Baldur Geir Bragason myndlistarmaður heldur fyrirlestur
Myndlistamaðurinn Baldur Geir Bragason heldur hádegisfyrirlestur í Opna Listaháskólanum við myndlistardeild LHÍ, Laugarnesvegi 91, n.k. mánudag 25. janúar, kl. 12.30.
Í fyrirlestrinum fjallar Baldur Geir um verk sín og sýningarhald.
Baldur Geir er fæddur í Reykjavík 1976. Hann útskrifaðist frá myndlistardeild LHÍ árið 2001 og hélt sína fyrstu einkasýningu að loknu framhaldsnámi í Berlín, sýninguna Yfirborðskennd, í Kling og Bang fyrir um ári síðan.
Um eitt verka sýningarinnar, hefur Markús Þór Andrésson ritað eftirfarandi orð í sýningarskrá: „Þegar horft er á málverk dregur myndefnið mann oft frá verkinu sem slíku og yfir í ímyndaðan heim. Baldur snýr þessari tilhneigingu myndmálsins við, í stað málverks af ruggustól er kominn ruggustóll úr málverki. ”
Baldur Geir hlaut nýverið styrk úr Listasjóði Dungals. Fyrirlesturinn er öllum opinn.













