
Deadhead’s Lament
Nemendaleikhússýning dansbrautar Listaháskólans
Í Hafnarfjarðarleikhúsinu 14. maí - 23. maí.
Fimmtudaginn 14. maí var frumsýnt dansverkið Deadhead’s Lament en það er nýtt dansverk sem nýsjálenski danshöfundurinn Tony Vezich hefur samið sérstaklega fyrir útskriftarnemendur dansbrautar leiklistardeildar Listaháskóla Íslands. Þar stíga fram á á sjónarsviðið fimm danslistamenn framtíðarinnar. Það er þau: Ásgeir Helgi Magnússon, Vigdís Eva Guðmundsdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson, Snædís Lilja Ingadóttir, Sigríður Soffía Níelsdóttir. Þessi kraftmiklu einstaklingar eru þeir fyrstu til þess að útskrifast með B.A. gráðu í dansi frá íslenskum háskóla. Þetta er stór áfangi í sögu listdans á Íslandi en um leið aðeins fyrsta skrefið inn í framtíðina.
Aðstandendur sýningar:
Danshöfundur: Tony Vezich
Dansarar: Ásgeir Helgi Magnússon, Vigdís Eva Guðmundsdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson, Snædís Lilja Ingadóttir, Sigríður Soffía Níelsdóttir
Lýsing og tæknistjórn: Egill Ingibergsson
Búningar: Sruli Recht
Dramatúrg: Karen María Jónsdóttir
Tónlist: Boris, Burial Hex, Steve Roden, Goslings, Birchville og Cat Motel
Tæknimaður: Garðar Borgþórsson
Um Sýninguna: Það býr myrkur innra með okkur öllum. Jafnvel þegar við dveljum við hugmynd sem felur í sér öryggi og ljós, þá er það ekki gerlegt án þess að hugleiða um leið andstæðuna - fólskuna og uppsvelgjandi myrkrið. Totem-dýr sem trúað er á eða Andi sem veitir leiðsögn, eru óhugsandi án andstæðs totem-drýsils. Í viðleitni okkar til að láta gott af okkur leiða hlýtur hvert og eitt okkar að eiga í baráttu við eitthvað, hvort sem um er að ræða þrælatök fíknar, innibyrgða árásarhvöt, uppsvelgjandi græðgi, eða hina endanlegu undanlátssemi við sjálfseyðilegginguna. Við forðumst í lengstu lög að dansa við okkar myrkara sjálf, og eftir standa verksummerkin líkt og slitrótturreykjarslóði, eftirhreytur af hvirfilbylnum sem býr innra með okkur.
Áætlaður sýningarfjöldi eru sex sýningar og standa þær til 23. maí n.k.
Sýningardagar:
Fimmtudagur 14. maí, kl.20.00 - Frumsýning
Föstudagur 15. maí, kl.20.00
Laugardagur 16. maí, kl.17.00
Fimmtudagur 21. maí, kl.20.00
Föstudagur 22. maí, kl.20.00
Laugardagur 23. maí, kl.20.00
Miðasala er í s: 555 2222 og á midi.is.