Gunnhildur Hauksdóttir myndlistarkona með fyrirlestur

fimleikar Gunnhildur opni 2010
Gunnhildur Hauksdóttir myndlistarkona fjallar um eigin verk í hádegisfyrirlestri  Opna Listaháskólans í húsnæði myndlistardeildar Listaháskóla Íslands,  Laugarnesvegi 91, stofu 024, mánudaginn 1. febrúar kl. 12.30.

Gunnhildur Hauksdóttir er fædd í Reykjavík 1972. Hún lauk B.A.-námi frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2001 og MFA-námi í myndlist frá The Sandberg Institute, í Amsterdam árið 2005.Gunnhildur hefur verið mjög virk í sýningarhaldi undanfarin ár, tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og haldið einkasýningar auk þess að skrifa um myndlist.  Nýjasta einkasýning hennar, sem haldin var í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi D-sal, árið 2008, bar nafnið TIGNUÐ SKEPNAN.

Fyrirlesturinn er öllum opinn.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í allar deildir Listaháskólans

listahaskolinn-mynd2

Umsóknafrestur í Listaháskólann fyrir skólaárið 2010-2011 er sem hér segir:

Hönnunar- og arkitektúrdeild 16. apríl 2010
Leiklistardeild
Leikarabraut 1. mars 2010
Fræði og framkvæmd 1. mars 2010
Samtímadans 15. mars 2010
Listkennsludeild 9. apríl 2010
Myndlistardeild 16. apríl 2010
Tónlistardeild
Diplóma og bakkalárnám 15. mars 2010
Meistaranám í tónsmíðum 10. maí 2010
Meistaranámí Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi 16. apríl 2010

Allar nánari upplýsingar um inntökufresti, umsóknarferli og inntökuferli í deildum er að finna á slóðinni: http://lhi.is/umsoknir/

Baldur Geir Bragason myndlistarmaður heldur fyrirlestur

Baldur Geir Bragason-2010

Myndlistamaðurinn Baldur Geir Bragason heldur hádegisfyrirlestur í Opna Listaháskólanum  við myndlistardeild LHÍ, Laugarnesvegi 91, n.k. mánudag 25. janúar, kl. 12.30.

Í fyrirlestrinum fjallar Baldur Geir um verk sín og sýningarhald.

Baldur Geir er fæddur í Reykjavík 1976. Hann útskrifaðist frá myndlistardeild LHÍ árið 2001 og hélt sína fyrstu einkasýningu að loknu framhaldsnámi í Berlín, sýninguna Yfirborðskennd, í Kling og Bang fyrir um ári síðan.

Um eitt verka sýningarinnar, hefur Markús Þór Andrésson ritað eftirfarandi orð í sýningarskrá: „Þegar horft er á málverk dregur myndefnið mann oft frá verkinu sem slíku og yfir í ímyndaðan heim. Baldur snýr þessari tilhneigingu myndmálsins við, í stað málverks af ruggustól er kominn ruggustóll úr málverki. ”

Baldur Geir hlaut nýverið styrk úr Listasjóði Dungals. Fyrirlesturinn er öllum opinn.

Corinna Dean arkitekt heldur fyrirlestur

Hall3 opni 2010

Corinna Dean, arkitekt heldur fyrirlesturinn;  list/ rými í borg // arkitektúr og almenningsrými, í Opna listaháskólanum miðvikudaginn 27.janúar 2010 kl. 12.10 í Skipholti 1, stofu 113.

Víða um heim er  algengt að tefla fram uppbyggingu menningarstofnana sem hvata til endurvæðingar byggðar og ennfremur til að koma borgum á framfæri sem mikilivægra menningarvettvanga í alþjóðlegum samhengi. Corinna Dean fjallar um hvernig Tate Modern hefur haft áhrif á umhverfi suðurbakkans í London og hvernig safnið hefur orðið hvati að uppvæðingu þessa hverfis og jafnframt orðið til að styðja ímynd London  sem heimsborgar á sviðum lista.  Hún mun einnig fjalla um hvernig ný opinber almenningsrými í borg hafa þróast fyrir milligöngu listastofnana og hvaða þýðingu það hefur haft fyrir skilgreiningu á almenningsrýmum í London.  Corinna Dean stundar  rannsóknir við Cities programme við London School of Economics í London og kemur sem gestakennari til Íslands að vinna með 3. árs arkitektanemum að lokavekerkefni þeirra um listrými í borg.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku og eru allir velkomnir.

—————–

” The use of cultural institutions as regeneration tools within the wider agenda to promote cities of culture is wide spread,  Corinna will examine the effect of Tate Modern as an urban catalyst on the Bankside area of London, and how the institution  has  been used to promote London as a world class city. She will also discuss  how a new form of public space has been created as mediated through an art institution and what this  means in terms of a new definition of public space for London.”

Name: Corinna Dean
PHD @ Cities programme at the London School of Economics
Title/Topic: Establishing Tate Modern cultural quarter: regeneration through art and architecture

Research interests: architecture, urbanism, cultural studies, visual studies

Funder: AHRC Collaborative Doctoral Award

Background: Corinna obtained a Degree in History of Design and then went on to do a BA Hons in Architecture at The University of Westminster and a postgraduate diploma at the Bartlett School of Arch, UCL. She practiced in Berlin and the South of Germany working on various scales of architectural projects. Corinna has contributed to a number of exhibitions exploring ideas of authorship and institutions of display such as, Open Urban Picnic, Outpost and Roadworks curated by Fat and she curated and designed, The Interchange Experience, an exhibition that explored future modes of integrated transport and urbanism with Emap. She worked at the Architecture Foundation (1997 -1999) on various projects and publications such as the Roadshow, a project to regenerate interstitial urban sites. Corinna has been a visiting lecturer to the Critical and Historical Studies Department at the Royal College of Arts and held the position as Programme Director of the Interior Architecture Department at the University of Kent, Kent School of Architecture, until 2007.

The lecture is in english and is open to the public.

Ráðstefna norrænna og baltneskra hönnunar-og listháskóla í Listháskóla Íslands

Cirrus 2-2010

Ráðstefna norrænna og baltneskra hönnunar-og listháskóla haldin í Listháskólanum 21-22. janúar.

“Cirrus” nefnast samtök norrænna og baltneskra hönnunar- og listaháskóla .  Í samtökunum eru tuttugu og sex hönnunarskólar í átta löndum.  Listaháskóli Íslands hefur verið virkur þátttakandi í samtökunum alveg frá stofnun skólans.

Fimmtudaginn 21. janúar og föstudaginn 22. janúar var haldinn árlegur fundur kennara frá aðildarskólum Cirrus samtakanna.  Fundurinn var haldinn á vegum Listaháskóla Íslands og komu saman fjörtíu og átta fulltrúar frá nítján hönnunarskólum.  Sérstök viðfangsefni fundarins voru þrjú:  ”Hönnun og jafnrétti”,   “þróun M.A. náms í hönnun” og “hvernig bregst hönnun við efnahagshruni”.

Á fundinum var kynnt  nýtt meistaranám í hagnýtum listum  - hönnun og miðlun - sem til stendur að hleypa af stokkunum við Listaháskóla Íslands, en undanfarin misseri hefur verið unnið að undibúningi þeirrar námsbrautar innan skólans.  Námsbrautin er rökrétt framhald af námsbrautum skólans í hönnun á Bakkalárstigi sem starfræktar hafa verið síðasliðin 10 ár.  Meistaranám í hagnýtum listum - hönnun og miðlun - er mikilvægur áfangi til eflingar rannsókna og þróunar á sífellt fjölbreyttari og öflugri starfsemi hönnunar í íslensku samfélagi.  Þetta á einkum við þær sérstöku aðstæður sem ríkja í íslensku samfélagi þessi misserin.

Jafnframt var rætt um sam-norrænar og sam -evrópskar meistarnámsbrautir í hönnun sem eru í undirbúningi.

Í viðhengi má finna dagskrá fundarins - Dagskrá - Cirrus-Reykjavík 2010.