Þjóðhátíðarsjóður veitir verkefninu Reykjavíkurgötur styrk til að hefja útgáfu

Reykjavíkurgötur 2010

Þjóðhátíðarsjóður veitir verkefninu Reykjavíkurgötur styrk til að hefja útgáfu

Undanfarin ár hafa nemendur í arkitektúr við Listaháskóla Íslands unnið að rannsóknum á áveðnum götum og borgarrýmum í miðbæ Reykjavíkur, undir handleiðslu Sigrúnar Birgisdóttur, lektor og fagstjóra í arkitektúr og Massimo Santanicchia arkitekts.

Byggingarlist er eitt birtingarform menningar sérhverrar þjóðar. Lifandi borg er breytingum háð, þar sem borgarrýmin og arkitektúr þróast samfara breyttum þörfum og væntingum samfélagsins. Göturannsóknarverkefnin sem hér um ræðir leitast við að skilja þróun byggðar í Reykjavík.

Árið 2008 var Frakkastígur skoðaður, árið 2009 Hverfisgata og árið 2010 verður Lækjargata rannsökuð. Hóprannsókn nemenda hefur falið í sér að kanna hvert og eitt hús og teikna það upp til að varpa fram heildstæðri götumynd, sem og að kanna breytileika félagslegra og umhverfislegra þátta allrar götunnar og umlykjandi byggðar til að varpa frekara ljósi á þróun byggðar í Reykjavík. Göturannsóknirnar hafa verið styrktar af Borgarskipulag Reykjavíkur.

Til að tryggja varðveislu og miðlun þessarar þekkingar er það markmið fagstjóra í arkitektúr að koma á fót nýrri ritröð um þetta efni undir heitinu Reykjavíkurgötur. Hefur nú fengist styrkur til að hrinda af stað þessari ritröð, sem mun marka upphafið að frekari þekkingaröflun og -sköpun á þessu sviði.

Alls bárust 259 umsóknir um styrki að fjárhæð samtals um 350 millj. kr. Úthlutað var að þessu sinni 65 styrkjum að fjárhæð samtals kr. 33,9 millj. kr. Tilgangur Þjóðhátíðarsjóðs er að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.

18. janúar, 2010