Ráðstefna norrænna og baltneskra hönnunar-og listháskóla í Listháskóla Íslands
Ráðstefna norrænna og baltneskra hönnunar-og listháskóla haldin í Listháskólanum 21-22. janúar.
“Cirrus” nefnast samtök norrænna og baltneskra hönnunar- og listaháskóla . Í samtökunum eru tuttugu og sex hönnunarskólar í átta löndum. Listaháskóli Íslands hefur verið virkur þátttakandi í samtökunum alveg frá stofnun skólans.
Fimmtudaginn 21. janúar og föstudaginn 22. janúar var haldinn árlegur fundur kennara frá aðildarskólum Cirrus samtakanna. Fundurinn var haldinn á vegum Listaháskóla Íslands og komu saman fjörtíu og átta fulltrúar frá nítján hönnunarskólum. Sérstök viðfangsefni fundarins voru þrjú: ”Hönnun og jafnrétti”, “þróun M.A. náms í hönnun” og “hvernig bregst hönnun við efnahagshruni”.
Á fundinum var kynnt nýtt meistaranám í hagnýtum listum - hönnun og miðlun - sem til stendur að hleypa af stokkunum við Listaháskóla Íslands, en undanfarin misseri hefur verið unnið að undibúningi þeirrar námsbrautar innan skólans. Námsbrautin er rökrétt framhald af námsbrautum skólans í hönnun á Bakkalárstigi sem starfræktar hafa verið síðasliðin 10 ár. Meistaranám í hagnýtum listum - hönnun og miðlun - er mikilvægur áfangi til eflingar rannsókna og þróunar á sífellt fjölbreyttari og öflugri starfsemi hönnunar í íslensku samfélagi. Þetta á einkum við þær sérstöku aðstæður sem ríkja í íslensku samfélagi þessi misserin.
Jafnframt var rætt um sam-norrænar og sam -evrópskar meistarnámsbrautir í hönnun sem eru í undirbúningi.
Í viðhengi má finna dagskrá fundarins - Dagskrá - Cirrus-Reykjavík 2010.













