LÓKAL - alþjóðleg leiklistarhátíð í Reykjavík fer fram helgina 3.-6. september n.k. en Listaháskólinn er einn af samstarfaðilum hátíðarinnar
Hátíðin sem er sú eina sinnar tegundar hérlendis var haldin í fyrsta sinn í mars 2008. Þá var athyglinni beint að nokkrum atvinnuleikhópum sem hafa verið í fararbroddi í nýsköpun í leiklist í Evrópu og í Bandaríkjunum.
Í ár verður lögð áhersla á að sýna metnaðarfullar íslenskar leiksýningar frá liðnum vetri og því gefst leikhúsáhugafólki kjörið tækifæri til þess að meðtaka á einni helgi nokkuð af því markverðasta sem er á seyði í leiklistarlífi landans. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR býður upp á Dauðasyndirnar og Þú ert hér, ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sýnir Utangátta, ÉG OG VINIR MÍNIR sýna Húmanímal og ÁHUGALEIKHÚS ATVINNUMANNA frumsýnir Ódauðlegt verk um stríð og frið auk þess að sýna Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna og Ódauðlegt verk um stjórn og stjórnleysi. Þá verða einnig sýnd þrjú útskriftarverkefni nemenda í Fræði og framkvæmd frá síðastliðnu vori; þeirra Leifs Þorvaldssonar, Ástbjargar Rutar Jónsdóttur og Hlyns Páls Pálssonar.
Erlendir gestir hátíðarinnar koma frá Dublin: FISHAMBLE - NEW PLAY COMPANY sýnir Forgotten eftir Pat Kinevane í leikstjórn Jim Culleton, en leikhúsið hefur ferðast með þessa sýningu um Evrópu og til Bandaríkjanna og hlotið frábærar viðtökur áhorfenda.
Eitt af markmiðum aðstandenda Lókal að þessu sinni er að fá til landsins listræna stjórnendur leiklistarhátíða vestan hafs og austan til þess að kynna þeim íslenskt leikhús. Útsendarar frá mörgum af virtustu leiklistarhátíðum hafa boðað komu sína, m.a. frá Wiener Festwochen, Dublin Theatre Festival og listahátíðinni Transamerica í Montreal.
Samstarfsaðilar LÓKAL í ár eru: Menntamálaráðuneytið, Fjárlaganefnd Alþingis, Reykjavíkurborg, Listaháskóli Íslands, Leikfélag Reykjavíkur, Þjóðleikhúsið, Hafnarfjarðarleikhúsið, Leikhúsbatteríið, Iceland Naturally, Nýlistasafnið, Culture Ireland og Nu-trading.
Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu hátíðarinnar www.lokal.is

















