CALMUS og Íslensk sjónabók á Vísindavöku Rannís 2009

Sjónabók 2

Föstudaginn 25. september frá kl.17.00- 22.00 verður kynning á tveimur verkefnum á vegum Listaháskóla Íslands á Vísindavöku Rannís í Listasafni Reykjavíkur.

Vísindavaka er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra.

Tvö verkefni verða kynnt á vegum Listaháskólans á Vísindavöku í ár en það eru þeir  Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor í grafískri hönnun sem kynnir Íslenska sjónabók og Kjartan Ólafsson, prófessor í tónsmíðum og tónfræði sem kynnir tónsmíðaforrit sitt CALMUS. Að auki mun Áki Ásgeirsson meistaranemi í tónsmíðum við Listaháskólann kynna meistaraverkefni sitt.

Íslensk sjónabók

Íslensk sjónabók er handrit með munstrum sem notuð voru í útsaumi, útvefnaði og til ýmissa hannyrða áður fyrr. Bókin inniheldur safn tíu íslenskra sjónabóka frá 18. og 19. öld, sem eru þær einu sem vitað er að varðveist hafa.

Við hönnunar- og arkitektúrdeild hafa frá upphafi verið stundaðar rannsóknir á íslensku myndmáli. Bæði er um að ræða þann arf sem hefst með fjölföldun eða prentun eins og því myndmáli sem falið er í veggspjaldi Benedikts Gröndal frá þjóðhátíðinni 1874. Eins þeim arfi sem falin eru í handritum alla leið að 19. öld. Íslensk sjónabók er afrakstur af einum hluta þessa verkefnis um íslenska myndmálið og á hún að vera brunnur hugmynda að nýsköpun með sterkri tilvísun í sérstakan íslenskan menningararf.

Bókin er gerð af nemendum og kennurum við Listaháskóla Íslands en hönnuður hennar er Birna Geirfinnsdóttir. Hún er gefin út af Heimilisiðnarfélagi Íslands í samvinnu við Listaháskóla Íslands og Þjóðminjasafn Íslands.

CALMUS - fortíð, nútíð, framtíð

Calculated music 1988-2009

Tónsmíðaforritið CALMUS er hluti af doktorsverkefni Kjartans Ólafssonar í tónsmíðum frá Sibeliusarakdemíunni í Finnlandi en frá 1988 hefur Kjartan unnið að hönnun og þróun þess. Forritið byggir m.a. á gervigreindartækni og er hannað sérstaklega fyrir nútímatónsmíðar og rannsóknir.  Með hjálp forritsins hafa verið samin tæplega hundrað verk og má þar nefna einleiksverk, söngverk, ballettverk, leikhúsverk, kammerverk, raftónverk, spunatónlist, konserta og hljómsveitarverk.

Kjartan þróar nú nýja útgáfu forritsins, CALMUS II, sem byggir á tónsmíðum í rauntíma og er sú vinna m.a. unnin sem rannsóknar- og þróunarverkefni innan tónlistardeildar Listaháskóla Íslands. Þar er beint sjónum að tónsmíðaframvindu í rauntíma sem stýrt er með hreyfingum, hljóðfæraslætti og snertlum.

Verkefnið er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands við Sibelíusarakdemíuna í Finnlandi, Mozarteum tónlistarháskólann í Vín í Austurríki, Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi og Tækniskólann - skóla atvinnulífsins.

Calmus

Kanadíska myndlistarkonan Erica Eyres fjallar um eigin verk

Erica Eyres

OPNI LISTAHÁSKÓLINN - HÁDEGISFYRIRLESTUR
Kanadíska myndlistarkonan Erica Eyres fjallar um eigin verk í hádegisfyrirlestri Opna listaháskólans, í húsnæði myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91 Reykjavík, mánudaginn 28. september kl. 12.30.

Erica Eyres (b. Winnipeg, 1980) received her BFA from the University of Manitoba in 2002, and her MFA from the Glasgow School of Art in 2004. In 2003 she attended the Skowhegan School of Painting and Sculpture. Recent group exhibitions include the Jerwood Drawing Prize, at the Jerwood Space, London (2009); Bad Joke, at Riga Art Space, Latvia (2008); Bitter Finals at Angstrom Gallery, Los Angeles (2008); Looky See at Ben Malz Gallery, Otis College (2008), Los Angeles; Bloomberg New Contemporaries, at Barbican, London, and touring (2005). Recent solo exhibitions include Erica Eyres at Rokeby Gallery, London(2008); Erica Eyres at Haas and Fischer, Zurich (2008); Shut Up Shut Up Shut Up, at Fette’s Gallery, Los Angeles (2007) ; I love You But I Hate You, at CCA, Glasgow (2006).

Artist Statement:
Through videos and bodies of drawings, I use humour and narrative to examine the psycho-logy behind disturbing human behaviours. Employing satire, I seek to extract an awkward laughter from the viewer and to explore the tensions between what is funny and what is stark and confrontational. I utilize prosthetics, costumes and methods of disguise to transform myself into different characters that interact with one and another and reveal the absurdity of their lives and situations. My videos often mimic television formats such as documentary, reality television, family sitcoms, or commercials. Despite creating absurd and often surreal story lines, I hope to build each persona with a sense of the uncanny so that the viewer will recognize aspects of themselves or others, thereby adding to their discomfort.

Allir velkomnir

Skiptinemar á haustönn

skiptinemar2

Fimmtán nemendur frá erlendum samstarfsskólum Listaháskólans hófu skiptinám eða starfsnám við skólann í upphafi haustannar.  Hópurinn skiptist niður á eftirfarandi námsbrautir; arkitektúr, grafíska hönnun, vöruhönnun, fræði og framkvæmd, myndlist og söng.  Þessir nemendur koma frá eftirtöldum skólum; ENSA Montpellier, Stuttgart Academy of Fine Arts, Vilnius Art Academy, Bauhaus-University Weimar, HDK í Gautaborg, Dartington College of Art, Jyske Kunstakademi, Akademi der Bildende Künste í  Vín, Kunsthögskolen i Bergen, Johannes Gutenberg í Mainz, Umeå Kunsthögskolan, Utrecht School of the Arts og Jyväskylä University.

Nemendur í starfsnámi eru tveir; Mika Haaranen úr ljósahönnunardeild frá Theatre Academy í Helsinki sem starfa mun við Nemendaleikhús Listaháskólans fram til áramóta og Sabrina Stiegler frá Hochschüle Gestaltung í Schwäbische Gmünd en hún vinnur í rannsóknarverkefninu “Stefnumót við bændur”.

Einnig tveir nemendur frá Japan sem hófu nám til prófgráðu við Listaháskólann í haust, annars vegar í fatahönnun og hins vegar í tónsmíðum á meistarstigi.

Aðsókn í að koma í skiptinám til Listaháskólann hefur farið vaxandi síðustu ár og nú er svo komið að oft eru fjórir nemendur um hvert laust sæti.  Þessi hópur hefur því farið í gegnum inntökuferli og ljóst er að hér er um mikla úrvalsnemendur að ræða sem skólanum er mikill fengur af.

Við bjóðum þennan hóp sérstaklega velkominn í skólann.

Erling Blöndal Bengtsson sellóleikari með námskeið hjá LHÍ

Erling Blöndal

Masterklassi í tónlistardeild Listaháskólans

Hinn heimsþekkti sellóleikari, prófessor Erling Blöndal Bengtsson heldur námskeið (masterklassa) fyrir sellóleikara á vegum Listaháskóla Íslands fimmtudaginn 24. september kl. 17.00  í tónleikasal Listaháskólans Sölvhóli (gengið inn á horni Klapparstígs og Skúlagötu).

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis

Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskólans í Rússlandi

rússland 1Rússland 8

Þrjátíu og fimm nemendur á lokaári í vöruhönnun, grafískri hönnun og arkitektúr dvöldust í síðustu viku í St. Pétursborg í Rússlandi, en ferðir af þessu tagi eru orðnar árvissar hjá hönnunar-og arkitektúrdeildinni.

Í þetta sinn var ákveðið að skoða rússneska systurskóla Listaháskólans í Cumulus; St. Petersburg State Polytechnical University og Mukhina Akademíuna í Pétursborg. Einnig var farið á söfn en Pétursborg býr yfir mikilli safnaflóru. Farið var í Hermitage og Rússneska safnið, Mannfræðisafnið og fleira.

Tveir kennarar fylgdu hópnum, þau Sigrún Birgisdóttir fagstjóri og lektor í arkitektúr og Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor í grafískri hönnun. Guðmundur Oddur hélt einnig fyrirlestur um sköpunargáfuna við St. Petersburg State Polytechnic og nemendur sýndu verk sín þar og skiptust á skoðunum við rússneska kollega sína.