Síðasta sýningarhelgi á Útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands.
Verk nemenda úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild
Í Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum.
Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 3. maí n.k.
Framundan er síðasta sýningarhelgi á útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands á Kjarvalsstöðum en síðasti sýningardagur er n.k. sunnudagur 3. maí.Sýningin hefur hlotið frábærar aðsókn en frá opnun hafa þegar rúmlega sex þúsund manns sótt hana.
Verk nemenda á sýningunni eru afrakstur þriggja ára náms við Listaháskólann þar sem markmiðið hefur verið að skapa nemendum aðstöðu til að mennta sig sem listamenn og gera þá reiðubúna til að takast á við víðtæk viðfangsefni á skapandi og gagnrýninn hátt.
Í ár eru um 70 útskriftarnemendur sem sýna verk sín, 47 í hönnunardeild og 22 í myndlistardeild en það sem getur að líta á sýningunni eru m.a. vídeóskúlptúrar, ljósmyndir, furðuverur, maríubjalla, innsetningar, útiverk, klippimyndir, draumfarir, málverk, teikningar, gjörningar, veggflétta, rannsóknarstofa, púðasería, borgarbókasafn, veggklukka, friðasúlur, veggspjöld, hurð og margt fleira.
Sýningin stendur til 3. maí eins og fyrr segir og er opin daglega frá 10.00 - 17.00. Sýningarstjórar eru: Finnur Arnar Arnarsson, Kristján Örn Kjartansson og Kristján Eggertsson.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

















