Skólastarf Listaháskólans hafið!

Nýnemakynning 2009 2
Skólastarf Listaháskólans hófst mánudaginn 24. ágúst. Reglubundin kennsla nemenda á öðru og þriðja ári hófst þann dag samkvæmt stundaskrá. Einnig var boðið upp á Nýnemakynningu en um 130 nemendur hefja nám í haust í Listaháskólanum.

Á nýnemakynningunni, sem haldin var á Sölvhólsgötu, fræddust nýnemar um starfsemi skólans m.a. ávarpaði Hjálmar H. Ragnarsson rektor nemendur og kynnti fyrir þeim lífið í Listaháskólanum og reifað var skipulag skólans og þjónustuna sem er í boði. Nemendur hlýddu á uppvörvandi hugvekju hjá Guðmundi Oddi prófessor í grafískri hönnun og hittu fulltrúa úr sínum deildum. Ánægjulegum degi lauk svo með móttöku starfsfólks skólans og  nemenda en þar léku tónlistarnemendurnir og nafnarnir Halldór Sveinsson og Halldór Smárason létta tónlist og boðið var upp á heimagerðar veitingar af bestu gerð.

Ungur fiðluleikari, Hulda Jónsdóttir hlýtur styrk úr Styrktarsjóði Halldórs Hansen

Styrkveiting H Hansen 2009

Ungur fiðluleikari, Hulda Jónsdóttir hlýtur styrk

úr Styrktarsjóði Halldórs Hansen

Ungur fiðluleikari, Hulda Jónsdóttir hlaut styrk úr Styrktarsjóði Halldórs Hansen 20. ágúst s.l. að upphæð 500.000 kr.

Styrktarsjóður Halldórs Hansen starfar undir væng Listaháskólans. Meginmarkmið hans er að styrkja uppbyggingu og styðja við tónlistarsafn skólans. Auk þess veitir sjóðurinn árlega styrki til tónlistarnema sem hafa að mati sjóðstjórnar náð framúrskarandi árangri á sínu sviði. Styrktarsjóður Halldórs Hansen var formlega stofnaður 2004 og er þetta í sjötta sinn sem veitt eru verðlaun úr sjóðnum.

Gert er ráð fyrir að styrkþegar hafi lokið háskólanámi á grunnstigi en Hulda Jónsdóttir lauk diplópamgráðu frá Listaháskóla Íslands síðasta vor og hefur framhaldsnám við Juilliard skólann í New York í haust.

Úthlutunin fór fram í Sölvhól, tónlistarsal Listaháskólans við Sölvhólsgötu 13. Boðið var til hátíðardagskrár í tilefni af úthlutuninni þar sem tilkynnt var um verðlaunahafa sjóðsins árið 2009 auk þess sem verðlaunahafinn kom fram á samkomunni.

Nánari upplýsingar um Huldu:

Hulda Jónsdóttir er fædd árið 1991. Hún hóf fiðlunám fjögurra ára gömul við Suzukideild Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Veturinn 2002-2003 var hún nemandi við MacPhail Center for Music í Minneapolis í Minnesota. Haustið 2003 hóf Hulda nám við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem kennarar hennar voru Lilja Hjaltadóttir og síðar Guðný Guðmundsdóttir. Haustið 2006 hóf Hulda nám við Listaháskóla Íslands og er hún yngsti nemandi sem fengið hefur inngöngu í skólann frá stofnun hans. Þar naut hún áframhaldandi handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur auk þess að sækja tíma hjá Ara Vilhjálmssyni. Hulda lauk diplómaprófi frá Listaháskólanum nú í vor og hefur nám við Juilliard skólann í New York í haust.

Hulda hefur komið fram sem einleikari með hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, hljómsveit Margess International tónlistarhátíðarinnar í Sviss og tvívegis með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Auk þess hefur hún haldið nokkra einleikstónleika m.a. í Salnum í Kópavogi.

Hulda hefur tekið þátt í tónlistarhátíðum í Sviss, Noregi, Bandaríkjunum og á Íslandi og fengið einkatíma og/eða masterklassa hjá m.a.Almitu og Roland Vamos, Rachel Barton Pine, Earl Carlyss, Joel Smirnoff, Ernst Kovacic, Pekka Kuusisto, Sigrúnu Eðvaldsdóttir og Auði Hafsteinsdóttur.

Frá hausti 2006 hefur Hulda spilað á fiðlu gerða af Vincenzo Sannino (ca. 1920) og boga úr smiðju Victors Fetique. Hvort tveggja hefur hún að láni frá Rachel Elizabeth Barton Foundation í Chigago.

Laurie Rosenwald grafískur hönnuður með fyrirlestur í Opna Listaháskólanum

Rosenwald

Laurie Rosenwald grafískur hönnuður frá New York heldur fyrirlestur í Opna Listaháskólanum föstudaginn 28. ágúst kl. 12.00, Listaháskólanum,  Skipholti 1, stofu 113.

Ráðningar í stöður háskólakennara í grafískri hönnun

goddur-mynd-180809

Ráðning í stöður háskólakennara í grafískri hönnun

Rektor Listaháskóla Íslands hefur ráðið Guðmund Odd Magnússon og Halldóru Guðrúnu Ísleifsdóttur í stöður háskólakennara í grafískri hönnun frá og með 1. ágúst. Guðmundur Oddur gegnir stöðu prófessors og Halldóra stöðu lektors. Fimmtán umsækjendur voru um starfið. Þriggja manna dómnefnd skipuð af stjórn skólans mat fimm þeirra hæfa til að gegna starfinu miðað við starfssvið og skyldur eins og starfið var auglýst af hendi skólans.  Dómnefnd skipuðu þau Jón Ólafsson, prófessor, Ámundi Sigurðsson, grafískur hönnuður, og Hildigunnur Gunnarsdóttir, grafískur hönnuður.

Guðmundur Oddur hefur um langt árabil verið leiðandi í sjónlistum á Íslandi. Hann hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum fyrir mikilsvirtar menningarstofnanir, birt eigin verk í yfirlitsritum um myndlist og hönnun, auk þess að hafa tekið þátt í samsýningum og haldið einkasýningar. Þá hefur hann stundað rannsóknir á sínu sviði og birt niðurstöður þeirra í ýmsum tímaritum og bókum. Meðal viðfangsefna hans má nefna myndmálsnotkun á Íslandi og hugmyndasögu, táknmyndir þjóðernis, alkemíu, trúarbrögð og pólitík. Hluti skrifa hans er fræðilegs eðlis, en þó hefur fræðilegt framlag hans ekki síður falist í því að móta og leiða umræður um grafíska hönnun hér á landi með fyrirlestrahaldi og blaðaskrifum. Þá hefur hann tekið saman kennsluefni fyrir nemendur í grafískri hönnun.Við stofnun Listaháskólans 1999 var Guðmundur Oddur ráðinn umsjónarkennari grafískrar hönnunar og þremur árum síðar í stöðu prófessors við hönnunar- og arkitektúrdeild.  Með ráðningu nú tekur Guðmundur Oddur við sínu fyrra starfi í samræmi við skilyrði og reglur skólans um tímabundnar ráðningar akademískra starfsmanna.

Ráðningar í stöður háskólakennara í grafískri hönnun

Dóra Ísleifsdóttir

Ráðning í stöður háskólakennara í grafískri hönnun

Rektor Listaháskóla Íslands hefur ráðið Guðmund Odd Magnússon og Halldóru Guðrúnu Ísleifsdóttur í stöður háskólakennara í grafískri hönnun frá og með 1. ágúst. Guðmundur Oddur gegnir stöðu prófessors og Halldóra stöðu lektors. Fimmtán umsækjendur voru um starfið. Þriggja manna dómnefnd skipuð af stjórn skólans mat fimm þeirra hæfa til að gegna starfinu miðað við starfssvið og skyldur eins og starfið var auglýst af hendi skólans. Dómnefnd skipuðu þau Jón Ólafsson, prófessor, Ámundi Sigurðsson, grafískur hönnuður, og Hildigunnur Gunnarsdóttir, grafískur hönnuður.

Halldóra Guðrún hefur mikla og fjölbreytta reynslu á sviði grafískrar hönnunar auk langrar reynslu af háskólakennslu á því sviði. Hún hefur starfað sem grafískur hönnuður, hönnunarstjóri og listrænn stjórnandi hjá mikilsvirtum hönnunarstofum og einnig starfað sjálfstætt sem myndlistarmaður, hugmyndasmiður og ráðgjafi. Þá hefur hún stýrt verkefnum í grafískri hönnun, markaðssetningu og nýsköpun og setið í ýmsum dómnefndum og ráðgjafanefndum á þeim sviðum. Halldóra var meðlimur í Gjörningaklúbbnum 1996 - 2001 og verk hennar hafa verið sýnd í þekktum galleríum og söfnum. Í álitsgerð dómnefndar er tekið fram að Halldóra sé “djarfur og frumlegur hönnuður með listræna sýn á greinina.” Halldóra hóf störf sem stundakennari við Listaháskólann árið1999 og hefur síðan 2006 gegnt starfi fagstjóra grafískrar hönnunar við skólann.