Miðsvetraútskrift Listháskólans

Miðsvetrarútskrif t3-jan-2010Miðsvetararútskrift 2-jan-2010Miðsvetrarútskrift5-jan-2010Miðsvetrarútskrift-jan-2010

Föstudaginn 15. janúar s.l. var haldin miðsvetrarútskrift Listháskóla Íslands. Athöfnin fór fram í Skemmtihúsinu við Laufásveg, en þar voru útskrifaðir sjö nemendur úr hönnunar- og arkitektúrdeild og úr listkennsludeild. Eru það fyrstu nemendur sem útskrifast úr Listkennsludeild eftir stofnun þeirrar deildar.  Þar sem fáir nemendur útskrifuðust að þessu sinni þá var athöfnin látlaus og notaleg. Rektor talaði til útskriftarnema og síðan afhentu deildarforsetar nemendum skírteinin sín.

Þjóðhátíðarsjóður veitir verkefninu Reykjavíkurgötur styrk til að hefja útgáfu

Reykjavíkurgötur 2010

Þjóðhátíðarsjóður veitir verkefninu Reykjavíkurgötur styrk til að hefja útgáfu

Undanfarin ár hafa nemendur í arkitektúr við Listaháskóla Íslands unnið að rannsóknum á áveðnum götum og borgarrýmum í miðbæ Reykjavíkur, undir handleiðslu Sigrúnar Birgisdóttur, lektor og fagstjóra í arkitektúr og Massimo Santanicchia arkitekts.

Byggingarlist er eitt birtingarform menningar sérhverrar þjóðar. Lifandi borg er breytingum háð, þar sem borgarrýmin og arkitektúr þróast samfara breyttum þörfum og væntingum samfélagsins. Göturannsóknarverkefnin sem hér um ræðir leitast við að skilja þróun byggðar í Reykjavík.

Árið 2008 var Frakkastígur skoðaður, árið 2009 Hverfisgata og árið 2010 verður Lækjargata rannsökuð. Hóprannsókn nemenda hefur falið í sér að kanna hvert og eitt hús og teikna það upp til að varpa fram heildstæðri götumynd, sem og að kanna breytileika félagslegra og umhverfislegra þátta allrar götunnar og umlykjandi byggðar til að varpa frekara ljósi á þróun byggðar í Reykjavík. Göturannsóknirnar hafa verið styrktar af Borgarskipulag Reykjavíkur.

Til að tryggja varðveislu og miðlun þessarar þekkingar er það markmið fagstjóra í arkitektúr að koma á fót nýrri ritröð um þetta efni undir heitinu Reykjavíkurgötur. Hefur nú fengist styrkur til að hrinda af stað þessari ritröð, sem mun marka upphafið að frekari þekkingaröflun og -sköpun á þessu sviði.

Alls bárust 259 umsóknir um styrki að fjárhæð samtals um 350 millj. kr. Úthlutað var að þessu sinni 65 styrkjum að fjárhæð samtals kr. 33,9 millj. kr. Tilgangur Þjóðhátíðarsjóðs er að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.

Mjög góð aðsókn á tónsmíðatónleika um helgina

tonsmida-170110tonsmida2-170110

Miðsvetrartónleikar tónsmíðanemenda tónlistardeildar voru haldnir voru nú um helgina.  Þar var mikil stemning og mjög góð aðsókn. Var um tvenna tónleika að ræða sem báðir hófust kl. 16.00.

Fyrri tónleikarnir voru laugardaginn 16. janúar og þeir seinni 17. janúar en á tónleikunum voru flutt afar fjölbreytt verk eftir átján tónsmíðanemendur s.s. strengjakvartett, örverk, þjóðlag, stuttmynd og verk fyrir ýmis hljóðfæri svo eitthvað sé nefnt.

Tónleikunum var einnig útvarpað beint á netinu þannig að þeir sem ekki áttu heimangengt voru staddir í öðru landi eða öðrum landshluta gátu einnig notið tónlistarinnar og voru margir sem nýttu sér það.

Tónsmíðanemendur sem áttu verk á tónleikunum eru:

Bergrún Snæbjörnsdóttir, Brynhildur Ingibjörg Oddsdóttir, Hafsteinn Þórólfsson, Vala Gestsdóttir, Skúli Jónsson, Arndís Hreiðarsdóttir, Ingibjörg Erlingsdóttir, Þórunn Gréta Sigurðardóttir, Árni Guðjónsson, Birgit Myschi, Gunnar Karel Másson, Halldór Smárason,  Finnur Karlsson, Kolbeinn Bjarnason, Einar Sverrir Tryggvason, Ingólfur Magnússon, Margrét Kristín Blöndal, Erla Axelsdóttir.

Efnisskrá tónsmíðatónleika laugardaginn 16. janúar kl.16.00 - sjá hér

Efnisskrá tónsmíðatónleika sunnudaginn 17. janúar kl.16.00 - sjá hér

Myndlistartvíeykið Rosen/Wojnar sýnir og segir frá verkefnum sínum

Opni Listahaskoli Schoeneaussicht-2010

Myndlistartvíeykið Rosen/Wojnar sýnir og segir frá verkefnum sínum í hádegisfyrirlestir Opna listaháskólans, í myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91, n.k. mánudag 18. janúar kl. 12.30.

Myndlist Nikolai von Rosen og Florian Wojnar, sem áður störfuðu saman undir heitinu FUTURE7, spannar mörg svið og jafnvel má segja að snertiflöturinn sjálfur, eða bilið á milli heima, sé ákveðinn hugmyndalegur grunnur fjölbreytilegra verkefna þeirra. Þeir hafa beint sjónum sínum að listheiminum og innviðum hans; galleríum og myndlistarmarkaðinum, útgáfu, sýningarstjórnun, söfnum og söfnurum og skörun myndlistar og arkitektúrs, m.ö.o. hvar við upplifum list og hvaða áhrif umgjörðin hefur á upplifun okkar.  Í verkum Rosen/Wojnar mætir fjölfeldið því einstaka, hópurinn einstaklingnum og frumsköpun því sem fengið hefur verið að láni, eða verið stolið.
Rosen/Wojnar verða gestir Nýlistasafnins á Listahátíð í vor. Þeir búa í Berlín og reka þar vinnustofu en starfa einnig báðir sem aðstoðarprófessorar við lista- og arkitektadeild ETH Tækniháskólans í Zürich. Nánari upplýsingar um listamennina er að finna á heimasíðu þeirra: http://www.rosen-wojnar.de/

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Eben Sorkin leturhönnuður

sorkinposter2010

EBEN SORKIN, LETURHÖNNUÐUR

heldur fyrirlestur í Opna Listaháskólanum föstudaginn 15. janúar kl. 12.05, Stofu 113, Skipholti 1.

Leturhönnun: Skýrleiki, Sjónleiki, Læsileiki.

Skýrleiki og læsileiki eru tveir aðalþættir við hönnun leturs en þeim er oft ruglað saman. Fyrirlesturinn tekur mið af þessum tveimur þáttum bæði frá menningarlegum, sjónrænum og jafnvægis sjónarmiðum. Í fyrirlestrinum tekur Eben saman stutta yfirsýn yfir eina af nýjustu leiðunum þar sem vísindi og leturhönnun vinna saman. Þessi fyrirlestur er fyrir almenning og ekki er gert ráð fyrir að áhlýðendur hafi menntun í leturhönnun eða hönnun yfir höfuð. Þrátt fyrir það mun hann einnig koma þeim sem eru vel að sér í leturhönnun töluvert á óvart.

Eben Sorkin útskrifaðist nýlega með sæmd frá MA í leturhönnunun frá Reading, UK.  Áður en Eben fór í þetta nám hafði hann búið í Alaska í sjö ár þar sem hann vann sem sjálfstætt starfandi hönnuður, gerði upp hús og garð og kenndi sjálfum sér leturhönnun. Hönnun Ebens nær frá video leikjum til fimamerkja og mörkunar vinnu.

__________________________________

Ellen Sorkin, type designer

Type design: Legibility, Readability, and Crowding

Legibility, Readability are two of key factors involved in designing a typeface but they are often confused for each other. This talk looks at these two aspects from both cultural as well as optical and harmonic perspectives. The talk concludes with a brief look at one of the newest ways in which science and type design can overlap. This talk is for the general public and does not assume a design or type education. Nevertheless it will also probably surprise even those most familiar with type design.

Eben Sorkin recently graduated with distinction from the MA in Type Design (MATD) course in Reading, UK. Prior to taking the MA course Eben lived in Alaska for seven years where he split his time between freelance design work, renovating a house and garden and teaching himself type design. Eben’s professional design history ranges from video games to logo and identity work.

The lecture is in english and is open to the public.