deild óskar eftir.

Heimilisföng deildarskrifstofa

Skrifstofa hönnunar- og arkitektúrdeildar - Skipholt 1, 105 Reykjavik

Skrifstofa leiklistardeildar og tónlistardeildar - Sölvhólsgata 13, 101 Reykjavík

Skrifstofa myndlistardeildar - Laugarnesvegi 91, 105 Reykjavík

Sjá nánar : http://lhi.is/umsoknir/

Sýningin Geimvísindi…hvað er nú það?

samtal-geimvisindi

Nú í janúar hefur verið í gangi sameiginlegt þriggja vikna námskeið allra deilda Listaháskóla Íslands, sem ber yfirskriftina “Samtal”, en því lýkur föstudaginn 23. janúar.

Tíu leiðbeinendur leiddu jafn marga hópa. Á tímabilinu unnu hóparnir að samsetningu hverskonar verka, atriða, gjörninga, fyrirlestra eða uppákoma, þar sem samþætting ólíkra hugmynda og aðferða er höfð að leiðarljósi. Lög voru tíu boðorð fyrir hópana sem þeir síðan tóku til sín, breyttu, bættu eða brutu.

Einn af hópum Samtals, tólf nemendur undur leiðsögn Heklu Daggar listamanns, mun halda sýningu í galleríi skólans, Kubbnum, LHÍ Laugarnesi föstudaginn 23. janúar frá kl.17.00 og fram eftir kvöldi. Hópurinn sýnir verk sem hann vann á þessum þremur vikum, Þar verður meðal annars á boðstólnum, gjörningar, lifandi tónlist, brjálaðar innsetningar og svo verður frumsýning á b-myndinni Geimþrá sem nemendur unnu á þessu tímabili.

Sýningin er aðeins opin þennan eina dag.

Tónsmíðatónleikar í beinni útsendingu um helgina

Tónsmíðanemendur 09

Laugardaginn 24. janúar og 25. janúar n.k verða haldnir miðsvetrartónleikar tónsmíðanemenda tónlistardeildar.  Er um tvenna tónleika að ræða sem byrja báðir kl. 17.00. Á tónleikum verða flutt fjölbreytt verk eftir 24 tónsmíðanemendur.

Sú nýjung er á að það verður hægt að hlusta á tónleikana beint á netinu þannig þeir sem ekki eiga heimangengt eða eru staddir í öðru landi eða öðrum landshluta geta notið tónlistarinnar heima í stofu eða annarsstaðar. Útsendingunni er stjórnað af Arnþrúði Gísladóttur og Haraldi Sverrissyni en þau eru bæði nemendur tónlistardeildar.

Tónleikarnir eru í tónleikasal skólans Sölvhól, Sölvhólsgötu 13 og hefjast báðir eins og fyrr segir kl. 17.00.

Laugardagur 24. janúar kl. 17.00 verða flutt verk eftir:

G. Karel Másson, Arndísi Hreiðarsdóttur, Kristínu Bergsdóttur, Brynhildi Oddsdóttur, Ingibjörgu Erlingsdóttur, Þórunni Grétu Sigurðardóttur, Einar Sv. Tryggvason, Völu Gestsdóttur, Þórð Hermannsson, Ingólf Magnússon og Bjarna Biering Margeirsson.

Sunnudaginn 25. janúar kl.17.00 verða flutt verk eftir:

Jón Gunnar Biering Margeirsson, Hafstein Þórólfsson, Harald R. Sverrisson, Sóleyju Stefánsdóttur, Margréti Kristínu Blöndal, Árna Guðjónsson, Erlu Axelsdóttur, Þorbjörn Kolbrúnarson, Kristínu Þóru Haraldsdóttir, Jóhann Friðgeir Jóhannesson, Úlf Hansson og Kristin Evertsson.

Hvetjum við alla til að láta ekki tónleikana fram hjá sér fara. Aðgangur eru ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir.

Slóðin á beina útsendingu er : http://tonlistardeild.lhi.is/tonleikar

Efnisskrá laugardaginn 24. janúar

Efnisskrá sunnudaginn 25. janúar


Dorothée Kirch og Markús Þór Andrésson sýningarstjórar með fyrirlestur

Markús og Doro

Dorothée Kirch og Markús Þór Andrésson, sýningastjórar, halda fyrirlestur um nám og störf sýningarstjóra á vegum Opna Listaháskólans mánudaginn 26. jan. kl 12:30 í stofu 024  í húsnæði myndlistardeildar Listaháskóla Íslands Laugarnesvegi 91 í Reykjavík

Markús Þór Andrésson og Dorothée Kirch vinna saman sem sjálfstæðir sýningarstjórar og eru búsett í Berlín. Þau starfa nú að undirbúningi nokkurra verkefna tengdum samtímalist hér á landi, m.a. að stjórn íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum í sumar.

Í fyrirlestrinum lýsa þau tveggja ára námi sem Markús lauk í sýningarstjórnun í Bandaríkjunum árið 2007.  Þau segja einnig í máli og myndum frá nokkrum sýningum og öðrum verkefnum sem þau hafa komið að og eru í bígerð til þess að varpa ljósi á fjölbreytt hlutverk sýningarstjórans.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.