2 milljónir skiptinema
Hlynur Páll Pálsson sem útskrifaðist úr Fræði og Framkvæmd s.l. vor var nú á dögunum valinn fulltrúi íslenskra nemenda til að taka þátt í ráðstefnu sem Evrópusambandið heldur í tilefni af því að markmiðinu “2 milljónir skiptinema” hefur verið náð. Ráðstefnan fer fram í Lundi í Svíþjóð dagana 5. og 6.október n.k. Hlynur fær ferða- og dvalarstyrk frá Evrópusambandinu til að taka þátt í þessum viðburði og mun þar m.a. vera viðstaddur fréttamannafund ásamt 30 öðrum nemendum frá 21 landi. Ráðstefnan ber heitið “Erasmus – the way forward and the Green paper on mobility of young people” og mun nemendahópurinn sem boðið hefur verið á ráðstefnuna taka þátt í stefnumótunarumræðu um framtíðarskipulag Erasmus kerfisins. Evrópusambandið hefur veitt stúdentaskiptastyrki í Erasmus kerfinu frá 1987 og hefur Ísland verið þátttakandi frá upphafi. Alls hafa 2651 nemandi komið til landsins á Erasmus stúdentaskiptastyrk og 2206 farið frá landinu. Þar af hafa 246 nemendur LHÍ hlotið styrk. Það er ánægjulegt að Listaháskólinn skuli eiga fulltrúa á þessari ráðstefnu og við óskum Hlyni Páli til hamingju með tilnefningua.












