Tuttugu prósent fjölgun umsókna í Listaháskólann

Laugarnes

Listaháskólinn hefur auglýst eftir umsóknum um nám í myndlistardeild, tónlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild. Frestur til að skila inn umsóknum rann út 27. mars.  Alls bárust um 480 gildar umsóknir sem er um tuttugu prósent fleiri umsóknir en bárust um nám í þessum deildum í fyrra.  Aðeins er reiknað með að skólinn geti tekið við um fimmtungi þessa hóps.

Flestar eru umsóknir um nám í hönnunar- og arkitektúrdeild eða um 300. Þær skiptast á milli fjögurra brauta þannig að um 90 sækja um nám í arkitektúr, 90 um grafíska hönnun, 56 sækja í fatahönnun og 63 í vöruhönnun.  Fjölgun umsókna er mest í fatahönnun og vöruhönnun, en á hinum brautunum er þetta svipaður fjöldi og sótti um nám í fyrra.

Umsóknir um nám í tónlistardeild eru 62, þar af eru yfir fjörtíu um nám í tónsmíðum þar sem hefur verið talsverð fjölgun síðustu ár. Umsóknum fjölgaði einnig um nám í myndlistardeild. Alls bárust að þessu sinni 117 umsóknir um nám, sem er umtalsverð fjölgun frá því í fyrra.

Til að sækja um nám við Listaháskólann þurfa nemendur ýmist að senda inn  fjölbreytilegt efni sem endurspeglar þekkingu þeirra og kunnáttu í listgreininni, s.s. í myndlist eða hönnun, eða taka próf og fara í stöðumat, eins og í tónlist.  Sérstakar inntökunefndir meta umsóknir og eru þeir sem komast í úrtakshópa boðaðir í viðtöl.  Aðeins um eitt hundrað nemendur komast svo til náms í þessum greinum í skólanum.

Í Listaháskólanum er einnig boðið upp á meistaranám í listkennslu og tónsmíðum en auglýst verður eftir umsóknum í meistaranám síðar. Umsóknarfrestur í listkennsludeild er til 30. apríl n.k.  Ekki var auglýst eftir umsóknum um nám í leiklistardeild þar sem aðeins er tekið inn í deildina annaðhvert ár.

Sextíu og fimm nemendur útskrifast með diplómagráðu frá Prisma

prisma

Föstudaginn 27. mars s.l. útskrifuðust 65 nemendur með diplómagráðu frá Prisma, sem er nýtt þverfaglegt diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa skipulagt í samvinnu við Reykjavíkur Akademíuna.

Menntamálaráðherra var viðstaddur athöfnina og ávarpaði útskriftarnemendurnar og einnig fluttu ávarp Hjálmar H. Ragnarsson rektor Listaháskólans,  Ágúst Einarsson rektor Háskólans á Bifröst og Hrund Gunnsteinsdóttir forstöðumaður Prisma.

Metaðsókn var í Prisma sem stóð frá 2. febrúar  - 27. mars. Námið er metið til 16 eininga (ECTS) á háskólastigi og byggir á skapandi og gagnrýninni hugsun. Burðarfögin í Prisma eru heimspeki og fræðigreinar lista en fjölmörg önnur fög þræðast inn í kennsluna, s.s. markaðsfræði, mannfræði, ímyndafræði, menningarfræði og -stjórnun, tónmiðlun, skapandi skrift og frumkvöðlafræði.  Námið nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Yfir hundrað nemendur sóttu um í námið og var bæði andinn og afraksturinn í náminu framar vonum. Nemendur voru á aldrinum 20 til 65 ára, með mjög fjölbreyttan bakgrunn hvað menntun og starfsgreinar varðar.  Í nemendahópnum voru  einstaklingar sem koma úr fjármálageiranum, viðskiptum og verslun, grafískri hönnun, arkitektúr, myndlist, leiklist, fyrirtækjarekstri, kennslu osfrv. Um 50 sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu koma að kennslu.

Opnað hefur verið á ný fyrir skráningu nemenda í Prisma vegna mikillar eftirspurnar og verður námið endurtekið 27. apríl og lýkur 19. júní.

Hægt er að nálgast upplýsingar um námið og námslýsingu hér: http://www.bifrost.is/islenska/namsleidir/prisma-nytt-diplomanam/

Kristinn G. Harðarsson sýnir í Kubbnum

Kubbur Kristinn Hrafnsson

Kristinn G. Harðarson sýnir í Kubbnum 6. mars - 3.apríl 2009

Sýning Kristins  G. Harðarsonar,   Skjól, sem stendur yfir í Kubbnum í Laugarnesi hefur verið framlengd til 3. apríl n.k. Sýningin er unnin í samstarfi við nemendur í Listfræði við Háskóla Íslands og myndlistardeildar Listaháskóla Íslands.

Verkin á sýningunni Skjól eru unnin eftir völdum skissum sem Kristinn hefur unnið undanfarin ár. Verkin eru unnin undir áhrifum frá lógóum, skiltum, merkjum og slíkum fyrirbærum þar sem texti og hið sjónræna
mynda eitt verk.  Fyrirmyndirnar í hin einstöku verk eru að miklu leyti til sóttar í fjölmiðla nútímans og einnig tilfallandi myndefni og texta í nærumhverfi listamannsins. Það má því segja að þetta sér bræðingur þess myndefnis og texta sem flæðir um í umhverfi Kristins í erli dagsins.

Á sýningunni eru 45 prentaðar myndir sem Kristinn hefur unnið með blandaðri tækni og 3 veggmálverk.  Verkin á sýningunni verða einnig til sölu á meðan sýningin stendur yfir.

Í tengslum við opnun sýningarinnar verður haldinn fyrirlestur sem fluttur er af nemendum um feril listamannsins í fyrirlestrarsal Listaháskóla Íslands, Laugarnesi kl. 17.00, þann 6. mars.
Í kjölfarið opnar sýningin sjálf kl 18.00 og vefur sýningarinnar á sama tíma, en slóðin er http://www.kgh.is/skjol/.

Sýningin er opin alla virka daga milli kl. 13.00 og 16.00 en um helgar milli kl. 13.00 og 17.00. Sýning stendur yfir til 29. mars.

Útskriftartónleikar Listaháskólans

Útskriftartónleikar 2009 mynd

Þriðjudaginn 31. mars hófst röð útskriftarviðburða tónlistardeildar Listaháskólans en það er Björg Þórsdóttir, sópran sem kom  fram í Listasafni Íslands það kvöld.

Nú í vor útskrifar tónlistardeild Listaháskóla Íslands nítján nemendur. Tónleikarnir eru tólf talsins og standa til 14. maí n.k.  Þar verða m.a. flutt ný verk eftir tónsmíðanemendur auk þess sem fram koma söngvarar og ungir einleikarar á víólu, flautu, píanó og gítar. Þá verðar þrír fræðifyrirlestrar.

Útskriftartónleikar Listaháskólans eru kjörið tækifæri til að skyggnast inn í framtíð íslensks tónlistarlífs en margir þeirra nemenda sem þar koma fram hafa þegar vakið athygli sem efnilegir listamenn, og stefna ýmist að því að hella sér út í atvinnulífið, eða í framhaldsnám við virtar erlendar stofnanir.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir en flestir tónleikana fara fram í Salnum í Kópavogi.

Efnisskrá útskriftartónleika 2009- pdf

Björg Þórsdóttir, sópran

Þriðjudagur 31. mars, kl. 20.00

Listasafn Íslands


Kristína G. Guðnadóttir, tónlistarkennsla

Jean Rémi Chareyre, tónlistarkennsla

Arnþrúður Gísladóttir, tónlistarkennsla

Föstudagur 3. apríl, kl. 20.00

Salurinn í Kópavogi


Haraldur Rúnar Sverrisson, tónsmíðar

Helga Ragnarsdóttir, tónsmíðar

Haukur Ísfeld Ragnarsson, tónsmíðar

Mánudagur 20. apríl, kl. 20.00

Salurinn í Kópavogi


Eydís Ýr Rosenkjær, víóla

Miðvikudagur 22. apríl, kl. 20.00

Salurinn í Kópavogi


Sólborg Valdimarsdóttir, píanó

Föstudagur 24. apríl, kl. 20.00

Salurinn í Kópavogi


Bjarni Frímann Bjarnason, víóla

Mánudagur 27. apríl, kl. 20.00

Salurinn í Kópavogi

Helgi Rafn Ingvarsson, tónsmíðar

Jóhann Friðgeir Jóhannsson, nýmiðlar

Þriðjudagur 28. apríl, kl. 20.00

Salurinn í Kópavogi


Hafdís Pálsdóttir, píanó

Fimmtudagur 30. apríl, kl. 20.00

Salurinn í Kópavogi


Rut Berg Guðmundsdóttir, flauta

Þriðjudagur 5. maí, kl. 20.00

Salurinn í Kópavogi


Grétar Geir Kristinsson, gítar

Miðvikudagur 6. maí, kl. 20.00

Salurinn í Kópavogi


Kristín Þóra Haraldsdóttir, víóla

Föstudagur 8. maí, kl. 17.00

Salurinn í Kópavogi


Jón Gunnar Biering Margeirsson, gítar

Miðvikudagur  13. maí, kl. 20.00

Salurinn í Kópavogi


Þráinn Hjálmarsson, tónsmíðar

Ásgeir Aðalsteinsson, nýmiðlar

Fimmtudagur 14. maí, kl. 20.00

Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir

Troðfullt út að dyrum á tískusýningu á Nasa

Tískusýning 2. árs 2009 1

Troðfullt var út að dyrum og mikil stemning á tískusýningu nemenda á öðru ári í fatahönnun við Listaháskóla Íslands á skemmtistaðnum Nasa s.l. föstudag. Þar sýndu 10 nemendur fatalínur sínar en mörg hundruð manns voru komnir til að sjá og fylgjast með framtíðarsýn í fatahönnun.