Háskólaskrifstofa Listaháskólans opnar aftur eftir jólaleyfi í dag 4. janúar. Kennsla vorannar hefst mánudaginn 11. janúar.
The Iceland Academy of the Arts seeks to recruit a Teacher of Contemporary Dance
The Iceland Academy of the Arts seeks to recruit a Teacher of Contemporary Dance:
The position of Teacher of Contemporary Dance in the Department of Theatre and Dance, with the rank of assistant professor, associate professor or professor, is now open for applications. The applicant should be a creative artist, such as a choreographer or a dancer, and should have taught at accredited art academies in the past. A Master’s degree in Dance or compatible degree is required, or the equivalent in terms of knowledge and experience.
The work of the teacher will consist of teaching, administration and art creation/research. This position incorporates the role of Programme Director in Contemporary Dance. The applicant shall be an independent artist, and a part of his or her work at the Academy shall be to further his or her own projects and research, and to pass on the results and outcomes to the community. A full and complete command of English is a requisite.
The teaching aspect of the position incorporates general teaching in studios as well as academic teaching. The teacher shall also plan and create a framework for the dance programme in collaboration with the dean and other teachers in the department. Among other things this means that the teacher shall supervise the study progress of students, provide them with advice, critique their work and provide commentary, in addition to managing projects linked to the academic work.
Administration and the forming of policy is an important part of the position, such as working on recommendations for a Master’s level study programme at the Academy in collaboration with the dean, teachers and school directors. The teacher is expected to take part in general discussions about his or her profession in the public arena and to actively help further the profession outside the walls of the Academy.
The Rector appoints the successful applicant following an assessment by an evaluation committee, which evaluates the applicants’ competencies in line with regulations concerning the awarding of academic positions at the Iceland Academy of the Arts. See Rules on Academic Appointments at the Iceland Academy of the Arts, http://english.lhi.is/about-the-academy/academic-appointments/. In making the appointment, an evaluation is also made of applicants’ presumed abilities to collaborate with students and other staff, and whether they might be qualified to fulfill other leading positions within the school. The term of appointment is up to three years. Wages and benefits are by arrangement.
The application should be accompanied by a comprehensive report about the professional work of the applicant, his or her participation in dance and theatrical performances, research and written work, lectures, published documentation about his or her works and artistic career, and any other information relating to the applicant’s art creation and experience in the field of dance. Copies of written and published work should accompany the application, as well as printed documentation and information about major performances/works. An overview of the applicant’s education and training and copies of graduation and other certificates should be included, in addition to a special description of major teaching work. Finally the applicant is expected to report on other major tasks that he or she has been involved in, including community and administrative work, professional consultancy, different types of supervision, and commissions of trust for government authorities and institutions.
Knowledge of Icelandic is not a requirement but fluency in English is required.
Applications should be addressed to the Rector and should be submitted with related documents to the Academy’s offices at Skipholt 1, 105 Reykjavík, no later than Friday, 15 January 2010. No electronic applications will be accepted. All applications will be treated as confidential. The successful applicant will be expected to begin work on 1 August 2010, but to take part in planning for the following academic year in spring 2010.
For further information please contact Ragnheiður Skúladóttir, Dean of the Department of Theatre and Dance, at ragnheidur@lhi.is
—–
The Contemporary Dance Programme is a three-year, 180 ECTS, programme leading to a B.A degree. The overall aim is to prepare talented advanced dance students for the diverse working environment of the dancer. Emphasis is placed on giving students further training in dance technique and movement ability, which will bring them further insights into methods of dance as well as developing them as dance artists. The programme aims at stimulating students and strengthening them as independent, open-minded and creative artists, while at the same time giving them theoretical knowledge so they can develop and strengthen their own critical and innovative thinking. The programme includes a thesis and a final project.
Starf háskólakennara í dansi:
Laust er til umsóknar starf háskólakennara í dansi við leiklistardeild með stöðuheiti lektors, dósents eða prófessors. Umsækjandi skal vera skapandi listamaður, s.s. danshöfundur eða dansari, og hafa kennt við viðurkennda listaskóla. Gerð er krafa um meistaragráðu á sviði danslistar eða sambærilega háskólagráðu, eða jafngilda þekkingu og reynslu.
Starf háskólakennara skiptist í kennslu, stjórnun, og listsköpun / rannsóknir. Í starfinu felst að háskólakennari er fagstjóri á dansbraut. Háskólakennari er sjálfstæður listamaður og er það hluti af hans starfi við skólann að þróa áfram verkefni sín og rannsóknir og miðla afrakstri þeirra og niðurstöðum til samfélagsins
Undir kennsluþátt háskólakennara fellur almenn kennsla í vinnustofum og fræðakennsla, auk þess sem hann skipuleggur námið og skapar því umgjörð í samvinnu við deildarforseta og aðra kennara deildarinnar. Þetta felur m.a. í sér að kennarinn hefur umsjón með námi nemenda, veitir þeim ráðgjöf, gagnrýnir verk þeirra og gefur þeim umsagnir, auk þess sem hann stýrir verkefnum sem lúta að skólastarfinu.
Mikilvægur hluti af starfinu felst í stjórnun og mótun stefnu fyrir starfsemina, m.a. að vinna að tillögum um nám á meistarastigi við skólann í samvinnu við deildarforseta, kennara og stjórnendur skólans. Til þess er ætlast að háskólakennarinn taki þátt í almennri umræðu um sitt fag á opinberum vettvangi og sé virkur þátttakandi í framgangi greinarinnar utan veggja skólans.
Rektor ræður í stöðuna að undangengnu mati dómnefndar sem dæmir um hæfi umsækjenda í samræmi við sérstakar reglur um veitingu akademískra starfa við Listaháskóla Íslands, sjá http://lhi.is/skolinn/skipulag-og-stjornsysla/um-veitingu-akademiskra-starfa/. Við ráðningu í stöðuna er jafnframt litið til þess hversu góða hæfileika ætla megi að umsækjandinn hafi til samstarfs við nemendur og annað samstarfsfólk og hvort eiginleikar hans geti nýst til forystustarfa innan skólans. Ráðningartími er allt að þrjú ár í senn. Launakjör eru samkvæmt samkomulagi.
Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um fagleg störf umsækjanda, þátttöku í dans- og leiksýningum, rannsóknir og ritsmíðar, fyrirlestra, útgefið efni um eigin verk og listferil, og aðrar þær upplýsingar sem tengjast listsköpun hans og starfsreynslu á sviði danslistar. Afrit af ritsmíðum og útgefnu efni skulu fylgja með umsókninni, svo og útprentaðar heimildir og upplýsingar um helstu verk. Ennfremur skulu fylgja yfirlit um námsferil og afrit af prófskírteinum, auk sérstakrar greinargerðar um helstu kennslustörf. Loks er ætlast til að umsækjandi skýri frá öðrum helstu störfum sem hann hefur sinnt, þ.m.t. félags- og stjórnunarstörfum, ráðgjöf til fagaðila, umsjónarvinnu ýmis konar, og trúnaðarstörfum fyrir stjórnvöld og stofnanir.
Umsóknir skulu stílaðar á rektor og skal þeim skilað ásamt með fylgigögnum á skrifstofu skólans að Skipholti 1, 105 Reykjavík, ekki síðar en föstudaginn 15. janúar næstkomandi. Ekki er tekið við umsóknum í rafrænu formi. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Gert er ráð fyrir að háskólakennari hefji störf 1. ágúst 2010 en komi um vorið að undirbúningi kennslu á næsta skólaári.
Mikil aðsókn í Prisma!
Um áttatíu umsóknir bárust í Prismanámið sem verður frá 1. febrúar til 31. mars 2010 á Fríkirkjuvegi 11 í Reykjavík. Umsóknarfrestur var til 3. des. en að sögn forstöðukonu námsins er ennþá tekið á móti umsóknum þótt plássin séu óðum að fyllast.
Prisma er nýtt þverfaglegt diplómanám sem hentar þeim sem vilja skoða samtímann og skapa sér framtíð á gagnrýninn og skapandi hátt. Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst skipulögðu námið í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna og til þessa hafa um það bil 90 nemendur útskrifast með diplóma í Prisma.
Aðsókn er mikil í Prisma námið í vetur en um það bil 80 hafa sótt um námið. Valið verður úr hópi umsækjenda á næstu dögum og vikum. Að sögn Hrundar Gunnsteinsdóttur, forstöðukonu Prisma, er hópur umsækjenda sem fyrr fjölbreyttur, hvað aldur, reynslu og menntun varðar. Mikilvægt er að umsækjendur sendi öll gögn sem beðið er um svo hægt sé að fjalla um umsókn hvers og eins. „Við tökum ennþá við umsóknum í Prisma og ég vil hvetja alla sem hafa áhuga á að vera með að sækja um sem allra fyrst. Mér sýnist á hópi umsækjenda að nemendahópurinn verður ekki síður hafsjór reynslu og þekkingar en námið sjálft og fyrirlesarar.”
Nemendur í Prisma útskrifast með 16 eininga (ECTS) diplómagráðu. Námið stendur yfir samfleytt í 8 vikur og skal gera ráð fyrir viðverðu alla virka daga frá kl. 9.00-16.00. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast námslýsingu frá því í fyrra sem helst óbreytt, að undanskilinni stundaskrá sem mun taka einhverjum breytingum. Stundaskránna í námslýsingu má hins vegar skoða til viðmiðunar fyrir kennsluna í vetur. Stundaskrá fyrir vorönn 2010 verður ekki birt fyrr en í upphafi námsins.
Kennt verður á Fríkirkjuveg 11, 101 Reykjavík, og skólagjöld verða 195.000 krónur, en allt lesefni er innifalið í þeirri upphæð. Umsækjendum er bent á að sækja um námsstyrk til niðurgreiðslu á skólagjöldum frá stéttar- og fagfélögum og hjá Vinnumálastofnun. Vinnumálastofnun heimilar nemendum á atvinnuleysisbótum að stunda námið og halda bótum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og er þá gerður um það námssamningur. Umsækjendum um námið er bent á að snúa sér til ráðgjafa stofnunarinnar til að kanna málið.
Dæmi um svör nemenda úr kennslukönnun í október 2009:
„Prisma er mögnuð verkfærataska”
„er að stofna fyrirtæki og láta draum rætast”
„heimurinn hefur opnast og tækifærin eru óþrjótandi”
„tjái mig skýrar og framkvæmi - finnst ég geta allt!”
„hef fundið nýjar og óvenjulegar leiðir til að framkvæma og hugsa”
„eftir Prisma stóð ég uppi sem sigurvegari gagnvart sjálfri mér”
„allt annað sjónarhorn á heiminn og sjálfan mig”
„hagnýt þekking fyrir líf og vinnu”
Prisma er nýtt þverfaglegt diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst skipulögðu í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna. Eftirspurn eftir Prisma hefur verið mikil frá því námið hóf göngu sína 2. febrúar sl. Útskrifaðir hafa verið tveir nemendahópar til þessa með 12 og 16 eininga (ECTS) diplómagráður. Útskriftarnemar eru um það bil 90 talsins úr hinum ýmsu geirum, s.s. viðskiptum, þjónustu, myndlist, arkitektúr, leiklist, fjármálageira, stjórnunar- og menntastörfum, heilbrigðisgeira og svona mætti áfram telja. Skilyrði fyrir inngöngu er stúdentspróf eða jafngildi þess og hafa nemendur verið á aldursbilinu 19-67 ára.
Prisma var sett á laggirnar sem viðbrögð Listaháskólans og Háskólans á Bifröst við því ástandi sem skapaðist hér á landi í kjölfar bankahruns. Námið hefur vakið athygli hér heima og erlendis enda er um nýsköpun í menntun að ræða. Fjöldi hugmynda og spennandi verkefna hafa sprottið upp í náminu og verið hrint í framkvæmd.
Prisma námið nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Meginþáttur í aðferðafræði kennslu og fyrirkomulags er skapandi og gagnrýnin hugsun en burðargreinar eru fræðigreinar lista og heimspeki. Mörgum tengdum fögum er fléttað saman við meginþátt námsins s.s. ímyndafræði, menningarstjórnun, frumkvöðlafræði, hönnun og tíðaranda, myndmálssögu, tónlistarsögu og -miðlun, skapandi skrifum, aðferðafræði myndlistar og leikhúss, arkitektúr og skipulagi, miðlunarfræði, mannfræði, markaðsfræði og stjórnun. Að auki er boðið upp á gestafyrirlestra einu sinni í viku þar sem sérfræðingar segja frá því sem er að gerast í stefnumótun, rannsóknum og nýsköpun í samfélaginu og utan landsteinanna.
Yfir 40 sérfræðingar koma að náminu
Yfir 40 sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu hafa komið að kennslu í Prisma. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur og sálgreinandi, Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og heimspekingur, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Andri Snær Magnason rithöfundur, Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, Sveinbjörn I. Baldvinsson, handritshöfundur, Viðar Hreinsson framkvæmdarstjóri ReykjavíkurAkademíunnar, Hjálmar Ragnarsson, rektor LHÍ og tónskáld, Halldór Björn Runólfsson, forstöðumaður Listasafns Íslands, Sigríður Ingvarsdóttir, rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs hjá Nýsköpunarmiðstöð, Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, Dóra Ísleifsdóttir, fagstjóri í grafískri hönnun, Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auður Capital, Sigrún Birgisdóttir, arkitekt og lektor við LHÍ, Guðjón M. Guðjónsson frumkvöðull, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður ofl.
Markmið með náminu
1. Þverfagleg þekking
Nemendur styrki þverfaglega menntun sína sem gerir þeim kleift að setja ólíkar starfsgreinar, fræðigreinar, hugmyndir og hluti í samhengi og starfa á fleiri sviðum en áður.
2. Fleiri verkfæri í verkfæratöskuna
Nemendur öðlist þau verkfæri, þekkingu, reynslu og stuðning sem geta nýst þeim til að efla stöðu sína sem uppbyggilegir, skapandi og gagnrýnir þátttakendur í samfélaginu og láta framsæknar hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum.
3. Menntun á háskólastigi
Að námi loknu fá nemendur diplóma sem metið er til 16 eininga (ECTS) á háskólastigi. Nemendur sem ætla sér frekari menntun við Háskólann á Bifröst eða Listaháskóla Íslands geta fengið hluta námsins metið inn í nám á bakkálár- og meistarstigi, að gefnum ákveðnum skilyrðum.
4. Umbreyting
Lykilorðið í náminu er umbreyting. Nemendur fá tækifæri til að gaumgæfa þær umbreytingar sem eru að eiga sér stað í samfélaginu útfrá fjölbreyttum sjónarhornum undir leiðsögn sérfræðinga. Í slíku umhverfi verða vandamál að tækifærum, hindranir að flóðgáttum og hugmyndafræðilegt hrun að upphafi á nýjum og spennandi tímum.
Skipulag náms og fyrirkomulag
Heildarfjölda nemenda verður skipt niður í hópa sem hver hefur sinn „auðveldara” eða umsjónarkennara. Námið er á háskólastigi og ætlað fólki sem hefur að lágmarki stúdentspróf eða jafngildi þess. Að gefnum ákveðnum skilyrðum geta nemendur fengið Prisma metið til 12 eininga (ECTS) í bakkálárnám á Háskólanum á Bifröst og til 6 eininga (ECTS) í meistaranám á Bifröst og Kennslufræðum í Listaháskóla Íslands, að gefnum ákveðnum skilyrðum.
Uppfærðar nánari upplýsingar um stundaskrá, kennara og aðsetur verða tilkynntar síðar á heimasíðum www.lhi.is og www.bifrost.is.
Hér er hægt að nálgast námslýsingu á PRISMA frá fyrra ári.
Nánari upplýsingar veitir:
Hrund Gunnsteinsdóttir forstöðukona Prisma í síma 895 6371 eða á hrund@lhi.is. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um námið á heimasíðum skólanna: www.lhi.is og www.bifrost.is
HÆGT ER AÐ SÆKJA UM NÁM NÚNA
Hausttónleikar tónlistardeildar Listaháskólans
Hinir árlegu hausttónleikar tónlistardeildar Listaháskólans hófusts mánudaginn 30. nóvember í Þjóðmenningarhúsinu og standa til og með 11. desember. Tónleikarnir eru haustpróf nemenda sem stunda nám í hljóðfæraleik eða söng og er efnisskrá þeirra afar fjölbreytt. Fram koma nemendur af öllum námsárum og flytja um 15 - 20 mínútna langa efnisskrá hvert.
Allir tónleikarnir nema tvennir eru í Þjóðmenningarhúsinu. Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir.
Tónleikarnir frá Þjóðmenningarhúsinu eru sendir út beint á vef Listaháskólans.

Smellið hér til að hlusta á beina útsendingu í PC tölvu
Smellið hér til að hlusta á beina útsendingu í Macintosh tölvu
Efnisskrá allra tónleikanna má sjá hér (Þjóðmenningarhús, Sölvhóll og Langholtsskirkja)
Efnisskrá tónleikanna í Þjóðmenningarhúsi má sjá hér
Killing Time
Nemendur dansbrautar leiklistardeildar LHÍ sýna Killing Time - „verk í vinnslu“ mánudaginn 14. desember. Verkið er afrakstur fimm vikna vinnustofu með Tony Vezich danshöfundi en hann vann með nemendum dansbrautarinnar samhliða sköpun sinni á Cardiac Starin sem frumsýnt var með Íslenska dansflokknum í lok nóvember.
Tvær opnar sýningar verða á vinnu Tonys með nemendum mánudaginn 14. desember annarsvegar kl. 17.30 og hinsvegar kl. 18.30 í Danshúsinu á Sölvhólsgötu við Sölvhólsgötu 13.
Allir velkomnir!












