
Listaháskóli Íslands auglýsir eftir umsóknum um:
Starf háskólakennara í grafískri hönnun
Laust er til umsóknar starf háskólakennara í grafískri hönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild með stöðuheiti lektors, dósents eða prófessors. Umsækjandi skal vera starfandi hönnuður, hafa kennt umtalsvert við viðurkennda háskóla, og hafa meistaragráðu eða sambærilega háskólagráðu á sínu sviði, eða jafngilda þekkingu og reynslu.
Starf háskólakennara skiptist í kennslu, stjórnun og listsköpun / rannsóknir. Hlutfall starfsþátta ræðst af þörfum skólans. Undir kennsluþáttinn fellur almenn kennsla í vinnustofum og fræðakennsla, auk þess sem háskólakennari skipuleggur námið og skapar því umgjörð í samvinnu við deildarforseta og aðra kennara deildarinnar. Þetta felur m.a. í sér að hann hefur umsjón með námi nemenda, veitir þeim ráðgjöf, gagnrýnir verk þeirra og gefur þeim umsagnir, auk þess sem hann stýrir ýmsum verkefnum sem lúta að skólastarfinu.
Mikilvægur hluti af starfinu felst í stjórnun og mótun stefnu fyrir starfsemina, m.a. að vinna að tillögum um nám á meistarastigi við skólann í samvinnu við deildarforseta, kennara og stjórnendur skólans.
Háskólakennari er sjálfstæður listamaður og hönnuður, og er það hluti af hans starfi við skólann að þróa áfram verkefni sín og rannsóknir og miðla afrakstri þeirra og niðurstöðum til samfélagsins. Til þess er ætlast að háskólakennarinn taki þátt í almennri umræðu um sitt fag á opinberum vettvangi og sé virkur þátttakandi í framgangi greinarinnar utan veggja skólans.
Rektor ræður í stöðuna að undangengnu mati dómnefndar sem dæmir um hæfi umsækjenda í samræmi við sérstakar reglur um veitingu akademískra starfa við Listaháskóla Íslands. Við ráðningu í stöðuna er jafnframt litið til þess hversu góða hæfileika ætla megi að umsækjandinn hafi til samstarfs við nemendur og annað samstarfsfólk og hvort eiginleikar hans geti nýst til forystustarfa innan skólans. Ráðningartími er allt að þrjú ár í senn. Launakjör eru samkvæmt samkomulagi.
Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um fagleg störf umsækjanda, rannsóknir og ritsmíðar, fyrirlestra, sýningar, útgefið efni um eigin verk og listferil, og aðrar þær upplýsingar sem tengjast listsköpun hans og hönnun. Einnig skal umsækjandi greina frá viðeigandi vefslóðum og verkum sem hann hefur sett á veraldarvefinn. Afrit af helstu ritsmíðum og útgefnu efni skulu fylgja með umsókninni sem og yfirlit um námsferil og afrit af prófskírteinum. Sérstök greinargerð um kennslustörf skal fylgja umsókn. Loks er ætlast til að umsækjandi skýri frá öðrum helstu störfum sem hann hefur sinnt, þ.m.t. félags- og stjórnunarstörfum, dómnefndarstörfum, ráðgjöf til fagaðila, umsjónarvinnu ýmis konar, og trúnaðarstörfum fyrir stjórnvöld og stofnanir.
Umsóknir skulu stílaðar á rektor og skal þeim skilað ásamt með fylgigögnum á skrifstofu skólans að Skipholti 1, 105 Reykjavík, ekki síðar en mánudaginn 16. mars næstkomandi. Ekki er tekið við umsóknum á rafrænu formi. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Gert er ráð fyrir að háskólakennari hefji störf 1. ágúst 2009 en komi strax í vor að undirbúningi kennslu á næsta skólaári.
Starf háskólakennara í arkitektúr
Laust er til umsóknar starf háskólakennara í arkitektúr við hönnunar- og arkitektúrdeild með stöðuheiti lektors, dósents eða prófessors. Umsækjandi skal vera starfandi arkitekt, hafa kennt umtalsvert við viðurkennda háskóla, og hafa meistaragráðu eða sambærilega háskólagráðu á sínu sviði, eða jafngilda þekkingu og reynslu.
Starf háskólakennara skiptist í kennslu, stjórnun, og listsköpun / rannsóknir. Hlutfall starfsþátta ræðst af þörfum skólans. Undir kennsluþáttinn fellur almenn kennsla í vinnustofum og fræðakennsla, auk þess sem háskólakennari skipuleggur námið og skapar því umgjörð í samvinnu við deildarforseta og aðra kennara deildarinnar. Þetta felur m.a. í sér að hann hefur umsjón með námi nemenda, veitir þeim ráðgjöf, gagnrýnir verk þeirra og gefur þeim umsagnir, auk þess sem hann stýrir verkefnum sem lúta að skólastarfinu.
Mikilvægur hluti af starfinu felst í stjórnun og mótun stefnu fyrir starfsemina, m.a. að vinna að tillögum um nám á meistarastigi við skólann í samvinnu við deildarforseta, kennara og stjórnendur skólans.
Háskólakennari er sjálfstæður listamaður og hönnuður, og er það hluti af hans starfi við skólann að þróa áfram verkefni sín og rannsóknir og miðla afrakstri þeirra og niðurstöðum til samfélagsins. Til þess er ætlast að háskólakennarinn taki þátt í almennri umræðu um sitt fag á opinberum vettvangi og sé virkur þátttakandi í framgangi greinarinnar utan veggja skólans.
Rektor ræður í stöðuna að undangengnu mati dómnefndar sem dæmir um hæfi umsækjenda í samræmi við sérstakar reglur um veitingu akademískra starfa við Listaháskóla Íslands. Við ráðningu í stöðuna er jafnframt litið til þess hversu góða hæfileika ætla megi að umsækjandinn hafi til samstarfs við nemendur og annað samstarfsfólk og hvort eiginleikar hans geti nýst til forystustarfa innan skólans. Ráðningartími er allt að þrjú ár í senn. Launakjör eru samkvæmt samkomulagi.
Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um fagleg störf umsækjanda, byggð verk, þátttöku og árangur í arkitektasamkeppnum, rannsóknir og ritsmíðar, fyrirlestra, sýningar, útgefið efni um eigin verk og listferil, og aðrar þær upplýsingar sem tengjast listsköpun hans og starfsreynslu á sviði arkitektúrs. Afrit af ritsmíðum og útgefnu efni skulu fylgja með umsókninni, svo og útprentaðar heimildir og upplýsingar um helstu verk og tillögur. Ennfremur skulu fylgja yfirlit um námsferil og afrit af prófskírteinum, auk sérstakrar greinargerðar um helstu kennslustörf. Loks er ætlast til að umsækjandi skýri frá öðrum helstu störfum sem hann hefur sinnt, þ.m.t. félags- og stjórnunarstörfum, dómnefndarstörfum í arkitektasamkeppnum, ráðgjöf til fagaðila, umsjónarvinnu ýmis konar, og trúnaðarstörfum fyrir stjórnvöld og stofnanir.
Umsóknir skulu stílaðar á rektor og skal þeim skilað ásamt með fylgigögnum á skrifstofu skólans að Skipholti 1, 105 Reykjavík, ekki síðar en mánudaginn 16. mars næstkomandi. Ekki er tekið við umsóknum í rafrænu formi. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Gert er ráð fyrir að háskólakennari hefji störf 1. ágúst 2009 en komi strax í vor að undirbúningi kennslu á næsta skólaári.