Fimmtudaginn 26. mars s.l. var ný íslensk Sjónabók kynnt í Þjóðminjasafni Íslands en útgáfa hennar er mikill áfangi í sjónmenningu landsins.
Sjónabók er handrit með munstrum sem notuð voru í útsaumi, útvefnaði og til ýmissa hannyrða áður fyrr. Bókin inniheldur safn tíu íslenskra sjónabóka frá 18. og 19. öld, sem eru þær einu sem vitað er að varðveist hafa.
Sjónabókinni er ætlað að vera brunnur hugmynda að nýsköpum með sterkri tilvísun í sérstakan íslenskan menningararf en hönnuður hennar er Birna Geirfinnsdóttir.
Hugmyndina að Sjónabókinni má reka til haustsins 2007, en þá var haldið norrænt Heimilisiðnaðarþing á Íslandi á vegum Heimilisiðnaðarfélags Íslands. Þar var sjónum beint að heimilisiðnaði á Norðurlöndum með áherslu á sérkenni hvers lands. Hugað var að því hvernig menningararfur hverrar þjóðar gæti veitt listamönnum og hönnuðum innblástur. Hin íslensku sjónabókarhandrit í Þjóðminjasafni Íslands vöktu athygli í þessu samhengi.
Þá kom fram sú hugmynd að gefa út handbók með sjónabókunum í samstarfi Heimilisiðnaðarfélags Íslands, hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands og Þjóðminjasafns Íslands, sem leiddi til þess að gerður var þríhliða samningur þessara aðila um útgáfu handbókarinnar. Voru munstrin teiknuð upp á rafrænu formi og birtast nú öll saman á bók.
















