Gunnhildur Hauksdóttir myndlistarkona með fyrirlestur

Gunnhildur Hauksdóttir myndlistarkona fjallar um eigin verk í hádegisfyrirlestri Opna Listaháskólans í húsnæði myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91, stofu 024, mánudaginn 1. febrúar kl. 12.30.
Gunnhildur Hauksdóttir er fædd í Reykjavík 1972. Hún lauk B.A.-námi frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2001 og MFA-námi í myndlist frá The Sandberg Institute, í Amsterdam árið 2005.Gunnhildur hefur verið mjög virk í sýningarhaldi undanfarin ár, tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og haldið einkasýningar auk þess að skrifa um myndlist. Nýjasta einkasýning hennar, sem haldin var í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi D-sal, árið 2008, bar nafnið TIGNUÐ SKEPNAN.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.








