Laugardaginn 14. nóvember efna Leikminjasafn Íslands og Listaháskóli Íslands til málstofu um íslenska leiklistarfræði. Málstofan er haldin í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Hún verður haldin í fundasal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu og hefst kl. 14.00. Þar munu eftirtaldir fræðimenn flytja stutt erindi:
Ólafur J. Engilbertsson, sagnfræðingur og leikmyndahöfundur: „Rétt landslag eða róttæk list?” - sögunni miðlað á sviðinu.
Ingibjörg Björnsdóttir, listdanskennari: „Ausdruckstanz” á íslensku leiksviði - Um dansarann Ellen Kid,
Magnús Þór Þorbergsson, lektor við Leiklistardeild Listaháskóla Íslands, “Hvað eigum við að kalla instructör?” - Nokkrar hugleiðingar um stöðu leikstjórans í íslensku leikhúsi á 3. áratugi síðustu aldar.
Jón Viðar Jónsson, forstöðumaður Leikminjasafns Íslands: Að dæma eða ekki að dæma. Hugleiðingar um tilvistarvanda íslenskrar leiklistargagnrýni á fyrri hluta síðustu aldar.
Trausti Ólafsson, leiklistarfræðingur: Nýjársnóttin: Gleðileikur Indriða Einarssonar og íslenskir samtímaviðburðir.
Björn G. Björnsson, leikmyndahöfundur: Hvernig geymist leiklist?
Sveinn Einarsson, stjórnarformaður Leikminjasafn Íslands, setur málstofuna,
Dagný Kristjánsdóttir prófessor stýrir umræðum.
















