Skiptinemar á haustönn
Fimmtán nemendur frá erlendum samstarfsskólum Listaháskólans hófu skiptinám eða starfsnám við skólann í upphafi haustannar. Hópurinn skiptist niður á eftirfarandi námsbrautir; arkitektúr, grafíska hönnun, vöruhönnun, fræði og framkvæmd, myndlist og söng. Þessir nemendur koma frá eftirtöldum skólum; ENSA Montpellier, Stuttgart Academy of Fine Arts, Vilnius Art Academy, Bauhaus-University Weimar, HDK í Gautaborg, Dartington College of Art, Jyske Kunstakademi, Akademi der Bildende Künste í Vín, Kunsthögskolen i Bergen, Johannes Gutenberg í Mainz, Umeå Kunsthögskolan, Utrecht School of the Arts og Jyväskylä University.
Nemendur í starfsnámi eru tveir; Mika Haaranen úr ljósahönnunardeild frá Theatre Academy í Helsinki sem starfa mun við Nemendaleikhús Listaháskólans fram til áramóta og Sabrina Stiegler frá Hochschüle Gestaltung í Schwäbische Gmünd en hún vinnur í rannsóknarverkefninu “Stefnumót við bændur”.
Einnig tveir nemendur frá Japan sem hófu nám til prófgráðu við Listaháskólann í haust, annars vegar í fatahönnun og hins vegar í tónsmíðum á meistarstigi.
Aðsókn í að koma í skiptinám til Listaháskólann hefur farið vaxandi síðustu ár og nú er svo komið að oft eru fjórir nemendur um hvert laust sæti. Þessi hópur hefur því farið í gegnum inntökuferli og ljóst er að hér er um mikla úrvalsnemendur að ræða sem skólanum er mikill fengur af.
Við bjóðum þennan hóp sérstaklega velkominn í skólann.












