Mjög góð aðsókn á tónsmíðatónleika um helgina
Miðsvetrartónleikar tónsmíðanemenda tónlistardeildar voru haldnir voru nú um helgina. Þar var mikil stemning og mjög góð aðsókn. Var um tvenna tónleika að ræða sem báðir hófust kl. 16.00.
Fyrri tónleikarnir voru laugardaginn 16. janúar og þeir seinni 17. janúar en á tónleikunum voru flutt afar fjölbreytt verk eftir átján tónsmíðanemendur s.s. strengjakvartett, örverk, þjóðlag, stuttmynd og verk fyrir ýmis hljóðfæri svo eitthvað sé nefnt.
Tónleikunum var einnig útvarpað beint á netinu þannig að þeir sem ekki áttu heimangengt voru staddir í öðru landi eða öðrum landshluta gátu einnig notið tónlistarinnar og voru margir sem nýttu sér það.
Tónsmíðanemendur sem áttu verk á tónleikunum eru:
Bergrún Snæbjörnsdóttir, Brynhildur Ingibjörg Oddsdóttir, Hafsteinn Þórólfsson, Vala Gestsdóttir, Skúli Jónsson, Arndís Hreiðarsdóttir, Ingibjörg Erlingsdóttir, Þórunn Gréta Sigurðardóttir, Árni Guðjónsson, Birgit Myschi, Gunnar Karel Másson, Halldór Smárason, Finnur Karlsson, Kolbeinn Bjarnason, Einar Sverrir Tryggvason, Ingólfur Magnússon, Margrét Kristín Blöndal, Erla Axelsdóttir.
Efnisskrá tónsmíðatónleika laugardaginn 16. janúar kl.16.00 - sjá hér
Efnisskrá tónsmíðatónleika sunnudaginn 17. janúar kl.16.00 - sjá hér










