Opni Listaháskólinn - fjallað um sjónlistahátíðina Sequences
OPNI LISTAHÁSKÓLINN, hádegisfyrirlestur mánudaginn 12.okt kl 12.30.
Kristín Dagmar Jóhannesdóttir og Klara Þórhallsdóttir fjalla um sjónlistahátíðina Sequences í hádegisfyrirlestri LHÍ Laugarnesi, mánudaginn 12. október kl. 12.30.
Sequences er árleg hátíð sem haldin verður í fjórða sinn daganna 30. október til 7. nóvember en til hennar var stofnað árið 2006 af nokkrum listamannareknum sýningarrýmum í Reykjavík; Nýlistasafninu, Kling og Bang gallerí, Galleríi Dvergi og Banananas, ásamt Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar, KÍM.
Hátíðin hefur frá upphafi lagt megináherslu á tímatengda myndlist eins og gjörningalist, myndbandalist, hljóðlist og samruna eða samvinnu við aðrar listgreinar og í ár mun megináherslan vera á gjörningalist og sviðslistir. Því verða aðeins lifandi viðburði á hátíðinni að þessi sinni.
Í fyrirlestri sínum n.k. mánudag ætla aðstandendur Sequences 2009 að kynna helstu dagskrárliði hátíðarinnar þau 20 verkefni sem boðið verður upp á að þessu sinni, með aðkomu bæði íslenskra listamanna og erlendra gesta. Þá verður fjallað um hugmyndina að baki Sequences og markmið hátíðarinnar.
Kristín Dagmar Jóhannesdóttir lauk mastersnámi í samtímalistfræði (Contemporary Art Theory) við Edinburgh College of Art í Skotlandi sumarið 2009. Einnig lauk hún BA námi frá Listfræðideild Háskóla Íslands árið 2007 ásamt kynningarnámskeiði í Menningarstjórnun (Art Management) við Sibelius Akademíuna í Finnlandi þar sem hún dvaldi í eitt ár í skiptinámi við Listasögudeild University of Helsinki. Hefur hún fengist við ýmis menningartengd verkefni og má þar nefna sýningar- og ritstjórn útgáfunnar Ten Tails (2009) sem fjallar um stöðu bókverksins í samtímanum, sýningarstjórn If you´ll believe in me I´ll believe in you, (2008) The GRV, Edinburgh. Kristín er listrænn stjórnandi sjónlistahátíðarinnar Sequences 2009.
Klara Þórhallsdóttir lauk B.A námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2006 og diplómanámi til kennsluréttinda í listkennslu 2007. Eftir nám hefur hún unnið við ýmis fræðslustörf hjá Listasafni Reykjavíkur, haldið námskeið og leiðsagnir um sýningar safnsins, ásamt öðrum menningartengdum verkefnum. Klara er framkvæmdastjóri sjónlistahátíðarinnar Sequences 2009.












