EMD námskeið í Kaupmannahöfn

nordplus_logo

Nú á dögunum hélt EMD stutt námskeið í Skolen for Moderne Dans í Kaupmannahöfn.  EMD stendur fyrir “Explorations in Music and Dance” og er eitt af samstarfsnetum Listaháskólans innan Nordplus menntaáætlunarinnar.

Alls sjö kennarar og þrjátíu dans- og tónlistarnemendur frá ellefu löndum tóku þátt í námskeiðinu í Kaupmannahöfn sem stóð yfir dagana 4. - 8.nóvember s.l.  Þáttakendur frá Listaháskólanum voru þeir Andres Ramón og Jón Gunnar Biering Margeirsson, nemendur í tónsmíðum á meistarastigi.  Viðfangsefni námskeiðsins var nútímadanskennsla og lifandi tónlist í danskennsluumhverfinu.  Áhersla var lögð á samstarf milli dansara, danskennara og tónlistarmanna.  Dans- og tónlistarnemendum gafst tækifæri til að vinna saman þar sem dansar bjuggu til ákveðnar æfingar og tónlistarmenn sömdu og fluttu tónlist við æfingarnar í kennslutíma.  Námskeiðið í Kaupmannahöfn var eitt það stærsta námskeið sem EMD hefur staðið fyrir til þessa og reiknað er með að því verði fylgt eftir með nýju námskeiði sem haldið verður í Listaháskólanum á vorönn.

19. nóvember, 2009