Úthlutun úr Tækniþróunarsjóði

rannis-logo

Listaháskóli Íslands er samstarfsaðili þriggja verkefna sem hlotið hafa styrk úr Tækniþróunarsjóði. Auk almennra verkefnastyrkja var úthlutað í fyrsta skipti sérstökum öndvegisstyrkjum úr sjóðnum, annarsvegar á sviði sjálfbærrar ferðaþjónustu og hinsvegar á sviði vistvænna bygginga og skipulags.

Einungis þrjú verkefni hlutu öndvegisstyrki, og er Listaháskólinn aðili að tveimur þeirra. Verkefnin eru Betri borgarbragur undir verkefnisstjórn Björns Marteinssonar hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Matur og sjálfbær ferðaþjónusta undir stjórn Guðmundar Heiðars Gunnarssonar hjá Matís ohf. Auk þessa er skólinn samstarfsaðili verkefnisins ISdesign undir stjórn Guðrúnar Lilju Gunnlaugsdóttur hjá Bility á Íslandi ehf. Öll verkefnin eru unnin í samstarfi við kennara hönnunar- og arkitektúrdeildar og flæða inn í kennslu nemenda í arkitektúr og vöruhönnun.

Sjóðnum bárust að þessu sinni 164 umsóknir um almenna verkefnisstyrki, sem er næstum þrefalt fleiri en á sama tíma í fyrra, og 16 umsóknir bárust um öndvegisstyrki. Stjórn sjóðsins hefur boðið 27 verkefnisstjórum að ganga til samninga í fyrrnefnda flokknum og 16 í hinum síðarnefnda.

Almennir styrkir úthlutun - pdf

Öndvegissstyrkir úthlutun - pdf

Mikil aðsókn í Listkennsludeild Listaháskólans á haustönn 2009

kennaranam09

Umsóknarfrestur um kennaranám fyrir listamenn í LHÍ rann út þann 8. maí síðastliðinn. Umsóknir sem bárust voru 60, sem er langt umfram það sem skólinn getur orðið við. 
 Umsækjendur komu úr öllum listgreinum en fjölmennasti hópurinn meðal umsækjenda eru arkitektar, hönnuðir og myndlistarmenn.

Listkennsludeild Listaháskólans býður nú í fyrsta sinn meistaranám í kennslu og miðlun. Námið miðar að því að þjálfa listamenn til kennslu og efla með þeim kunnáttu til að miðla þekkingu sinni og færni. Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskólaprófi eða sambærilegu námi í myndlist, hönnun, leiklist eða tónlist.

Með því að mennta listamenn til kennslustarfa vill skólinn efla hlut lifandi lista í fræðslu og menntun allra landsmanna og auka skilning á gildi skapandi hugsunar í öllu skólastarfi.

Inntökunefnd Listkennsludeildar hefur lokið störfum.  Af þeim 60 umsóknum sem bárust var 25 umsækjendum boðin skólavist. Þar af eru 13 nemendur sem hefja nám á fyrsta ári í meistaranámi og 12 í diplómanámi til kennsluréttinda.  Ákveðið var að taka ekki inn á annað ár í meistaranámi fyrr en á næsta skólaári.

Japönsk-íslensk tónsmiðja í Norræna húsinu

gedai-koto-nishioka

Dagana 13. júní til 13. júlí 2009 verður boðið upp á fjölbreytta japanska menningardagskrá í Norræna húsinu sem samanstendur af bæði litríkri sýningu og viðburðum af ýmsu tagi. Á þessu tímabili tekur Norræna húsið á móti fjölmörgum hönnuðum, tónlistarmönnum, fyrirlesurum og öðrum áhugaverðum gestum frá Japan. Gestirnir njóta allir mikillar virðingar í Japan sem og erlendis fyrir störf sín.

Á dagskránni verður m.a. í gangi japönsk-íslensk tónsmiðja en í henni taka þátt tónlistarmenn og tónsmiðir frá Listaháskóla Íslands og Listaháskólanum í Tókýó (Gedai). Í lok tónsmiðjunnar, laugardaginn 27. júní kl. 17.00-19.00 verður svo frumflutt klassískt-ofurnútímalegt verk sem er samið sérstaklega í tilefni af Japansdagskránni.

Hugmyndin með dagskrá Norræna hússins er að stuðla að nýjum og spennandi tenglsum milli Japans og Íslands. Í stað þess að flytja inn tiltekna sýningu frá Japan var farin sú leið að fá japanska listamenn og sérfræðinga af ýmsum sviðum til að sækja Norræna húsið heim og kenna, sýna, útskýra, flytja tónlist - og jafnvel fá okkur til að hugsa um te og textíl á nýjan hátt. Það er von aðstandenda að heimsóknirnar í sumar muni gleðja sem flesta og jafnframt stuðla að nýjum tengslum og tækifærum fyrir íslenska listamenn í Japan þegar fram líða stundir.


Prisma útskrifar annan nemendahópinn á þessu ári!

Prisma útskrift 2

Prisma útskrifar annan nemendahópinn á þessu ári !

  • Alls hafa 86 nemendur útskrifast með diplómagráðu frá Prisma
  • Skapandi og gagnrýnin hugsun í þverfaglegu námi
  • Námið sjálft er nýsköpun á Íslandi

Annar nemendahópurinn í Prisma útskrifaðist með pompi og prakt með diplóma frá Listaháskóla Íslands og Háskólanum á Bifröst á fimmtudaginn 11. júní. Útskriftin fór fram í Hugmyndahúsi Háskólanna (gamla Ellingsen húsinu).  Að þessu sinni útskrifuðust 22 nemendur með gráðu í Prisma en í lok mars útskrifuðust 64 nemendur.

Rektorar LHÍ og Háskólans á Bifröst og forstöðukona Prisma ávörpuð gesti og Gjörningaklúbburinn (Icelandic Love Corporation) settti álög á útskriftahópinn.

Prisma er nýtt diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa skipulagt í samvinnu við Reykjavíkur Akademíuna. Námið er að þessu sinni metið til 12 eininga (ECTS) á háskólastigi og nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Metaðsókn hefur verið í Prisma frá því það hóf göngu sína í byrjun árs en yfir 150 manns hafa sótt um í Prisma. Námið var skipulagt sem viðbrögð háskólanna við ástandinu í landinu og nú sitja námið nemendur á aldrinum 20 til 67 ára, með mjög fjölbreyttan bakgrunn hvað menntun og starfsgreinar varðar. Í nemendahópnum eru einstaklingar sem koma úr fjármálageiranum, viðskiptum og verslun, grafískri hönnun, arkitektúr, heilbrigðisgeira, myndlist, leiklist, fyrirtækjarekstri, kennslu osfrv.

Yfir 50 sérfræðingar koma að náminu

Yfir fimmtíu sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu koma að kennslu í Prisma. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur, Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur og sálgreinandi, Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og heimspekingur, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Andri Snær rithöfundur, Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, Viðar Hreinsson framkvæmdarstjóri Reykjavíkur Akademíunnar, Hjálmar Ragnarsson, rektor LHÍ og tónskáld, Kristján Leósson vísindamaður við HÍ, Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður.

Utan um nemendahópana hafa haldið fjórir „auðveldarar”. Þau Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt, Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur og M.A. í menningarfræðum, Sigurður Jónas Eysteinsson, lífskúnstner og sérfræðingur á ýmsum sviðum, Hallmar Sigurðsson leikhúsfræðingur og M.A. í menningarfræðum.

Eimskipafélagið hefur sýnt Prisma stuðning í verki með því að lána húsnæði undir námið og sýnt með því fordæmi um samfélagslega ábyrgð sem vert er að hrósa fyrir.

Hér má lesa útskriftarræðu forstöðukonu Prisma

Tónverk fyrir þokulúðra

thokuludrar

Hátíð hafsins var haldin hátíðlega helgina 6.-7. júní í Reykjavík og í ár var hún með nýju sniði. Grandagarðinum var lokað fyrir almennri bílaumferð frá föstudagskvöldi fram á sunnudagskvöld og þar var hátíðarsvæðið að þessu sinni.

Nemendur í tónsmíðum í tónlistardeild Listaháskólans frumfluttu afar tilkomumikið tónverk fyrir þokulúðra á hátíðinni en þetta er í fyrsta sinn sem eitthvað þessu líkt er gert.  Verkið var flutt á þokulúðra þeirra skipa sem í höfninni voru m.a. norskt varðskip. Tónleikunum var stýrt í gegnum talstöð af  Kjartani Ólafssyni prófessor í tónsmíðum. Flutningurinn hófst rétt fyrir klukkan 14.00 á laugardeginum og barst hljómur þess víða um bæinn.