Fyrstu Erasmus starfsmanna- og kennarastyrkir haustsins

helga1

Listaháskólinn tekur virkan þátt í starfsmanna- og kennaraskiptum innan Erasmus kerfisins.  Frá og með skólaárinu 2008/9 býðst ekki bara kennurum að fá styrk til að kenna við samstarfsskóla LHÍ heldur geta allir starfsmenn sótt um styrki til að kynna sér störf kollega sinna í erlendum samstarfsskólum. Erasmus starfsmanna- og kennarastyrkur hljóðar uppá ferðastyrk að hámarki 1000 EUR auk dagpeninga.

Það sem af er liðið þessa skólaárs hafa nú þegar starfsmenn úr þremur deildum skólans hlotið styrk.  Þetta eru þau Kjartan Ólafsson, tónlistardeild sem fór í kennaraskipti til Det Jyske Musikkkonservatorium í Árósum, Magnús Þór Þorbergsson, leiklistardeild sem fór í kennaraskipti til University of Exter í Bretlandi og deildarfulltrúarnir Hafdís Harðardóttir, hönnunar- og arkitektúrdeild og Helga Pálína Brynjólfsdóttir, myndlistardeild sem fóru í vikuferð til að kynna sér sambærileg störf í samstarfsskólum LHÍ á sviði myndlistar og hönnunar í Kaupmannahöfn og Gautaborg.

4. nóvember, 2009