Leónardó styrkir - fleiri úthlutanir!
Listaháskólinn hefur nú greitt út Leónardó starfsþjálfunarstyrki til þriggja útskrifaðra nemanda til viðbótar við þá tvo sem hlutu styrk í sumar.
Þetta eru þeir Magnús Leifsson sem útskrifaðist úr grafískri hönnun 2007, Hafsteinn Júlíusson sem útskrifaðist úr vöruhönnun 2008 og Halldór Örn Ragnarsson sem útskrifaðist frá myndlistardeild árið 2007. Magnús hlaut styrk til að starfa í 12 vikur hjá hönnunarstofunni iLoveDust í London en þar mun hann fyrst og fremst vinna við lógógerð og týpógrafíu. Hafsteinn hlaut styrk til að starfa í 12 vikur hjá hönnunarstofunni DiegoGrandi í Mílanó á Ítalíu. Á starfstíma sínum mun Hafsteinn fást við verkefni er tengjast bæði vöruhönnun og innanhúsarkitektúr. Halldór Örn hlaut styrk til að starfa í einn mánuð undir handleiðslu málarans M.Polille en einnig mun hann gegna ýmsum störfum í Art Gallery of Cosenza í Cosenza á Ítalíu.
Fleiri útskrifaðir nemendur eru þessa dagana að ganga frá samningum við fyrirtæki vegna starfsþjálfunar í Evrópu og ljóst er að þeir Leónardó styrkir sem LHÍ hefur til úthlutunar þetta árið munu ganga hratt út.












