Nordic Panoramic Interchange
Myndlistardeild Listaháskólans tekur á næstu mánuðum þátt í stóru samstarfsverkefni innan KUNO, samstarfsneti myndlistarskóla á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.
Verkefnið nefnist “Nordic Panoramic Interchange” og hlaut það rausnarlegan styrk frá menntaáætlun norrænu ráðherranefndarinnar. Hver þátttökuskólanna fjögurra gengst fyrir vikulöngu námskeiði í sinni heimabyggð og endapunkturinn verður sýning og málþing í Kungliga Kunsthögskolan í Stokkhólmi. Þeir skólar sem taka þátt í verkefninu auk Listaháskólans eru Kunsthögskolan i Bergen, Kungliga Kunsthögskolan í Stokkhólmi og Vilnius Art Academy í Litháen. Þátttakendur eru sextán talsins; fjórir frá hverjum skóla, þrír nemendur og einn kennari. Umsjón með verkefninu fyrir hönd Listaháskólans hefur Hulda Stefánsdóttir, prófessor í myndlist, og nemendur sem valdir voru til þáttöku eru þau Bryndís Björnsdóttir, Sindri Snær S. Leifsson og Baldvin Einarsson. Karen Kiphoff, prófessor við Kunsthögskolan í Bergen hefur leitt verkefnið frá upphafi en hún átti bæði hugmyndina að því og stýrði umsókninni á sínum tíma.
Verkefnið snýst um landslag í víðum skilningi þess orðs og voru þáttakandi lönd valin sérstaklega með það í huga að áfangastaðir námskeiðanna yrðu ólíkir út frá sjónarmiði landslags, landafræði, hefða, menningar, sögu og arkitektúrs. Viðfangsefnið er því ekki síður landslag borga og samfélaga en sveitar.
Verkefnið hóf göngu sína núna á dögunum og fór íslenski hópurinn í vikuferð til Bergen í Noregi. Nemendur og kennarar kynntu verk sín hver fyrir öðrum og lögðu grunninn að þeirri vinnu sem framundan er. Opnuð hefur verið bloggsíða þar sem hægt verður að fylgjast með framvindu verkefnisins og fræðast frekar um margslungnar hugmyndir að baki hugtakinu „Víðmynd (panorama)“: http://panoramicinterchange.blogspot.com/












