Prisma - umsóknarfrestur rennur út í dag 3. desember

prisma

Prisma - nú fer hver að verða síðastur!

Umsóknarfrestur í Prisma er til 3. desember.

Prisma verður kennt til 16 eininga (ECTS) í febrúar og mars 2010, í samanlagt 8 vikur. Kennsla fer fram á Fríkirkjuvegi 11 í Reykjavík og skólagjöld eru áætluð á bilinu 160.000 - 195.000 krónur, en allt lesefni er innifalið í þeirri upphæð.

Prisma er nýtt þverfaglegt diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst skipulögðu í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna. Eftirspurn eftir Prisma hefur verið mikil frá því námið hóf göngu sína 2. febrúar sl. Útskrifaðir hafa verið tveir nemendahópar til þessa með 12 og 16 eininga (ECTS) diplómagráður. Útskriftarnemar eru um það bil 90 talsins úr hinum ýmsu geirum, s.s. viðskiptum, þjónustu, myndlist, arkitektúr, leiklist, fjármálageira, stjórnunar- og menntastörfum, heilbrigðisgeira og svona mætti áfram telja. Skilyrði fyrir inngöngu er stúdentspróf eða jafngildi þess og hafa nemendur verið á aldursbilinu 19-67 ára.

Dæmi um svör nemenda úr kennslukönnun í október 2009:

„Prisma er mögnuð verkfærataska”

„er að stofna fyrirtæki og láta draum rætast”

„heimurinn hefur opnast og tækifærin eru óþrjótandi”

tjái mig skýrar og framkvæmi - finnst ég geta allt!”

hef fundið nýjar og óvenjulegar leiðir til að framkvæma og hugsa”

eftir Prisma stóð ég uppi sem sigurvegari gagnvart sjálfri mér”

allt annað sjónarhorn á heiminn og sjálfan mig”

hagnýt þekking fyrir líf og vinnu”

Prisma var sett á laggirnar sem viðbrögð Listaháskólans og Háskólans á Bifröst við því ástandi sem skapaðist hér á landi í kjölfar bankahruns. Námið hefur vakið athygli hér heima og erlendis enda er um nýsköpun í menntun að ræða.  Fjöldi hugmynda og spennandi verkefna hafa sprottið upp í náminu og verið hrint í framkvæmd.

Prisma hefur átt í nánu samstarfi við ýmis fag- og stéttarfélög og Vinnumálastofnun. Umsækjendur geta sótt um námsstyrk til niðurgreiðslu á skólagjöldum frá stéttar- og fagfélögum og hjá Vinnumálastofnun. Vinnumálastofnun heimilar nemendum á atvinnuleysisbótum að stunda námið og halda bótum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og er þá gerður um það námssamningur. Umsækjendum um námið er bent á að snúa sér til ráðgjafa stofnunarinnar til að kanna málið.

Prisma námið nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Meginþáttur í aðferðafræði kennslu og fyrirkomulags er skapandi og gagnrýnin hugsun en burðargreinar eru listfræði og heimspeki. Mörgum tengdum fögum er fléttað saman við meginþátt námsins s.s. ímyndafræði, menningarstjórnun, frumkvöðlafræði, hönnun og tíðaranda, myndmálssögu, tónlistarsögu og -miðlun, skapandi skrifum, aðferðafræði myndlistar og leikhúss, arkitektúr og skipulagi, miðlunarfræði, mannfræði, markaðsfræði og stjórnun. Að auki er boðið upp á gestafyrirlestra einu sinni í viku þar sem sérfræðingar segja frá því sem er að gerast í stefnumótun, rannsóknum og nýsköpun í samfélaginu og utan landsteinanna.

Yfir 40 sérfræðingar koma að náminu

Yfir 40 sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu hafa komið að kennslu í Prisma. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur og sálgreinandi, Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og heimspekingur, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Andri Snær Magnason rithöfundur, Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, Sveinbjörn I. Baldvinsson, handritshöfundur, Viðar Hreinsson framkvæmdarstjóri ReykjavíkurAkademíunnar, Hjálmar Ragnarsson, rektor LHÍ og tónskáld, Halldór Björn Runólfsson, forstöðumaður Listasafns Íslands, Sigríður Ingvarsdóttir, rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs hjá Nýsköpunarmiðstöð,  Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, Dóra Ísleifsdóttir, fagstjóri í grafískri hönnun, Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auður Capital, Sigrún Birgisdóttir, arkitekt og lektor við LHÍ, Guðjón M. Guðjónsson frumkvöðull, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður ofl.

Skipulag námsins og fyrirkomulag

Námið er á háskólastigi og ætlað fólki sem hefur að lágmarki stúdentspróf eða jafngildi þess. Að gefnum ákveðnum skilyrðum geta nemendur fengið Prisma metið til 12 eininga (ECTS) í bakkálárnám á Háskólanum á Bifröst og til  6 eininga (ECTS) í meistaranám á Bifröst og Kennslufræðum í Listaháskóla Íslands, að gefnum ákveðnum skilyrðum.

Nánari upplýsingar veitir:

Hrund Gunnsteinsdóttir forstöðukona Prisma í síma 895 6371 eða á hrund@lhi.is.  Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um námið á heimasíðum skólanna: www.lhi.is og www.bifrost.is

Leiðtoginn og verkefnastjórnun - Kynning á verkefnum meistaranema

listkennsla1109

Mánudaginn 30. nóvember kl. 10.00-12.00 bjóða meistaranemar úr listkennsludeild ásamt meistaranemum úr tónlistardeild til kynningar á verkefnum sem þróuð hafa verið í áfanganum Leiðtoginn og verkefnastjórnun nú í haust, undir stjórn Önnu Hildar Hildibrandsdóttur. Kynningin fer fram í húsnæði Listaháskólans í Laugarnesi, Laugarnesvegi 91.

Markmið námskeiðsins spegla það sjónarmið deildanna að mennta beri listgreinakennara einnig sem verkefnisstjóra, leiðtoga og fánabera nýrra hugmynda út í samfélagið.

Verkefnin sem kynnt verða eru unnin af fimm hópum þar sem listamenn úr ólíkum listgreinum mætast, en hópurinn samanstendur af myndlistarmönnum, tónlistarfólki, hönnuðum og arkitektum.
Verkefnin eru:
Réttir í Reykjavík - gengur út á að færa sveit í borg
Wool Fetish - kvikmynd um ullina og hvernig hún tengist hönnun og tónlist á Íslandi
Pling Plong - tillaga um að nútímatónlist verði hljóðheimur verslunarmiðstöðvar í einn dag
Tóm Hús - skapandi hugmynd um hvernig umbreyta megi tómum byggingum í umhverfislistaverk
Framsækinn smíðavöllur - hugmynd sem byggir á því að kynna börnum á aldrinum 10 til 12 ára nýjar leiðir í formhugsun og efnisnotkun auk þess að efla umhverfisvitund þeirra.

Öll verkefnin gefa mikla möguleika á að þróa reglulega viðburði. Möguleikar á afurðaþróuna í kringum viðburðina, eru t.d. námsefnagerð - reglulegt námskeiðahald - listuppákomur - útgáfa o.s.frv.

Þetta er í fyrsta sinn sem námskeiðið er kennt í þessu formi og er það mikilvægur þáttur í þróun þess náms sem listkennsludeild býður upp á.

Kristinn E. Hrafnsson heldur fyrirlestur um verk sín

Kristinn E. Hrafnsson

Kristinn E. Hrafnsson myndlistarmaður fjallar um verk sín í hádegisfyrirlestri í Opna listaháskólanum í húsnæði myndlistardeildar Listháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91, mánudaginn 30.nóvember 2009 kl. 12.30.

Kristinn E. Hrafnsson heldur fyrirlestur um verk sín í tilefni af útkomu bókar um list hans. Kristinn er fæddur á Ólafsfirði og stundaði myndlistarnám á Akureyri, í Reykjavík og í Þýskalandi. Hann hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1990 og hefur frá þeim tíma verið iðinn við sýningarhald. Kristinn á nokkuð af myndlist í opinberu rými víða um land. Bókin um Kristin verður boðin á sérstöku kynningarverði á fyrirlestrinum.

Allir velkomnir.

Kyrralíf ? í Kubbnum

Kyrralíf 2

Kyrralíf ? í Kubbnum
28. nóvember til 18. desember 2009

Laugardaginn 28. nóvember kl. 15.00 opnar samsýningin Kyrralíf? í Kubbnum, sýningarsal myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, á Laugarnesvegi 91.

Sýningin er hluti af námskeiði í sýningagerð og sýningastjórn sem er samstarfsverkefni myndlistarnema við Listaháskóla Íslands og listfræðinema við Háskóla Íslands.

Verkin á sýningunni eru unnin af myndlistanemum Listaháskólans og unnu þeir í kringum hugtakið Kyrralíf við gerð verkanna. Kyrralíf (e. Still life) er þekkt tegund myndlistar og var einkar vinsælt viðfangsefni á 16. og 17. öld, sérstaklega í Hollandi. Klassískar kyrralífsmyndir þekkja flestir sem uppstillingar á völdum hlutum sem gjarnan eru hlaðnir táknrænni merkingu. Á sýningunni í Kubbnum fengu listamennirnir þrír frjálsar hendur á að túlka og víkka út hugtakið kyrralíf, en þó með glöggri skírskotun í listasöguna.

Sýningin verður opin alla virka daga og um helgar frá kl 13.00 til 16.00 og stendur yfir til 18. desember.

Ársfundur Listaháskólans 2009

listahaskolinn-mynd2

Ársfundur Listaháskólans 2009 var haldinn miðvikudag 25. nóvember í tónlistarsal skólans, Sölvhóli. Stjórn skólans boðar til fundarins og fundinum stýrði því Karólína Eiríksdóttir, formaður stjórnar.

Á fundinum var farið yfir meginatriði í starfsemi skólans á síðasta skólaári (2008-2009) og kynnt helstu verkefnin framundan.

Lagðar voru fram skýrslur helstu stjórnenda og tölfræðilegt yfirlit um nemendafjölda og nemendaþróun, umsóknir um nám, fjölda starfsmanna og kennara og fleira.

Að lokinni lifandi framsögu rektors voru svo ýmsar fyrirspurnir og umræður og léttar veitingar.

Fundargerð verður lögð fram fljótlega.

Ársfundur 2009, skýrsla rektors

Ársfundur 2009, skýrsla deildarforseta leiklistardeildar

Ársfundur 2009, skýrsla deildarforseta tónlistardeildar

Ársfundur 2009, skýrsla deildarforseta hönnunar-og arkitektúrdeildar

Ársfundur 2009, skýrsla deildarforseta myndlistardeildar

Ársfundur 2009, skýrsla deildarforseta listkennsludeildar

Ársfundur 2009, skýrsla forstöðumanns bókasafns og upplýsingaþjónustu

Ársfundur 2009, skýrsla forstöðumanns rannsóknaþjónustu

Ársfundur 2009, skýrsla forstöðumanns tölvu- og vefþjónustu

Tölfræðilegt yfirlit yfir starfsemina 2008 -2009