Hvernig hefur nám þitt við Listaháskólann nýst þér sem grunnur til frekara náms?

Síðastliðinn vetur var framkvæmd rannsókn meðal útskrifaðra nemenda Listaháskóla Íslands. Teknir voru fyrir tveir hópar sem luku námi árin 2003 og 2006. Markmið könnunarinnar var meðal annars að skoða nám og störf útskrifaðra en talið er að slík þekking geti aðstoðað skólann til að meta eigið starf.
Þátttakendur voru beðnir um að leggja mat á nám sitt í Listaháskólanum og taldi mikill meirihluti námið hafa nýst þeim vel í verkefnum og störfum. Þeir voru einnig beðnir um að taka afstöðu til fullyrðinga um LHÍ sem mennta- og menningarstofnun ásamt því að lýsa stöðu sinni varðandi störf og framhaldsnám.
| Mán | Þri | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
- Miðvikudaginn 8. sept. 2010
Útskriftartónleikar Listaháskólans. Kolbeinn Bjarnason, tónsmíðar








