Prisma hófst aftur í gær, mánudaginn 27. apríl í Hlíðarsmára 3 í Kópavogi. Þrjátíu og átta nemendur eru skráðir að þessu sinni. Sem fyrr er nemendahópurinn fjölbreyttur með tilliti til aldurs, menntunar og reynslu. Yfir 40 fyrirlesarar víðsvegar að úr samfélaginu koma að kennslu og í þetta sinn varir Prisma í 6 vikur og er metið til 12 eininga (ECTS) á háskólastigi.
Prisma er nýtt þverfaglegt diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa skipulagt í samvinnu við Reykjavíkur Akademíuna. Námið er metið til 12 eininga (ECTS) á háskólastigi og nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Metaðsókn var í Prisma sem hófst 2. febrúar og lauk 27. mars. Yfir hundrað nemendur sóttu um í námið og var bæði andinn og afraksturinn í náminu framar vonum. Námið var skipulagt sem viðbrögð háskólanna við ástandinu í landinu og sátu námið nemendur á aldrinum 20 til 65 ára, með mjög fjölbreyttan bakgrunn hvað menntun og starfsgreinar varðar. Í nemendahópnum voru einstaklingar sem koma úr fjármálageiranum, viðskiptum og verslun, grafískri hönnun, arkitektúr, myndlist, leiklist, fyrirtækjarekstri, kennslu osfrv.
Prisma er metið til 12 eininga (ECTS) á háskólastigi. Námið nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Meginþáttur í aðferðafræði kennslu og fyrirkomulags er skapandi og gagnrýnin hugsun en burðargreinar eru listfræði og heimspeki. Mörgum tengdum fögum er fléttað saman við meginþátt námsins s.s. ímyndafræði, menningarstjórnun, frumkvöðlafræði, hönnun og tíðaranda, myndmálssögu, tónlistarsögu og –miðlun, skapandi skrifum, aðferðafræði myndlistar og leikhúss, arkitektúr og skipulagi, miðlunarfræði, mannfræði, markaðsfræði og stjórnun. Að auki er boðið upp á gestafyrirlestra einu sinni í viku þar sem sérfræðingar segja frá því sem er að gerast í stefnumótun, rannsóknum og nýsköpun í samfélaginu og utan landssteinanna.
Yfir 40 sérfræðingar koma að náminu:
Yfir fimmtíu sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu koma að kennslu í Prisma. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur og sálgreinandi, Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og heimspekingur, Jóhann P. Malmqvist, frumkvöðull og prófessor í verkfræði, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Andri Snær rithöfundur, Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, Sveinbjörn I. Baldvinsson, handritshöfundur, Viðar Hreinsson framkvæmdarstjóri Reykjavíkur Akademíunnar, Hjálmar Ragnarsson, rektor LHÍ og tónskáld, Sigríður Ingvarsdóttir, rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs hjá Nýsköpunarmiðstöð, Halldór Guðmundsson rithöfundur, Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, Dóra Ísleifsdóttir, fagstjóri í grafískri hönnun og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður.
Markmið með náminu:
1. Þverfagleg þekking
Nemendur styrki þverfaglega menntun sína sem gerir þeim kleift að setja ólíkar starfsgreinar, fræðigreinar, hugmyndir og hluti í samhengi og starfa á fleiri sviðum en áður.
2. Fleiri verkfæri í verkfæratöskuna
Nemendur öðlist þau verkfæri, þekkingu, reynslu og stuðning sem geta nýst þeim til að efla stöðu sína sem uppbyggilegir, skapandi og gagnrýnir þátttakendur í samfélaginu og láta framsæknar hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum.
3. Menntun á háskólastigi
Að námi loknu fá nemendur diplóma sem metið er til 12 eininga (ECTS) á háskólastigi. Nemendur sem ætla sér frekari menntun við Háskólann á Bifröst eða Listaháskóla Íslands geta fengið hluta námsins metið inn í nám á bakkálár- og meistarstigi, að gefnum ákveðnum skilyrðum.
4. Umbreyting
Lykilorðið í náminu er umbreyting. Nemendur fá tækifæri til að gaumgæfa þær umbreytingar sem eru að eiga sér stað í samfélaginu útfrá fjölbreyttum sjónarhornum undir leiðsögn sérfræðinga. Í slíku umhverfi verða vandamál að tækifærum, hindranir að flóðgáttum og hugmyndafræðilegt hrun að upphafi á nýjum og spennandi tímum.
Skipulag námsins og fyrirkomulag:
Kennsla fer fram á hverjum virkum degi í Hlíðasmára 3 á annarri hæð, í húsnæði sem Eimskip lánar endurgjaldslaust til námsins, og í þrjá miðvikudaga fer kennsla fram í Háskólanum á Bifröst. Heildarfjölda nemenda verður skipt niður í fjóra hópa sem hver hefur sinn hópstjóra eða umsjónarkennara. Námið er á háskólastigi og ætlað fólki sem hefur að lágmarki stúdentspróf eða jafngildi þess.
Námsgjald í Prisma er 110.000 krónur og geta nemendur sótt um niðurgreiðslu á skólagjöldum frá stéttarfélögum, fagfélögum og Vinnumálastofnun. Sem dæmi greiðir Blaðamannafélagið 100% skólagjöld fyrir atvinnulausa félagsmenn, VR niðurgreiðir 50-70% af skólagjöldum fyrir félagsmenn að gefnum ákveðnum skilyrðum og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja niðurgreiða helming skólagjalda. Nemendur geta valið um að taka Prisma til 12 eininga (ECTS) en þá halda þeir jafnframt atvinnuleysisbótum sínum frá Vinnumálastofnun. Að auki geta þeir nemendur í 12 eininga (ECTS) Prisma námi sótt um niðurgreiðslu hjá Vinnumálastofnun ásamt því að halda bótum, en hver umsókn um niðurgreiðslu er metin fyrir sig. Þeir nemendur sem taka Prisma til 12 eininga (ECTS) hafa ekki möguleika á að halda atvinnuleysisbótum á meðan á námi stendur.
Skilyrði fyrir inngöngu er stúdentspróf eða jafngildi þess, og hafa nemendur einnig BA, BSc og meistaragráður.
Nánari upplýsingar veitir:
Hrund Gunnsteinsdóttir forstöðumaður Prisma í síma 895 6371/4584508 eða á hrund@lhi.is. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um námið og námslýsingu hér: http://www.bifrost.is/islenska/namsleidir/prisma-nytt-diplomanam/
















