
Listaháskóli Íslands auglýsir eftir umsóknum í störf háskólakennara við leiklistardeild með stöðuheiti lektors, dósents eða prófessors, annarsvegar er um að ræða starf háskólakennara í leiklist og hinsvegar starf háskólakennara í dansi. Umsóknum fyrir starf háskólakennara í leiklist skal skilað, ásamt fylgigögnum, ekki síðar en mánudaginn 4. janúar n.k. og fyrir starf háskólakennara í dansi, ekki síðar en föstudaginn 15. janúar n.k. Gert er ráð fyrir að háskólakennari hefji störf 1. ágúst 2010 en komi um vorið að undirbúningi kennslu á næsta skólaári.
Starf háskólakennara í leiklist:
Laust er til umsóknar starf háskólakennara í leiklist við leiklistardeild með stöðuheiti lektors, dósents eða prófessors. Umsækjandi skal vera skapandi listamaður, s.s. leikstjóri eða leikari, og hafa kennt við viðurkennda listaskóla. Gerð er krafa um meistaragráðu á sviði leiklistar, eða sambærilega háskólagráðu, eða jafngilda þekkingu og reynslu.
Starf háskólakennara skiptist í kennslu, stjórnun, og listsköpun / rannsóknir með áherslu á leiktúlkun. Í starfinu felst að háskólakennari er fagstjóri á leikarabraut. Háskólakennari er sjálfstæður listamaður og er það hluti af hans starfi við skólann að þróa áfram verkefni sín og rannsóknir og miðla afrakstri þeirra og niðurstöðum til samfélagsins.
Undir kennsluþátt háskólakennara fellur almenn kennsla í vinnustofum og fræðakennsla þeim tengdum, auk þess sem hann skipuleggur námið og skapar því umgjörð í samvinnu við deildarforseta og aðra kennara deildarinnar. Þetta felur m.a. í sér að kennarinn hefur umsjón með námi nemenda, veitir þeim ráðgjöf, gagnrýnir verk þeirra og gefur þeim umsagnir, auk þess sem hann stýrir verkefnum sem lúta að skólastarfinu..
Mikilvægur hluti af starfinu felst í stjórnun og mótun stefnu fyrir starfsemina, m.a. að vinna að tillögum um nám á meistarastigi við skólann í samvinnu við deildarforseta, kennara og stjórnendur skólans. Til þess er ætlast að háskólakennarinn taki þátt í almennri umræðu um sitt fag á opinberum vettvangi og sé virkur þátttakandi í framgangi greinarinnar utan veggja skólans.
Rektor ræður í stöðuna að undangengnu mati dómnefndar sem dæmir um hæfi umsækjenda í samræmi við sérstakar reglur um veitingu akademískra starfa við Listaháskóla Íslands, sjá http://lhi.is/skolinn/skipulag-og-stjornsysla/um-veitingu-akademiskra-starfa/. Við ráðningu í stöðuna er jafnframt litið til þess hversu góða hæfileika ætla megi að umsækjandinn hafi til samstarfs við nemendur og annað samstarfsfólk og hvort eiginleikar hans geti nýst til forystustarfa innan skólans. Ráðningartími er allt að þrjú ár í senn. Launakjör eru samkvæmt samkomulagi.
Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um fagleg störf umsækjanda, leikstjórn og/eða þátttöku í leiksýningum, rannsóknir og ritsmíðar, fyrirlestra, útgefið efni um eigin verk og listferil, og aðrar þær upplýsingar sem tengjast listsköpun hans og starfsreynslu á sviði leiklistar. Afrit af ritsmíðum og útgefnu efni skulu fylgja með umsókninni, svo og útprentaðar heimildir og upplýsingar um helstu verk. Ennfremur skulu fylgja yfirlit um námsferil og afrit af prófskírteinum, auk sérstakrar greinargerðar um helstu kennslustörf. Loks er ætlast til að umsækjandi skýri frá öðrum helstu störfum sem hann hefur sinnt, þ.m.t. félags- og stjórnunarstörfum, ráðgjöf til fagaðila, umsjónarvinnu ýmis konar, og trúnaðarstörfum fyrir stjórnvöld og stofnanir.
Umsóknir skulu stílaðar á rektor og skal þeim skilað ásamt með fylgigögnum á skrifstofu skólans að Skipholti 1, 105 Reykjavík, ekki síðar en mánudaginn 4. janúar næstkomandi. Ekki er tekið við umsóknum í rafrænu formi. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Gert er ráð fyrir að háskólakennari hefji störf 1. ágúst 2010 en komi um vorið að undirbúningi kennslu á næsta skólaári.
Starf háskólakennara í dansi:
Laust er til umsóknar starf háskólakennara í dansi við leiklistardeild með stöðuheiti lektors, dósents eða prófessors. Umsækjandi skal vera skapandi listamaður, s.s. danshöfundur eða dansari, og hafa kennt við viðurkennda listaskóla. Gerð er krafa um meistaragráðu á sviði danslistar eða sambærilega háskólagráðu, eða jafngilda þekkingu og reynslu.
Starf háskólakennara skiptist í kennslu, stjórnun, og listsköpun / rannsóknir. Í starfinu felst að háskólakennari er fagstjóri á dansbraut. Háskólakennari er sjálfstæður listamaður og er það hluti af hans starfi við skólann að þróa áfram verkefni sín og rannsóknir og miðla afrakstri þeirra og niðurstöðum til samfélagsins
Undir kennsluþátt háskólakennara fellur almenn kennsla í vinnustofum og fræðakennsla, auk þess sem hann skipuleggur námið og skapar því umgjörð í samvinnu við deildarforseta og aðra kennara deildarinnar. Þetta felur m.a. í sér að kennarinn hefur umsjón með námi nemenda, veitir þeim ráðgjöf, gagnrýnir verk þeirra og gefur þeim umsagnir, auk þess sem hann stýrir verkefnum sem lúta að skólastarfinu.
Mikilvægur hluti af starfinu felst í stjórnun og mótun stefnu fyrir starfsemina, m.a. að vinna að tillögum um nám á meistarastigi við skólann í samvinnu við deildarforseta, kennara og stjórnendur skólans. Til þess er ætlast að háskólakennarinn taki þátt í almennri umræðu um sitt fag á opinberum vettvangi og sé virkur þátttakandi í framgangi greinarinnar utan veggja skólans.
Rektor ræður í stöðuna að undangengnu mati dómnefndar sem dæmir um hæfi umsækjenda í samræmi við sérstakar reglur um veitingu akademískra starfa við Listaháskóla Íslands, sjá http://lhi.is/skolinn/skipulag-og-stjornsysla/um-veitingu-akademiskra-starfa/. Við ráðningu í stöðuna er jafnframt litið til þess hversu góða hæfileika ætla megi að umsækjandinn hafi til samstarfs við nemendur og annað samstarfsfólk og hvort eiginleikar hans geti nýst til forystustarfa innan skólans. Ráðningartími er allt að þrjú ár í senn. Launakjör eru samkvæmt samkomulagi.
Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um fagleg störf umsækjanda, þátttöku í dans- og leiksýningum, rannsóknir og ritsmíðar, fyrirlestra, útgefið efni um eigin verk og listferil, og aðrar þær upplýsingar sem tengjast listsköpun hans og starfsreynslu á sviði danslistar. Afrit af ritsmíðum og útgefnu efni skulu fylgja með umsókninni, svo og útprentaðar heimildir og upplýsingar um helstu verk. Ennfremur skulu fylgja yfirlit um námsferil og afrit af prófskírteinum, auk sérstakrar greinargerðar um helstu kennslustörf. Loks er ætlast til að umsækjandi skýri frá öðrum helstu störfum sem hann hefur sinnt, þ.m.t. félags- og stjórnunarstörfum, ráðgjöf til fagaðila, umsjónarvinnu ýmis konar, og trúnaðarstörfum fyrir stjórnvöld og stofnanir.
Umsóknir skulu stílaðar á rektor og skal þeim skilað ásamt með fylgigögnum á skrifstofu skólans að Skipholti 1, 105 Reykjavík, ekki síðar en föstudaginn 15. janúar næstkomandi. Ekki er tekið við umsóknum í rafrænu formi. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Gert er ráð fyrir að háskólakennari hefji störf 1. ágúst 2010 en komi um vorið að undirbúningi kennslu á næsta skólaári.
The Iceland Academy of the Arts seeks to recruit a Teacher of Contemporary Dance:
The position of Teacher of Contemporary Dance in the Department of Theatre and Dance, with the rank of assistant professor, associate professor or professor, is now open for applications. The applicant should be a creative artist, such as a choreographer or a dancer, and should have taught at accredited art academies in the past. A Master’s degree in Dance or compatible degree is required, or the equivalent in terms of knowledge and experience.
The work of the teacher will consist of teaching, administration and art creation/research. This position incorporates the role of Programme Director in Contemporary Dance. The applicant shall be an independent artist, and a part of his or her work at the Academy shall be to further his or her own projects and research, and to pass on the results and outcomes to the community. A full and complete command of English is a requisite.
The teaching aspect of the position incorporates general teaching in studios as well as academic teaching. The teacher shall also plan and create a framework for the dance programme in collaboration with the dean and other teachers in the department. Among other things this means that the teacher shall supervise the study progress of students, provide them with advice, critique their work and provide commentary, in addition to managing projects linked to the academic work.
Administration and the forming of policy is an important part of the position, such as working on recommendations for a Master’s level study programme at the Academy in collaboration with the dean, teachers and school directors. The teacher is expected to take part in general discussions about his or her profession in the public arena and to actively help further the profession outside the walls of the Academy.
The Rector appoints the successful applicant following an assessment by an evaluation committee, which evaluates the applicants’ competencies in line with regulations concerning the awarding of academic positions at the Iceland Academy of the Arts. See Rules on Academic Appointments at the Iceland Academy of the Arts, http://english.lhi.is/about-the-academy/academic-appointments/. In making the appointment, an evaluation is also made of applicants’ presumed abilities to collaborate with students and other staff, and whether they might be qualified to fulfill other leading positions within the school. The term of appointment is up to three years. Wages and benefits are by arrangement.
The application should be accompanied by a comprehensive report about the professional work of the applicant, his or her participation in dance and theatrical performances, research and written work, lectures, published documentation about his or her works and artistic career, and any other information relating to the applicant’s art creation and experience in the field of dance. Copies of written and published work should accompany the application, as well as printed documentation and information about major performances/works. An overview of the applicant’s education and training and copies of graduation and other certificates should be included, in addition to a special description of major teaching work. Finally the applicant is expected to report on other major tasks that he or she has been involved in, including community and administrative work, professional consultancy, different types of supervision, and commissions of trust for government authorities and institutions.
Knowledge of Icelandic is not a requirement but fluency in English is required.
Applications should be addressed to the Rector and should be submitted with related documents to the Academy’s offices at Skipholt 1, 105 Reykjavík, no later than Friday, 15 January 2010. No electronic applications will be accepted. All applications will be treated as confidential. The successful applicant will be expected to begin work on 1 August 2010, but to take part in planning for the following academic year in spring 2010.
For further information please contact Ragnheiður Skúladóttir, Dean of the Department of Theatre and Dance, at ragnheidur@lhi.is
—–
The Contemporary Dance Programme is a three-year, 180 ECTS, programme leading to a B.A degree. The overall aim is to prepare talented advanced dance students for the diverse working environment of the dancer. Emphasis is placed on giving students further training in dance technique and movement ability, which will bring them further insights into methods of dance as well as developing them as dance artists. The programme aims at stimulating students and strengthening them as independent, open-minded and creative artists, while at the same time giving them theoretical knowledge so they can develop and strengthen their own critical and innovative thinking. The programme includes a thesis and a final project.