Þýski danshöfundurinn Thomas Lehmen - gestakennari dansbrautar LHÍ

dans-2010-thomas-lehmen

Þýski danshöfundurinn Thomas Lehmen er gestakennari dansbrautar Listaháskólans dagana 22. febrúar - 5. mars á danssmíðanámskeiði. Thomas vinnur dansverk sín á mörkum dans, heimspeki og leikhúss. Með þróun á aðferðinni “Schreibstück” braut hann upp viðteknar hugmyndir um höfundinn og eignarhald á hugmynd með því að endurskilgreina mörkin ámilli danssmiðsins, höfundarins og dansaranns. Ýmsir þekktir danhöfundar hafa unnið með aðferðina m.a. Jonathan Burrows, Martin Nachbar, Christine de Smedt og Hooman Sharifi.

Verk Thomasar eiga það sameiginlegt að byggja á spurningunni um hvernig sigrast megi á eða brjóta upp lögmál sviðsins þ.e. hvernig megi opna upp sviðstilveruna þannig að lífið, listin og ígrundun tvinnist saman í eina tilvistarspurningu. Í maí næstkomandi frumsýnir Thomas verkið “Schrottplatz” í PACT Zollverein Essen. Þar talar Thomas við hluti og reynir að veita þeim innsýn í okkar heim. Hann útskýrir kapal fyrir tómati, listaverk fyrir bolta, dagblað fyrir sardínudollu á sama tima og hann útskýrir okkur fólkið fyrir þeim. Því meira sem Thomas reynir að útskýra hin ýmsu fyrirbæri því minni verður trúverðugleiki þeirra.

Gústav Geir Bollason með sýningu og fyrirlestur

Gustav Geir Opni 2010

Hádegisfyrirlestur Gústavs Geirs Bollasonar við Opna Listaháskólann í tilefni sýningarinnar Múgavél í Kubbnum, sýningarsal myndlistardeildar LHÍ.

Mánudaginn 1. mars kl. 12.30 heldur Gústav Geir Bollason hádegisfyrirlestur við Opna Listaháskóla myndlistardeildar í Laugarnesi. Sýning Gústavs Geirs, Múgavél, opnar í sýningarsal Myndlistardeildar LHÍ, Kubbnum, föstudaginn 26. febrúar kl 17.00. Til sýningarinnar bauð hann með sér myndlistarmönnunum Clementine Roy og Þórarni Blöndal.
Auk þess að kynna eigin verk á fyrirlestrinum munu þeir Gústav Geir og Þórarinn gera grein fyrir sameiginlegu verkefni sínu og annarra aðstandenda Verksmiðjunnar á Hjalteyri, mikilsvirks vettvangs myndlistar, sem og annarra listviðburða norðan heiða, en Verksmiðjan var stofnuð fyrir tveimur árum.
Sýningin Múgavél í Kubbnum í Laugarnesi stendur yfir til 19. mars og er opin á skólatíma eða alla virka daga frá kl. 9.00 - 16.00.

Fimmtudaginn 4. mars kl. 12.30 verður boðið upp á hádegisleiðsögn listamannins um sýninguna Múgavél.

Klumpurinn kallar!

thankahrid1

Þankahríð um Listaháskóla Íslands, önnur umferð, föstudaginn 26. febrúar, kl. 14.00 í efri sölum Listasasafns Íslands.

Yfirferð, sunnudaginn 28. febrúar, kl. 14.00 í efri sölum Listasafns Íslands.
Lokahóf, sunnudaginn 28. febrúar, kl. 15.00 í efri sölum Listasafns Íslands.

Klumpurinn er stíflulosandi afl innan Listaháskóla Íslands sem veltir fyrir sér spurningum um ástand og tilgang Listaháskólans. Menningarstofnun? Menntastofnun? Samfélag? Þorp? Brotakennd heild? Laugarnes? Laugavegur? Vatnsmýri? Sölvhólsgata? Hafnafjarðarhraun? Skipholt? Grandi? Höfðatorg? Harpan? Klumpurinn vill opna fyrir hugmyndir og hugleiðingar um málefnið, ræskja rödd sem áður hefur ekki heyrst. Klumpurinn spyr hverskonar fyrirbæri er Listháskólinn? Hvað þarf hann til að þrífast sem best í samfélaginu?

Klumpurinn stóð að velheppnaðri Þankahríð (Brainstorming) á miðvikudaginn síðastliðinn. Klumpurinn telur því upplagt að efna til annarrar umferðar að Þankahríð föstudaginn 26. febrúar, þar sem hann vonast eftir þátttöku sem flestra. Klumpurinn komst að því að Þankahríð er afar áhrífarík leið til að hlusta, afla og miðla ólíkum skoðunum um skólann.

Klumpurinn mun fara yfir niðurstöður Þankahríðar á sunnudaginn 28. febrúar kl. 14.00. Þar mun meðal annars Hjálmar H.Ragnarsson, rektor Listaháskólans mæta ásamt fleiri aðstandendum skólans. Klumpurinn bíður svo í lokahóf sama dag kl. 15.00.

Viðburðurinn tengist námskeiðinu Andóf -  Samfélag í mótun sem Ósk Vilhjálmsdóttir, myndlistarkona stendur fyrir.

Frestur til að sækja um nám á leikarabraut og í Fræði og framkvæmd er 1. mars n.k

listahaskolinn-mynd2

Umsóknarfrestur í Leiklistardeild Listaháskólann fyrir skólaárið 2010-2011 er sem hér segir:

Leikarabraut 1. mars 2010
Fræði og framkvæmd 1. mars 2010
Samtímadans 15. mars 2010

Rétt til að sækja um nám hafa þeir sem lokið hafa stúdentsprófi, sambærilegu námi eða námi af listnámsbrautum framhaldsskólanna.

Rafræna umsókn og allar nánari upplýsingar um inntökuferli er að finna hér: http://lhi.is/umsoknir/leiklistardeild/

Klumpurinn kallar!

Myndlist 230210 Einangrun

Klumpurinn kallar!

Þankahríð myndlistarnema um Listaháskólann verður dagana 23. febrúar  -  29. febrúar  2010 í Listasafni Íslands.

Einnig verða Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt og hönnuður Laugarnesbyggingar og Páll Hjaltason arkitekt og hönnuður vinningstillögu um Listaháskóla á Laugavegi með kynningu á verkum sínum þriðjudaginn 23. febrúar kl. 15.00

Opin Þankahríð verður miðvikudaginn 24. febrúar kl.13.00 -17.00 í efri sölum safnsins.

——————————————————————————————

Klumpurinn er afl myndlistarnema innan Listaháskóla Íslands sem veltir fyrir sér spurningum um ástand og tilgang Listaháskólans. Menningarstofnun? Menntastofnun, Samfélag? Þorp? Brotakennd heild? Laugarnes? Laugavegur? Vatnsmýri? Sölvhólsgata? Hafnafjarðarhraun? Skipholt? Grandi? Höfðatorg?Harpan?

Klumpurinn vill opna fyrir hugmyndir og hugleiðingar um málefnið, ræskja rödd sem áður hefur ekki heyrst. Klumpurinn spyr á fundinum hverskonar fyrirbæri er Listaháskóli Íslands? Hvað þarf hann til þrífast sem best í samfélaginu? Klumpurinn virkjar nemendur og starfsfólk skólans, listamenn, fagfólk og aðra sem áhuga hafa á skólanum, húsnæði hans og starfsemi.

Gestir safnsins fá nú tækifæri til að kynnast áhugaverðri hugmyndasögu sem endurspeglar drauma og væntingar um Listaháskólann. Jafnframt eru gestir hvattir til að leggja sitt af mörkum til að auðga umræðuna um þennan mikilvæga jarðveg íslenskrar myndlistar. Það má gera með ýmsu móti:

1) taka þátt í þankahríð miðvikudaginn 24. febrúar kl. 13.00
2) koma með efni
3) taka þátt í hugmyndavinnu á staðnum á vettvangi safnsins dagana 23. febrúar - 29. febrúar 2010
4) senda hópnum tölvupóst

Til sýnis í safninu verður afrakstur vettfangsferða Klumpsins um skólann, framlög gesta og fleiri áhugaverð ummerki.

Þáttakendur í þankahríð á miðvikudaginn vinsamlegast skrái sig á netfangið:  lhithing@gmail.com

Listasafn Íslands er opið frá kl. 11.00 - 17.00.