Myndlistarkonan Sara Riel fjallar um eigin verk

Sara Riel

Myndlistarkonan Sara Riel fjallar um eigin verk í hádegisfyrirlestri  Opna Listaháskólans mánudaginn 23. febrúar kl 12.30,  í húsnæði myndlistardeildar Listaháskólans, Laugarnesvegi 91 í Reykjavík.

Sara Riel (1980) er búsett og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist úr Kunsthochschule Berlin-Weissensee 2005 og 2006 vann hún til DAAD-verðlauna sama skóla og var sæmd titlinum Meisterschuler. Strax á námsárunum varð hún virk í sýningarhaldi og hefur síðan sýnt verk sín út um allan heim.

Í verkum sínum nýtir Sara sér þær aðferðir sem heimurinn býður upp á til þess að koma ákveðnum atburðum, upplifunum úr raunveruleikanum, tilbúnum sögum eða augnablikum á framfæri. Verkin eru frásagnarkennd, þó margræðin og opin. Útfærslur Söru eiga sér rætur og vísa til götulistar (Urban Art)-Popart,  teiknimyndahefðar, conseptual- og minimalisma og (grafískrar) hönnunar.

Nú stendur yfir sýning Söru FARMIÐINN HEIM í Kling og Bang gallerí við Hverfisgötu í Reykjavík. Nánar um  list Söru Riel: www.sarariel.com

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Háskóladagurinn - kynning á námsframboði allra háskóla landsins


HÁSKÓLADAGURINN - LAUGARDAGINN 21. FEBRÚAR KL. 11.00-16.00

Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt í Ráðhúsi Reykjavíkur og í Háskóla Íslands en um 500 námsleiðir er að ræða.

Laugardaginn 21. febrúar kynna háskólar landsins námsframboð sitt fyrir næsta skólaár. Kynningin fer fram á tveimur stöðum í borginni. Í  Ráðhúsi Reykjavíkur verða Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands. Háskóli Íslands kynnir sitt nám í Háskólanum. Einnig er  á sama tíma boðið upp á kynningu á framhaldsnámi í Danmörku og Svíþjóð  í Norræna húsinu.

Persónuleg ráðgjöf um mikilvæga ákvörðun

Nemendur háskólanna, kennarar og námsráðgjafar taka á móti gestum og miðla af reynslu sinni. Margir gestanna eru að taka einhverja stærstu ákvörðun ævinnar, möguleikarnir eru margir og skiptir máli að vanda valið. Gott tækifæri gefst til þess á þessum sameiginlega kynningardegi þar sem kynntar eru yfir 500 mismunandi námsleiðir.

Sex háskólar kynna námsframboð sitt í Ráðhúsi Reykjavíkur

Í Ráðhúsi Reykjavíkur kynna sex  háskólar fjölbreytt námsframboð á grunn- og meistarastigi: Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands. Námsframboð þessara skóla er, eins og nöfn þeirra bera með sér, ákaflega fjölbreytt og spannar allt frá hrossarækt og myndlist yfir í hefðbundnari greinar háskólanáms á borð við viðskiptafræði og lögfræði. Kennarar, nemendur og námsráðgjafar verða á staðnum og veita upplýsingar um allt nám sem þessir skólar bjóða.

haskoladagur

Gerla: Leitin að gleymdum kvensnillingum

Gerla kvensnillingar

Gerla, Guðrún Erla Geirsdóttir,  fjallar um leitina að gleymdum kvensnillingum í myndlistarsögunni í hádegisfyrirlestri Opna Listaháskólans mánudaginn 16.febrúar kl 12:30 í húsnæði  myndlistardeildar LHÍ Laugarnesvegi 91 í Reykjavík.

Gerla, Guðrún Erla Geirsdóttir (myndhöfundur og listfræðingur) ætlar í fyrirlestri  sínum að bregða ljósi á það hvers vegna svo fáar konur er að finna í  listasögubókum. Hún mun greina frá því sem kemur í ljós þegar ekki er látið staðar numið við þá klisju að ástæða þess sé sú að þær fengu  ekki tækifæri til að afla sér þeirrar þjálfunar, færni og reynslu sem þurfi til að verða framúrskarandi í myndlistinni. Fyrirlestur sinn byggir Gerla á ritgerð sem hún skrifaði í námi sínu í listfræði við Háskóla Íslands, en hún var í fyrsta hópnum sem innritaðist í  deildina þegar farið var að kenna listfræði til BA-prófs.

Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Tónleikar Strengjasveitar Listaháskóla Íslands

Strengjasveit 2009

Árlegir tónleikar Strengjasveitar Listaháskóla Íslands verða haldnir í Neskirkju sunnudaginn 15. febrúar kl. 17.00.

Á efnisskránni, sem verður bæði fjölbreytt og skemmtileg, verða verk eftir W. A. Mozart, Jón Ásgeirsson og Benjamin Britten.

Flutt verður hið bráðskemmtilega verk Mozarts “Ein musikalischer Spass” fyrir tvö horn og strengi, eftir Jón Ásgeirsson verður flutt hið sérstaklega fallega verk “Sjöstrengjaljóð” (1968) og tónleikunum lýkur á hinu glæsilega strengjaverki “Simple Symphony” eftir Benjamin Britten.

Stjórnandi strengjasveitarinnar er Gunnar Kvaran. Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Strengjasveit LHÍ 2009 skipa

1. fiðla: Hulda Jónsdóttir konsertmeistari
Jane Ade Sutarjo
Viktor Orri Árnason
Marie-Leonie Morfamet

2. fiðla: Sigrún Harðardóttir
Úlfhildur Þorsteinsdóttir
Ísak Ríkharðsson
Simon Claude Philippe Gilbert

Víóla: Bjarni Fríman Bjarnason
Kristín Þóra Haraldsdóttir
Eydís Ýr Rosenkjær
Þórunn Harðardóttir

Selló: Karl Jóhann Bjarnason
Ragnar Jónsson

Kontrabassi: Richard Korn

Horn: Bergrún Snæbjörnsdóttir
Arve Erikson

Hádegistónleikar á Myrkum músíkdögum. Sönglög í flutningi söngnema LHÍ

Söngnemar 2009 2

Sönglög í flutningi söngnema tónlistardeildar Listaháskólans er yfirskriftin á hádegistónleikum á Myrkum músíkdögum fimmtudaginn 12.febrúar n.k. kl. 12.15. Meðleikari er Anna Rún Atladóttir.

Tónleikarnir eru í Sölvhóli, Sölvhólsgötu 13.