Auður strigi - Einar Garibaldi Eiríksson heldur fyrirlestur

Barnett Opni Listaháskóli

Myndlistarmaðurinn Einar Garibaldi Eiríksson heldur fyrirlestur í LHÍ - Laugarnesi, mánudaginn 5. október kl. 12.30 á vegum Opna Listaháskólans

Í fyrirlestrinum mun Einar m.a. fjalla um þá afhelgun málverksins sem átt hefur sér stað á undanförnum árum og opnað hefur miðlinum nýja og óvænta möguleika til túlkunar á veruleikanum innan margþættra og ögrandi merkingarheima í samtímamálverki. Hann mun fjalla um ólíkar birtingarmyndir þessara hræringa, ásamt því að velta fyrir sér núverandi stöðu og möguleikum miðilsins, útfrá hugmyndinni um rými málverksins -sem stað til að hugsa og framkvæma- er einskorðast ekki eingöngu við það sem má finna innan ramma myndarinnar.

Einar er fyrrverandi prófessor við Myndlistardeild LHÍ.

Gunnlaugur Halldórsson arkitekt - Aldarminning

Gunnlaugur Halldórsson arkitekt opni

Mánudagskvöldið 5. október 2009, kl. 20.30 - Fyrirlestur Péturs H. Ármannssonar arkitekts í Norræna húsinu

Á alþjóðlegum degi byggingarlistar, 5. október nk., bjóða Arkitektafélag Íslands og Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands til fyrirlestrar um ævi og verk Gunnlaugs Halldórssonar arkitekts, en öld var liðin frá fæðingu hans þann 6. ágúst sl.

Gunnlaugur Halldórsson (1909-1986) er í hópi merkustu frumherja íslenskrar byggingarlistar. Á námsárunum í Kaupmannahöfn 1926-33 hreifst hann af hugmyndum Bauhausstefnunnar. Snemma á 4. áratugnum gerðist hann helsti boðberi nýrra viðhorfa í íslenskri húsagerð. Hann hóf rekstur eigin teiknistofu árið 1933 og starfaði alla tíð sjálfstætt. Verk Gunnlaugs endurspegla tryggð hans við hugsjón módernismans um hönnun í anda einfaldleika og notagildis. Meðal þeirra eru verkamannabústaðir við Hringbraut austan Hofsvallagötu, Félagsgarður við Hávallagötu, viðbygging við Landsbankann, Búnaðarbankinn í Austurstræti, byggingar SÍBS á Reykjalundi, Amtsbókasafnið á Akureyri, Háskólabíó, íbúðarháhýsi við Sólheima 25-27 og Búrfellsvirkjun (þrjú síðustu verkin ásamt Guðmundi Kr. Kristinssyni).

Fyrirlesturinn er styrktur af Menntasjóði Listaháskóla Íslands.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan að húsrúm leyfir.

Listaháskólinn á Vísindavöku Rannís

dsc_0016-1goddur

Föstudaginn 25. september s.l. var kynning á tveimur verkefnum á vegum Listaháskóla Íslands á Vísindavöku Rannís í Listasafni Reykjavíkur.

Vísindavaka er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra. Tæplega þrjú þúsund manns á öllum aldri sótti heim Vísindavökuna í ár og vöktu verkefni Listaháskólans mikinn áhuga gesta.

Tvö verkefni voru kynnt á vegum Listaháskólans en það voru þeir  Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor í grafískri hönnun sem kynnti Íslenska sjónabók og Kjartan Ólafsson, prófessor í tónsmíðum og tónfræði sem kynnti tónsmíðaforrit sitt CALMUS. Að auki var Áki Ásgeirsson meistaranemi í tónsmíðum við Listaháskólann með kynningu á meistaraverkefni sínu.

dsc_0025rett-11

Íslensk sjónabók

Íslensk sjónabók er handrit með munstrum sem notuð voru í útsaumi, útvefnaði og til ýmissa hannyrða áður fyrr. Bókin inniheldur safn tíu íslenskra sjónabóka frá 18. og 19. öld, sem eru þær einu sem vitað er að varðveist hafa.

Við hönnunar- og arkitektúrdeild hafa frá upphafi verið stundaðar rannsóknir á íslensku myndmáli. Bæði er um að ræða þann arf sem hefst með fjölföldun eða prentun eins og því myndmáli sem falið er í veggspjaldi Benedikts Gröndal frá þjóðhátíðinni 1874. Eins þeim arfi sem falin eru í handritum alla leið að 19. öld. Íslensk sjónabók er afrakstur af einum hluta þessa verkefnis um íslenska myndmálið og á hún að vera brunnur hugmynda að nýsköpun með sterkri tilvísun í sérstakan íslenskan menningararf.

Bókin er gerð af nemendum og kennurum við Listaháskóla Íslands en hönnuður hennar er Birna Geirfinnsdóttir. Hún er gefin út af Heimilisiðnarfélagi Íslands í samvinnu við Listaháskóla Íslands og Þjóðminjasafn Íslands.

CALMUS - fortíð, nútíð, framtíð

Calculated music 1988-2009

Tónsmíðaforritið CALMUS er hluti af doktorsverkefni Kjartans Ólafssonar í tónsmíðum frá Sibeliusarakdemíunni í Finnlandi en frá 1988 hefur Kjartan unnið að hönnun og þróun þess. Forritið byggir m.a. á gervigreindartækni og er hannað sérstaklega fyrir nútímatónsmíðar og rannsóknir.  Með hjálp forritsins hafa verið samin tæplega hundrað verk og má þar nefna einleiksverk, söngverk, ballettverk, leikhúsverk, kammerverk, raftónverk, spunatónlist, konserta og hljómsveitarverk.

Kjartan þróar nú nýja útgáfu forritsins, CALMUS II, sem byggir á tónsmíðum í rauntíma og er sú vinna m.a. unnin sem rannsóknar- og þróunarverkefni innan tónlistardeildar Listaháskóla Íslands. Þar er beint sjónum að tónsmíðaframvindu í rauntíma sem stýrt er með hreyfingum, hljóðfæraslætti og snertlum.

Verkefnið er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands við Sibelíusarakdemíuna í Finnlandi, Mozarteum tónlistarháskólann í Vín í Austurríki, Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi og Tækniskólann - skóla atvinnulífsins.


Nemendaleikhús Listaháskólans - veturinn 2009-2010

Nemendaleikhús 2009-2010
Æfingar eru nú  í fullum gangi hjá útskriftarárgangi leiklistardeildar Listaháskóla Íslands, en starfsemi Nemendaleikhúsins 2009-2010 er hafin.  Nemendaleikhúsið hefur nú fengið aðsetur sitt í Smiðjunni á Sölvhólsgötu en í vetur verða sýndar þrjár sýningar í Smiðjunni.

Fyrsta verkefni Nemendaleikhússins í vetur er hin magnaða háðsádeila Eftirlitsmaðurinn eftir Nikolai Gogol í nýrri þýðingu Bjarna Jónssonar. Gogol hefði orðið 200 ára í ár en er svo sannarlega sígildur í bestu merkingu þess orðs. Hann er talinn til höfuðskálda Rússa og leikritið Eftirlitsmaðurinn er álitið þjóðargersemi þar í landi. Þekktasta skáldsaga hans er vafalaust Dauðar sálir.

Leikritið Eftirlitsmaðurinn gerist í lítill borg þar sem spillingin er allsráðandi. Ráðamenn mergsjúga þegnanna, samfélagið líður fyrir græðgi og lágar hvatir þeirra sem deila og drottna. Það verður uppi fótur og fit þegar fréttist, að mættur sé á svæðið eftirlitsmaður frá Pétursborg til að taka út stjórnsýsluna. Í öllu uppnáminu fara þeir mannavillt; auðnuleysingi og spilafíkill er tekinn fyrir þessa  meiriháttar persónu úr hinum glæsta höfuðstað. Úr verður krassandi flétta þar sem allt er lagt í sölurnar til að bjarga eigin skinni.

Leikstjóri er Stefán Jónsson (sem hefur m.a. leikstýrt Forðist okkur og Legi), leikmynd er í höndum Móeiðar Helgadóttir, Myrra Leifsdóttir sér um búninga og gerfi, tónlist er samin af Margréti Kristínu Blöndal (Möggu Stínu) nemanda í tónsmíðum í LHÍ og lýsing er í höndum Mika Haarinen skiptinema í LHÍ.

Frumsýning á Eftirlitsmanninum er föstudaginn 9. október n.k.

Næsta sýningin Nemendaleikhússins er svo er nýtt verk eftir Sigtrygg Magnason sem ber nafnið „Bráðum hata ég þig” en það verður frumsýnt í janúar 2010.

Nemendaleikhúsið í vetur skipa:

Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Hilmir Jensson, Lára Jóhanna Jónsdóttir,
Svandís Dóra Einarsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Ævar Þór Benediktsson.

Eftirlitsmaðurinn - sýningaáætlun

Fimmtudagur 8. október Lokaæfing kl.20:00
Föstudagur 9. október Frumsýning kl.20:00
Sunnudagur 11. október Hátíðarsýning kl.20:00
Miðvikudagur 14. október 3. sýning kl.20:00
Fimmtudagur 15. október 4. sýning kl.20:00
Föstudagur 16. október 5. sýning kl.20:00
Laugardagur 17. október 6. sýning kl.16:00
Fimmtudagur 22. október 7. sýning kl.20:00
Föstudagur 23. október 8. sýning kl.20:00
Laugardagur 24. október 9. sýning kl.20:00
Sunnudagur 25. október 10. sýning kl.20:00

Vöruhönnuðurnir Julia Lohmann og Gero Grundmann halda fyrirlestur um verkefni sín

Julia Lohmann 2009 Opni

Opni listaháskólinn, hádegisfyrirlestur í Skipholti 1, þriðjudaginn 29 sept. kl. 12.10

Vöruhönnuðurnir Julia Lohmann og Gero Grundmann halda fyrirlestur um verkefni sín.
Hönnuðirnir eru þekktir fyrir frumleg verk sem fjalla gjarnan um umbreytingu dýra yfir í vöru.

Undanfarinn mánuð hafa Julia og Gero dvalið í gestavinnustofu á Siglufirði og sótt sér innblástur.

——————————————————————

The product designers Julia Lohmann and Gero Grundmann will give a lecture about their work.
The designers are known for their original work that often explores the transition of an animal to the product.

Lohman and Grundmann have spent the last month in a guest workshop in Siglufjördur and are now on their way back to London.