DAMANHUR: Esperide Ananas

Damanhur

DAMANHUR:

Esperide Ananas heldur fyrirlestur 18. nóvember í Opna listaháskólanum kl. 12:10 (stofu 311, Skipholti 1) og í Hugmyndaráðuneytinu, Hugmyndahúsinu, Grandagarði 2, kl. 20.00.

Esperide mun, í hádegisfyrirlestri í Opna listaháskólanum, segja frá Damanhur, spjalla um byggingu og gerð hvelfinganna í Damanhur, og notagildi og merkingu heilagrar geometríu sem og samfélagsgerð sem er hönnuð og hugsuð frá grunni.

Á kvöldfyrirlestri / umræðu í Hugmyndaráðuneytinu mun Esperide leggja áherslu á samfélagið Damanhur, tilurð þess og þann lærdóm sem má draga af stofnun þess og daglegu lífi þar. Damanhur er hannað samfélag sem á sinn eigin gjaldmiðil, hagkerfi, heilbrigðiskerfi, menntakerfi, en samfélagið byggist á lýðræði og samvinnu og er í stöðugri þróun. Damanhur á í samstarfi við vísindasamfélagið hvað varðar lífshætti 21. aldarinnar; sjálfbærni í rekstri, þróun orkugjafa og heilbrigðra lífshátta.

Áhugaverðir fyrirlestrar fyrir þjóðfélag á tímamótum.

—————————–

ABOUT ESPERIDE:

Esperide Ananas, Director of International Relations for the Federation of Damanhur.

University degree in English and Spanish Literature from IULM University in Milan, Master of Arts in Communication from New York University.

Fluent in five languages, trained in community building  and conflict resolution, for over 10 years  Esperide has been an International Ambassador for the Federation, sharing Damanhur’s vision for a culture of peace with political, artistic and communal organizations worldwide, and leading seminars on new social, spiritual and economic models for sustainability. She has worked for the European Parliament and as a consultant for Italian and international organizations.

In the summer of 1992, Esperide was asked by the Federation of Damanhur in Italy, to organize the press campaign to present to the world and promote their unique artwork: the Temples of Humankind. At the end of 1993 she became a full-time citizen of Damanhur and, in the same year, she graduated from the Damanhur School for Spiritual Healers. Since 1995 Esperide has been a member of the Pearl Group, a UK based consultancy specialized in innovation and creativity.

Esperide is an international speaker, a published author (both in Italy and the US), and comic novelist. She has written and directed two plays as well as producing and directing video.  She loves sci-fi, and is a very keen photographer.

MORE ABOUT DAMANHUR:

SEE ALSO:
http://www.damanhur.org

ON FACEBOOK:
http://www.facebook.com/group.php?gid=19905071016#/event.php?eid=200693061154&ref=mf

Hvernig klæðast skal Kimono.

kimono2

Munetoshi Kurihara heldur fyrirlestur um japanska menningu í Opna listaháskólanum þriðjudaginn 17.nóv. kl.12:10, Skipholti 1, stofu 113

Munetoshi Kurihara heldur fyrirlestur um japanska menningu með áherslu á Origami listina og hvernig klæðast skal Kimono.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku og eru allir velkomnir.

kimono-4

Munetoshi Kurihara will lecture on Japanese culture with focus on the art of Origami and how to wear a Kimono.

The lecture will be in English and is open to the public.

kimono-3kimono-1

Ný skipan stjórnar Listaháskólans

listahaskolinn-mynd2

Breytingar hafa nú orðið á stjórn Listaháskóla Íslands. Stjórnin er skipuð fimm manns, þremur tilnefndum af Félagi um Listaháskóla Íslands og tveimur af menntamálaráðherra.

Stjórn skólans hefur frá stofnun skólans verið skipuð þeim Karólínu Eiríksdóttur, tónskáldi (formaður), Sigurði Nordal, hagfræðingi (varaformaður), Kristni E. Hrafnssyni, myndlistarmanni (ritari), Pétri Einarssyni, leikara, og Stefáni Pétri Eggertssyni, verkfræðingi.

Nú hafa orðið þær breytingar á að í stað Kristins E. Hrafnssonar hefur Félag um Listaháskóla tilnefnt í stjórn Jón Ólaf Ólafsson, arkitekt, og menntamálaráðherra hefur tilnefnt Kolbrúnu Halldórsdóttur, leikstjóra, í stað Stefáns Péturs Eggertssonar.

Myndlistarkonan Else Gabriel fjallar um verk sín

kind-als-pinsel

Else Gabriel, sem er prófessor við skúlptúrdeild listaháskólans Berlin Weißensee, var meðlimur myndlistarhópsins “Auto Perforations-Artisten” sem fékkst aðalega við gjörning og starfaði í Austur-Þýskalandi á árunum 1982 til 1991. Síðan 1991 hefur hún starfað með Ulf Wrede undir heitinu “(e.) Twin Gabriel”. Listparið hefur sýnt víða um heim og skapað sér sérstöðu á sviði gjörninga, innsetninga, videos og sviðsettrar ljósmyndunar.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er opinn öllum.

Opinn dagur í Listaháskólanum föstudaginn 13. nóvember

Opinn dagur vefmynd

Föstudaginn 13. nóvember var  Opinn dagur í öllum deildum  Listaháskóla Íslands og var áhugasömum boðið að koma í skólann og kynnast starfsemi hans.

Í Listaháskólanum voru nemendur og kennarar til viðtals og upplýsingagjafar. Fjölbreytt dagskrá var í deildum skólans og má þar nefna uppákomur, leiðsögn um deildir og sýningar á verkefnum nemenda.  Jafnframt gátu gestir fengið upplýsingar um umsóknarferli og nemendur kynntu inntökumöppur.

Myndlistardeild, listkennsludeild og hönnunar-og arkitektúrdeild höfðu opið hús frá kl. 11.00-16.00. Leiklistardeild og tónlistardeild voru með opið frá kl. 14.00-18.00.

ÍTARLEGRI DAGSKRÁ DEILDA:

Myndlistardeild / Listkennsludeild. Laugarnesvegur 91. Kl. 11.00-16.00

Í Laugarnesinu var opið hús í myndlistardeild og var m.a. boðið upp fasta kynningu á myndlistardeildinni kl. 11.30, 13.30 og 14.30.  Einnig var sýning á verkum nemenda þar sem sýnd voru málverk, vídeó og skúlptúra. Einnig lágu ferilmöppur nemenda og nokkrar umsóknarmöppur frammi til sýnis fyrir gesti og gangandi.

Í  Listkennsludeild LHÍ á 2. hæð í Laugarnesinu var opið hús þar sem nemendur og kennarar tóku á móti gestum og gangandi. Hægt var að kíkja inn í tíma eftir hádegi, skoða myndir úr starfinu og hitta á óvænta uppákomur nemenda. Stutt formleg kynning var á náminu og nýrri námsleið til meistaragráðu kl. 12.30 og 14.00.

Hönnunar-og arkitektúrdeild. Skipholt 1. Kl. 11.00-16.00

Frá kl.11.00-16.00 tóku prófessorar, fagstjórar, kennarar og nemendur á móti gestum. Boðið var upp á leiðsögn um deildina þar sem inntökuferli og nám var útskýrt.  Farið var inn á vinnustofur nemenda þar sem hægt er að sjá hvað þeir eru að vinna. Inntökumöppur voru til sýnis og nemendur svöruðu fyrirspurnum.

Að auki voru til sýnis verk nemenda sem unnin hafa verið á þessu ári.

Leiklistardeild /Tónlistardeild. Sölvhólsgata 13. Kl. 14.00-18.00

Í leiklistardeild voru m.a. opnir tímar með raddæfingum og leikjum, kynning nemanda í Fræði og framkvæmd á námi sínu, uppákomur nemenda, opnir danstímar og margt fleira. Í tónlistardeild voru tónlistaruppákomur í gangi allan daginn, tónsmíðanemendur kynntu nám sitt og boðið var uppá leiðsögn um deildina kl.14.30, 15.30, 16.30 og 17.30.

Í báðum deildum var boðið upp á mikið líf og fjör og hægt að spjalla við fagstjóra, prófessora og leiklistar- og tónlistarnemendur.